Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 26
26 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
UTAN ÚR HEIMI
Bandaríkin:
Framleiðsla Big Bud
endurvakin
Dráttarvélaframleiðandinn frá
Montana hefur endurræst
verksmiðjurnar sem hafa ekki
skilað af sér traktor síðan 1991.
Nýja vélin, sem var frumsýnd í
Las Vegas í marsmánuði, er 750
hestöfl og 32 tonn.
Framleiðslan mun eiga sér
stað hjá Big Equipment Co, sem
undanfarna þrjá áratugi hefur
einbeitt sér að sölu og viðgerðum
stórra landbúnaðartækja eftir að
framleiðslu Big Bud var hætt á
sínum tíma. Sömu teikningar verða
notaðar og við vinnslu upprunalegu
dráttarvélarinnar sem var framleidd
í 500 eintökum frá miðjum áttunda
áratugnum til ársins 1991, fyrir utan
að drifrás og ökumannshús er nýtt.
Ron Harmon, eigandi Big
Equipment, segir í samtali við The
Western Producer að framleiðsla
dráttarvéla í dag sé á of fárra
höndum. Enn fremur sé allt gert til að
koma í veg fyrir að bændur geti sinnt
viðgerðum sjálfir. Því verða nýju
Big Bud vélarnar framleiddar með
því sjónarmiði að allur vélbúnaður
sé einfaldur og tölvubúnaður í
lágmarki.
Big Bud vélar hafa náð mikilli
endingu og telur Harmon það skýrast
af einföldu viðhaldi og að grindin sé
úr 38 millímetra þykku stáli. Þung
grindin er einnig hugsuð til að koma
í veg fyrir þörfina á þyngdarklossum.
Nýja dráttarvélin verður með 18
lítra dísilvél úr smiðju Caterpillar,
sem skilar 640 til 750 hestöflum.
Öxlar, gírkassi og aðrir hlutar
aflrásarinnar eru þeir sömu og hafa
verið notaðir í námuvélum í áratugi
og segir Harmon því að aðgengi
að notuðum varahlutum mjög gott.
Sé þörf á að endurnýja mótor eða
gírskiptingu þurfi einungis að losa
nokkra bolta og ný aflrás kemst
auðveldlega fyrir. Lítil fyrirhöfn
er að koma fyrir aflrás af annarri
gerð sé þess þörf. Fyrst um sinn er
stefnt að framleiðslu tíu eintaka á
ári hverju, en auka afköstin þegar
fram líður. Þegar mest lét voru
framleidd 120 stykki árlega á árum
áður. Ökumannshús nýju vélanna
kemur úr smiðju Agco. Verð Big
Bud verður sambærilegt og á öðrum
dráttarvélum í sama stærðarflokki.
Öflugasta dráttarvél heims er af
gerðinni Big Bud og var sérframleidd
árið 1977. Hún er með 1.100 hestafla
mótor og er enn í notkun. /ÁL
Tvær Big Bud dráttarvélar við jarðvinnslu. Sú fremri er öflugasta dráttarvél
heims. Mynd / Rwslivka – Wikimedia Commons
Fuglaflensa:
Þúsundir sæspendýra
dauð við strendur Perú
Vísindamenn óttast að fuglaflensa
sé farin að berast milli ólíkra
tegunda spendýra. Ástæða þess
er meðal annars sú að fyrir
skömmu fundust þúsundir dauðra
sæljóna utan við og á ströndum
Perú. Dánarorsök sæljónanna var
fuglaflensa.
Fyrstu vísbendingar um dauða
sæljónanna var þegar veikt dýr fannst
á strönd í sunnanverðu landinu. Við
nánari eftirgrennslan kom í ljós að
sæljónið var aðframkomið af hungri.
Sjúkdómsgreining sýndi að dýrið var
sýkt af fuglaflensu, H5N1. Síðan
þá hafa um 3.500 sæljón fundist
dauð vegna flensunnar, eða 3,3%
af skráðum stofni dýranna í landinu.
Auk þess sem einnig hafa verið að
finnast dauðir selir og otrar og einn
höfrungur sem einnig reyndist sýktur
af flensunni.
Fuglar og strandferðir
Dauð sæljón hafa meðal annars
fundist á skerjum og á reki þar sem
hræfuglar gæða sér á þeim og er
það að auka enn frekar á hættu á
útbreiðslu flensunnar. Sömu fuglar
leita í úrgang af mannavöldum sem
víða er að finna í borgum í Perú, ekki
síst í fátækrahverfum.
Fuglaflensa greindist fyrst við
strendur Perú í nóvember á síðasta
ári í mörgæsum og breiddist síðan
út í aðrar tegundir sjófugla sem
spóka sig á ströndinni innan um
baðstrandargesti.
Banna hanaat
Heilbrigðisyfirvöld í Perú segjast
líta á fuglaflensuna sem vaxandi
áhyggjuefni í ljósi þess að hún
virðist vera að berast milli ólíkra
spendýrategunda en ekki bara frá
fuglum í spendýr og því ekki ólíklegt
að hún geti borist í menn eða milli
manna.
Fuglaflensa hefur greinst í
fimmtán löndum í Suður-Ameríku
en dánartíðni spendýra í Perú er
mest af öllum löndum í álfunni. Eitt
af því sem gert hefur verið í Perú
til að draga úr hættu á útbreiðslu
fuglaflensu er að banna hanaat.
Áhyggjur WHO
Samkvæmt frétt á Reuters fyrir
skömmu lést ellefu ára gömul stúlka
í Kambódíu eftir að hafa smitast af
H5N1 afbrigði fuglaflensunnar.
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO segja
að afleiðingar þess ef veiran
stökkbreytist og verði smitandi
með lofti og haldi núverandi
dánartíðni geti orðið skelfilegar
og að dánartíðnin á heimsvísu gæti
legið á milli 5 til 150 milljón manns.
/VH
Fuglaflensa hefur greinst í sæljónum á og við strendur Perú.
Mynd / Matthew Pablico
Frá Bandaríkjum Norður-
Ameríku berast þær fréttir að
bakterían Escherichia coli finnist í
auknum mæli í matvælum. Ekki er
nýtt að E. coli finnist á matvælum
en með aukinni notkun sýklalyfja í
landbúnaði hefur fjöldi baktería, þar
á meðal stofn E. coli, myndað með
sér ónæmi fyrir sýklalyfjum og geri
það baráttuna við þá erfiða.
Mælingar á E. coli bakteríum í
kjötvöru í Bandaríkjunum sýna að
fjöldi þeirra hefur aukist mikið á
undanförnum árum. Sérstaklega er
beint augum að stofni sem kallast
FZEC. Á sama tíma er varað við
að mikið magn af E. coli í matvöru
geti valdið alvarlegum blóð- og
þvagfærasýkingum og jafnvel dauða.
Dæmigerð einkenni þvagfæra-
sýkingar af völdum E. coli eru tíð
þvaglát sem fylgja verkir, sviði og
illa lyktandi þvag. Sérstaklega er bent
á að konur séu viðkvæmar gagnvart
sýkingum. Spár gera ráð fyrir að
bakterían geti valdið hátt í milljón
sýkingum á ári í Bandaríkjunum og
að tilfellum eigi eftir að aukast.
Smit með menguðum matvælum
Á heimasíðu MAST segir að uppruna
sýkinganna megi oftast rekja til
meltingarvegs blóðheitra dýra og
er því almennt álitið að tilvist E.
coli í matvælum sé vísbending um
saurmengun. Bakterían getur komist
í kjöt við slátrun, ef innihald þarma
dýrsins berst á kjötið.
Eiturmyndandi E. coli bakteríur
nefnast STEC, Shiga Toxin-
producing Escherichia Coli, og geta
í sumum tilvikum valdið alvarlegum
veikindum í fólki. Fólk getur smitast
af STEC með menguðum matvælum
eða vatni, með beinni snertingu við
dýr eða umhverfi menguðu af saur
þeirra. Bakterían kemst þannig
um munn og niður í meltingarveg
og framleiðir eiturefni sem getur
valdið blóðugum niðurgangi og í
alvarlegum tilfellum nýrnabilun
og blóðleysi, svokallað HUS,
Hemolytic Uremic Syndrome.
Einnig getur beint smit manna á
milli átt sér stað, þá einna helst hjá
litlum börnum.
Meiri líkur á sýkingu með kjöti
Bakterían sem um ræðir getur
borist í fólk hvort sem er með
kjöti eða grænmeti en oftar en
ekki er smitleiðin með kjötvöru
og fundust þær í miklu magni í
alifugla- og svínakjöti í verslunum
í Bandaríkjunum. Í dag eru í gangi
rannsóknir til að skoða magn E. coli
í nautakjöti. Bent er á að mestur
fjöldi E. coli mældist í kjöti sem
var rakin til búa þar sem dýr voru
alin innandyra og þéttleiki þeirra
var mikill og smitleiðir því greiðar.
Á sama tíma segir að á búum
þar sem smit er algengt og notkun
á sýklalyfjum mikið séu líkur á að
nýir stofnar baktería myndist.
Hvað er til ráða?
Víða hefur reynst erfitt að koma í
veg fyrir smit E. coli í kjötvöru. Bent
er á nauðsyn þess að gæta fyllsta
hreinlætis við pökkun, meðhöndlun
og eldun kjötsins. Rannsóknir eru í
gangi um möguleika á að bólusetja
alifugla á eggjastigi og þannig koma
í veg fyrir að bakterían komist inn í
fæðukeðjuna.
Sýkingar í matvælum af völdum
E. coli eru þekktar hér á landi en
sjaldgæfar af völdum innlendra
matvæla og er það góðu eftirliti að
þakka. Vitað er að þær hafa borist
hingað til lands með matvælum
erlendis frá.
/VH
Myndavélar
fyrir sauðburðinn
Matvælaframleiðsla í heiminum á víða undir högg að sækja. Bakteríur
og veirur sem valda fuglaflensu og svínapest eru gríðarlegt vandamál
sem sækir í sig veðrið. Veruleg hætta er talin á að fuglaflensa fari
innan skamms að smitast í menn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Í Bandaríkjunum finnast E. coli bakteríur í auknum mæli í kjötvöru.
E. coli á uppleið