Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Í DEIGLUNNI Hringrásarhagkerfið: Úrgangur verður auðlind – Vegvísir um bætta nýtingu lífrænna efna í landbúnaði og landgræðslu lagður í Samráðsgátt Tillögur EFLU verkfræðistofu um bætta nýtingu lífrænna efna í landbúnaði og landgræðslu hafa verið birtar í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Stór hluti næringarefna sem finnast í lífrænum úrgangi og falla til á Íslandi, fara til spillis. Heildarmagn næringarefnanna niturs, fosfórs og kalí í þessum lífræna úrgangi er hins vegar það sama og magn þessara næringarefna sem flutt er til landsins í formi tilbúins áburðar. Þessar tillögur eiga rætur sínar að rekja til vinnu matvælaráðuneytisins á síðasta ári þegar ákveðið var að ráðast í gerð vegvísis um þessa nýtingu sem þörf var fyrir að bæta, meðal annars til að draga úr þörf fyrir innflutningi á áburði og fóðri – og minnka neikvæð loftslagsáhrif. Greining Matís til grundvallar Til grundvallar mati á umfangi lífrænna efna á Íslandi liggur skýrslan „Greining á magni lífrænna áburðarefna á Íslandi og tækifæri til aukinnar nýtingar“ sem unnin var hjá Matís og gefin út í apríl á síðasta ári. Með lögum um bann við urðun á niðurbrjótanlegum úrgangi, sem tóku gildi um síðustu áramót, má búast við að magn þessara efna aukist mjög á næstu misserum sem þarf fljótlega að finna frjóan farveg fyrir. Í skýrslu Matís kemur fram að langmest af næringarefnunum sé að finna í búfjárúrgangi sem almennt sé vel nýttur þó til séu undantekningar. Einnig að mikið magn næringarefna sé að finna í úrgangi frá eldisdýrum eins og í svína- og alifuglarækt og í úrgangi frá fiskeldi, en talið er líklegt að magnið úr slíku eldi fari hratt vaxandi á næstu misserum. Næringarefni í skólpi og seyru eru metin talsverð sem og í matarúrgangi en nýting þeirra efna sé mjög lítil. Þó er varað við því að draga þá ályktun að nóg sé til af næringar- efnum á Íslandi þar sem stór hluti næringarefna í búfjáráburði komi úr innfluttum tilbúnum áburði og kjarnfóðri og einnig ríki óvissa um hversu stór hluti sláturúrgangs og dýrahræja sé nýtanlegur sökum heilbrigðissjónarmiða. Áskorun að verða fullkomlega sjálfbært Í vegvísi EFLU segir enda að það sé ljóst, að á Íslandi sé áskorun að verða fullkomlega sjálfbært um innlendan áburð. Hins vegar sé vel gerlegt að minnka hlutfall hans verulega á næstu árum með því að nýta betur þau næringarefni sem til falla. „Tilbúinn áburður er í mörgum tilfellum framleiddur í löndum þar sem notast er við óendurnýjanlega orkugjafa enda er stærstur hluti kolefnisspors áburðar frá þeim löndum til kominn vegna framleiðslunnar. Nitur má framleiða úr andrúms- lofti og er í dag unnið að rannsóknum og þróun á umhverfisvænni aðferðum til slíkrar framleiðslu hér á landi. Það hefði víðtæk og jákvæð áhrif ef Ísland yrði sjálfbært um framleiðslu niturs. Lífræn áburðarefni skortir oft nitur. Sé hins vegar hægt að bæta nitri við slík efni verður áburðargildi þeirra mun betra. Niturframleiðsla hér á landi færir okkur einnig nær því að vera óháð innflutningi á tilbúnum áburði. Fosfór er unninn úr námum og er því óendurnýjanleg og tak- mörkuð auðlind. Til að draga úr þörf á innflutningi á fosfór þarf á Íslandi, líkt og í öðrum ríkjum, að leggja áherslu á endurheimt hans úr úrgangsstraumum. Á Íslandi hefur einnig verið lögð áhersla á að veita bændum ráðgjöf varðandi kölkun jarðvegs sem dregur úr þörf á notkun fosfórs og gerir það einnig að verkum að fosfórinn er ekki eins bundinn í jarðveginum og nýtist þar af leiðandi betur,“ segir í vegvísinum. Aðgerðir flokkaðar niður eftir flækjustigi og kostnaði Í vegvísinum eru lagðar til 28 aðgerðir og þær flokkaðar niður eftir því hversu fýsilegar þær þykja; hversu flóknar þær eru í framkvæmd og kostnaðarsamar. Þær byggja á tillögum sem komu fram á fundum með hagsmunaaðilum frá stofnunum matvælaráðuneytisins. Brýnt er talið að nýta þurfi mun betur þau lífrænu efni sem til falla hér á landi á næstu árum og áratugum. Það muni koma í veg fyrir neikvæð loftslagsáhrif og mengun vegna förgunar þeirra en einnig draga úr þörf á innflutningi áburðar og fóðurs – sem hafi áhrif á fæðuöryggi landsins. Kjötmjöl og kjúklingaskítur Gróflega er áætlað hversu mikið af mismunandi lífrænum efnum sé ónýtt í dag og mat lagt á hvað sé auðveldast að auka nýtingu á. Niðurstaðan er sú að kjötmjöl, hrossatað, kjúklingaskítur og bokashi-molta er talið vera auðveldast að nýta meira og betur. Þetta séu efni sem séu þurrari en önnur efni og því ekki eins kostnaðarsöm í flutningum og þau sem innihalda mikið vatn. Þessi efni eru þó misnæringarmikil, til að mynda sé hrossatað ekki næringarríkt en það sé kjúklingaskítur hins vegar. Ekki þurfi að ráðast í kostnaðarsama innviðauppbyggingu til að auka nýtingu þessara efna, þótt nýtingunni fylgi alltaf flutningskostnaður. Þau efni sem þurfa meiri fyrirhöfn áður en hægt er að auka nýtingu þeirra eru svínaskítur, svartvatn (salernisskólp), seyra, hliðarafurðir sláturhúsa og fiskeldismykja. Mikilvæg þróun á áburðarefnum frá fiskeldi Aukin nýting á þessum efnum í áburðarskyni kalli á nýsköpun, auknar rannsóknir, skipulag og uppbyggingu innviða en ekki síður á samstarf stofnana, ráðuneyta, einkaaðila og annarra íbúa í landinu. Sumar af þeim aðgerðum sem þarf að ráðast í séu kostnaðarsamar og krefjist mikils undirbúnings, en aðrar séu vel þekktar aðferðir og auðveldari í framkvæmd. Sérstaklega er tiltekið að þörf sé á því að haldið verði áfram að þróa og rannsaka aðferðir til framleiðslu á áburðarefnum úr úrgangi frá fiskeldi, en fyrirsjáanleg eru aukin umsvif í þeirri grein. Í kaflanum um eftirfylgni og næstu skref kemur fram að á fundum hagsmunaaðila hafi verið til umræðu hvernig tryggja megi áframhaldandi samstarf og hvaða vettvangur væri hentugastur til þess. Mikilvægt sé að leita til þeirra aðila sem eru búnir að þróa ýmsar lausnir í nýtingu lífrænna efna, eins og bænda og rekstraraðila, að þeir verði hluti af samtalinu sem fram fer í kjölfar þessarar vinnu. Hluti af lausninni er hringrásarhagkerfið Vegvísirinn er einnig angi af stefnu íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og í samræmi við það markmið að ná kolefnishlutleysi árið 2040. Hluti af þeirri lausn birtist í stefnunni „Í átt að hringrásarhagkerfi“ sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra gaf út árið 2021 og gildir til ársins 2032. Stýrihópur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vinnur að framgangi stefnunnar. Vegvísirinn verður mikilvægur þáttur við innleiðingu hringrásar- hagkerfisins. Honum er einnig ætlað að nýtast í vinnu við mótun stefnu og aðgerðaáætlana fyrir matvæli, landbúnað, landgræðslu, skógrækt, fiskeldi og sjávarútveg. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Kjötmjöli dreift. Talið er að auðvelt sé að nýta það meira og betur. Langmest af næringarefnunum er að finna í búfjárúrgangi sem almennt er vel nýttur þó til séu undantekningar. Mynd / Landgræðslan Tilgangur vinnunnar við vegvísinn er að draga úr þörf fyrir innflutningi á áburði og fóðri – og minnka neikvæð loftslagsáhrif. Mynd / Bbl Sáðvörurnar færðu hjá okkur Fjölbreytt og gott úrval Sláturfélag Suðurlands Fosshálsi 1, Reykjavík - 575 6070 buvorur@ss.is - www.buvorur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.