Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Í DEIGLUNNI
Hringrásarhagkerfið:
Úrgangur verður auðlind
– Vegvísir um bætta nýtingu lífrænna efna í landbúnaði og landgræðslu lagður í Samráðsgátt
Tillögur EFLU verkfræðistofu
um bætta nýtingu lífrænna efna
í landbúnaði og landgræðslu
hafa verið birtar í Samráðsgátt
stjórnvalda til umsagnar. Stór
hluti næringarefna sem finnast
í lífrænum úrgangi og falla til á
Íslandi, fara til spillis.
Heildarmagn næringarefnanna
niturs, fosfórs og kalí í þessum
lífræna úrgangi er hins vegar það
sama og magn þessara næringarefna
sem flutt er til landsins í formi
tilbúins áburðar.
Þessar tillögur eiga rætur sínar að
rekja til vinnu matvælaráðuneytisins
á síðasta ári þegar ákveðið var að
ráðast í gerð vegvísis um þessa
nýtingu sem þörf var fyrir að bæta,
meðal annars til að draga úr þörf
fyrir innflutningi á áburði og fóðri
– og minnka neikvæð loftslagsáhrif.
Greining Matís til grundvallar
Til grundvallar mati á umfangi
lífrænna efna á Íslandi liggur
skýrslan „Greining á magni lífrænna
áburðarefna á Íslandi og tækifæri
til aukinnar nýtingar“ sem unnin
var hjá Matís og gefin út í apríl á
síðasta ári. Með lögum um bann við
urðun á niðurbrjótanlegum úrgangi,
sem tóku gildi um síðustu áramót,
má búast við að magn þessara efna
aukist mjög á næstu misserum
sem þarf fljótlega að finna frjóan
farveg fyrir.
Í skýrslu Matís kemur fram að
langmest af næringarefnunum sé að
finna í búfjárúrgangi sem almennt sé
vel nýttur þó til séu undantekningar.
Einnig að mikið magn næringarefna
sé að finna í úrgangi frá eldisdýrum
eins og í svína- og alifuglarækt og
í úrgangi frá fiskeldi, en talið er
líklegt að magnið úr slíku eldi fari
hratt vaxandi á næstu misserum.
Næringarefni í skólpi og seyru eru
metin talsverð sem og í matarúrgangi
en nýting þeirra efna sé mjög lítil.
Þó er varað við því að draga þá
ályktun að nóg sé til af næringar-
efnum á Íslandi þar sem stór hluti
næringarefna í búfjáráburði komi
úr innfluttum tilbúnum áburði og
kjarnfóðri og einnig ríki óvissa um
hversu stór hluti sláturúrgangs og
dýrahræja sé nýtanlegur sökum
heilbrigðissjónarmiða.
Áskorun að verða
fullkomlega sjálfbært
Í vegvísi EFLU segir enda að það
sé ljóst, að á Íslandi sé áskorun
að verða fullkomlega sjálfbært
um innlendan áburð. Hins vegar
sé vel gerlegt að minnka hlutfall
hans verulega á næstu árum með
því að nýta betur þau næringarefni
sem til falla. „Tilbúinn áburður er
í mörgum tilfellum framleiddur
í löndum þar sem notast er við
óendurnýjanlega orkugjafa enda er
stærstur hluti kolefnisspors áburðar
frá þeim löndum til kominn vegna
framleiðslunnar.
Nitur má framleiða úr andrúms-
lofti og er í dag unnið að rannsóknum
og þróun á umhverfisvænni aðferðum
til slíkrar framleiðslu hér á landi.
Það hefði víðtæk og jákvæð áhrif ef
Ísland yrði sjálfbært um framleiðslu
niturs. Lífræn áburðarefni skortir oft
nitur. Sé hins vegar hægt að bæta
nitri við slík efni verður áburðargildi
þeirra mun betra. Niturframleiðsla
hér á landi færir okkur einnig nær
því að vera óháð innflutningi á
tilbúnum áburði.
Fosfór er unninn úr námum
og er því óendurnýjanleg og tak-
mörkuð auðlind. Til að draga úr
þörf á innflutningi á fosfór þarf á
Íslandi, líkt og í öðrum ríkjum, að
leggja áherslu á endurheimt hans
úr úrgangsstraumum. Á Íslandi
hefur einnig verið lögð áhersla á
að veita bændum ráðgjöf varðandi
kölkun jarðvegs sem dregur úr
þörf á notkun fosfórs og gerir það
einnig að verkum að fosfórinn er
ekki eins bundinn í jarðveginum og
nýtist þar af leiðandi betur,“ segir í
vegvísinum.
Aðgerðir flokkaðar niður eftir
flækjustigi og kostnaði
Í vegvísinum eru lagðar til 28
aðgerðir og þær flokkaðar niður
eftir því hversu fýsilegar þær þykja;
hversu flóknar þær eru í framkvæmd
og kostnaðarsamar. Þær byggja á
tillögum sem komu fram á fundum
með hagsmunaaðilum frá stofnunum
matvælaráðuneytisins.
Brýnt er talið að nýta þurfi
mun betur þau lífrænu efni sem til
falla hér á landi á næstu árum og
áratugum. Það muni koma í veg
fyrir neikvæð loftslagsáhrif og
mengun vegna förgunar þeirra en
einnig draga úr þörf á innflutningi
áburðar og fóðurs – sem hafi áhrif
á fæðuöryggi landsins.
Kjötmjöl og kjúklingaskítur
Gróflega er áætlað hversu mikið
af mismunandi lífrænum efnum
sé ónýtt í dag og mat lagt á hvað
sé auðveldast að auka nýtingu
á. Niðurstaðan er sú að kjötmjöl,
hrossatað, kjúklingaskítur og
bokashi-molta er talið vera
auðveldast að nýta meira og betur.
Þetta séu efni sem séu þurrari
en önnur efni og því ekki eins
kostnaðarsöm í flutningum og þau
sem innihalda mikið vatn. Þessi
efni eru þó misnæringarmikil, til að
mynda sé hrossatað ekki næringarríkt
en það sé kjúklingaskítur hins vegar.
Ekki þurfi að ráðast í kostnaðarsama
innviðauppbyggingu til að auka
nýtingu þessara efna, þótt nýtingunni
fylgi alltaf flutningskostnaður.
Þau efni sem þurfa meiri fyrirhöfn
áður en hægt er að auka nýtingu
þeirra eru svínaskítur, svartvatn
(salernisskólp), seyra, hliðarafurðir
sláturhúsa og fiskeldismykja.
Mikilvæg þróun á
áburðarefnum frá fiskeldi
Aukin nýting á þessum efnum í
áburðarskyni kalli á nýsköpun,
auknar rannsóknir, skipulag og
uppbyggingu innviða en ekki síður
á samstarf stofnana, ráðuneyta,
einkaaðila og annarra íbúa í landinu.
Sumar af þeim aðgerðum sem þarf
að ráðast í séu kostnaðarsamar og
krefjist mikils undirbúnings, en
aðrar séu vel þekktar aðferðir og
auðveldari í framkvæmd.
Sérstaklega er tiltekið að þörf sé
á því að haldið verði áfram að þróa
og rannsaka aðferðir til framleiðslu
á áburðarefnum úr úrgangi frá
fiskeldi, en fyrirsjáanleg eru aukin
umsvif í þeirri grein.
Í kaflanum um eftirfylgni og
næstu skref kemur fram að á fundum
hagsmunaaðila hafi verið til umræðu
hvernig tryggja megi áframhaldandi
samstarf og hvaða vettvangur væri
hentugastur til þess. Mikilvægt sé að
leita til þeirra aðila sem eru búnir að
þróa ýmsar lausnir í nýtingu lífrænna
efna, eins og bænda og rekstraraðila,
að þeir verði hluti af samtalinu sem
fram fer í kjölfar þessarar vinnu.
Hluti af lausninni er
hringrásarhagkerfið
Vegvísirinn er einnig angi af stefnu
íslenskra stjórnvalda um samdrátt
í losun gróðurhúsalofttegunda og
í samræmi við það markmið að ná
kolefnishlutleysi árið 2040. Hluti
af þeirri lausn birtist í stefnunni
„Í átt að hringrásarhagkerfi“ sem
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra gaf út árið
2021 og gildir til ársins 2032.
Stýrihópur Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar umhverfis-, orku-
og loftslagsráðherra vinnur að
framgangi stefnunnar.
Vegvísirinn verður mikilvægur
þáttur við innleiðingu hringrásar-
hagkerfisins. Honum er einnig ætlað
að nýtast í vinnu við mótun stefnu
og aðgerðaáætlana fyrir matvæli,
landbúnað, landgræðslu, skógrækt,
fiskeldi og sjávarútveg.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Kjötmjöli dreift. Talið er að auðvelt sé að nýta það meira og betur. Langmest af næringarefnunum er að finna í
búfjárúrgangi sem almennt er vel nýttur þó til séu undantekningar. Mynd / Landgræðslan
Tilgangur vinnunnar við vegvísinn er að draga úr þörf fyrir innflutningi á
áburði og fóðri – og minnka neikvæð loftslagsáhrif. Mynd / Bbl
Sáðvörurnar færðu hjá okkur
Fjölbreytt og gott úrval
Sláturfélag Suðurlands
Fosshálsi 1, Reykjavík - 575 6070
buvorur@ss.is - www.buvorur.is