Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 29
29Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Hvað er :
Glúten?
Glúten er prótein sem er að finna
í kornvörum, eins og hveiti, byggi,
rúgi og flestum höfrum. Glúten er
límið sem heldur brauði saman
og veldur meltingartruflunum hjá
einstaklingum með glútenóþol. Þar
sem áðurnefndar kornvörur eru
notaðar í fjölmörg matvæli, leynist
glúten í mjög mörgum vörum.
Hveiti er algengasta kornvaran sem
inniheldur glúten og er brauð ein
helsta birtingarmynd þess. Hveiti
er einnig að finna í pasta, núðlum,
morgunkorni, súpum, sósum, snakki,
kjötbollum, fiskibollum og fleira. Enn
fremur er afar algengt að hveiti sé
innihaldsefni í nammi, eins og hlaupi
og lakkrís. Eitt aðalinnihaldsefni
hefðbundinnar sojasósu er hveiti.
Þar sem hveiti er gagnlegt og
aðgengilegt efni við framleiðslu
þarf fólk með glútenóþol að skoða
innihaldslýsingar flestra unninna
matvæla. Ofnæmis- og óþolsvaldar
eiga að vera feitletraðir á merkingum
sem gerir fljótlegra að sjá þá.
Bygg eitt og sér er notað í grauta
og matagerð. Það finnst einnig oft
í morgunkorni eins og Corn Flakes
og Rice Crispies. Enn fremur er
byggmaltþykkni innihaldsefni sem
gjarnan er notað í konfekt og nammi.
Bygg er eitt aðalinnihaldsefni bjórs
og malts og þurfa einstaklingar með
glútenóþol að forðast þessa drykki.
Því gruggugri sem bjórinn er því
líklegra er að hann innihaldi meira
glúten. Þar sem sum brugghús
sækjast eftir að hafa sína bjóra tæra
eru þær aðferðir sem þau nota oft
að skila sér í glútenlausum bjór.
Þar má annars vegar nefna notkun
ensíma sem bætt er út í bjórinn
þegar hann gerjast og er auðvelt
að nota við heimabrugg. Stærri
brugghús nota hins vegar skilvindu
sem hreinsar burt gruggið – og
þar með glútenið. Úrval glútenfrís
bjórs hefur aukist undanfarin ár og
hefur Bændablaðið heimildir fyrir
því að ákveðin brugghús taki ekki
fram á mörgum bjórum að þeir séu
glútenlausir, þó þeir séu í raun búnir
að fá sömu meðferð og bjórar sem
markaðssettir eru sem slíkir. Viskí
er bruggað úr möltuðu byggi, en við
eiminguna hverfur allt glútenið.
Í upphafi var nefnt að flestir hafrar
innihéldu glúten, en þessi planta
framleiðir ekki glúten af náttúrunnar
hendi. Ræktun á höfrum á sér hins
vegar stað í miklu návígi við ræktun
á hveiti, byggi og rúgi, og er gjarnan
notaður sami tækjabúnaður við
þreskingu og vinnslu. Krosssmit er
því mikið og má gera ráð fyrir að
hafrar innihaldi glúten nema annað
sé tekið fram. Hafra má helst finna
í hafragraut, morgunkorni, brauði,
kexi, ásamt lifrar- og blóðpylsum.
Rúgur er líklegast óalgengasta korn-
tegundin af þeim sem nefndar eru
hér að ofan. Þó er hægt að finna
hann í matvörum eins og rúgbrauði,
brauði, lifrarpylsum og fleira. Þegar
viskí er bruggað úr rúgi, verður
glútenið eftir við eiminguna, rétt eins
og með bygg.
Algengt er að fólk rugli saman
glúteni og sterkju, en þetta er
sitt hvor hluturinn. Glúten er ekki
að finna í matvælum eins og
kartöflum, hrísgrjónum og maís.
Maíssterkja kemur sér vel í staðinn
fyrir hveiti þegar þykkja á sósu.
Úrval glútenlausra matvæla eykst
með hverju ári, en í flestum
matvöruverslunum finnst glúten-
laust brauð, pasta, kex o.fl.
Ekki verður farið út í skilgreiningu
á glútenóþoli, en engin lækning er
til við þessum sjúkdómi og verður
því ákveðinn hópur fólks að sneiða
hjá glúteni allt sitt líf til að forðast
veikindi. Rétt er að benda á að
glútenóþol er ekki það sama og
laktósaóþol eða vegan. /ÁL
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt að nýtt íþróttahús
verði byggt í sveitarfélaginu.
Núverandi íþróttamiðstöð,
Heiðarborg, var byggt árið 1968
og er tæpir 530 fm auk 257 fm
sundlaugarhúss. Nýja húsnæðið
verður fjölnota íþróttahús ásamt
stoðrýmum, s.s. búningsklefum og
annarri aðstöðu, við Heiðarborg.
Húsið verður með keppnissal,
löglegum körfuboltavelli, blak- og
badmintonvöllum auk þess sem unnt
verður að spila hand- og fótbolta þar
ásamt fjölda annarra íþrótta. Í húsinu
verða áhorfendabekkir, skiptitjald,
kaðlabrautir og keppnisklukka.
Umgjörð hússins og salurinn er
jafnframt hannaður til viðburða og
veisluhalda. „Með ört stækkandi
samfélagi er kominn tími á byggingu
stærra íþróttahúss sem tekið getur
á móti fjölbreyttara íþrótta- og
tómstundastarfi, auk þess að standast
kröfur samtímans hvað varðar alla
aðstöðu og aðbúnað. Nýja húsið
verður 1.834 fm að stærð og byggt
við núverandi íþróttamiðstöð
sem er staðsett við grunnskólann
Heiðarskóla við Leirá,“ segir
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri
Hvalfjarðarsveitar.
Linda segir að útboð vegna
hússins verði fljótlega auglýst.
Framkvæmdir muni hefjast fljótlega
eftir undirritun verksamnings og
verklok eru áætluð 1. ágúst 2024.
„Nýja húsið verður eins og gefur
að skilja bylting, ekki bara fyrir
íþróttakennslu skólans heldur einnig
alla möguleika til aukins íþrótta- og
tómstundastarfs í sveitarfélaginu
enda um að ræða 1.050 fermetra
stækkun frá núverandi íþróttahúsi
og sundlaug. Stækkun íþróttasalarins
eru 737 fermetrar frá núverandi sal
þannig að aðstöðumunurinn verður
mikill. Það er mikil tilhlökkun
hjá okkur að fá nýtt og vel útfært
mannvirki sem mun nýtast vel og
uppfylla þarfir sveitarfélagsins og
íbúa þess til næstu áratuga, hvort sem
er fyrir skóla-, íþrótta-, tómstunda-,
félags- eða samkomustarf. Vonandi
munu sem flestir nýta sér aðstöðuna
þegar til kemur, hvort sem það
eru íbúar, gestir, íþróttafélög,
félagasamtök eða aðrir sem á þurfa
að halda,“ bætir Linda við.
Heildarkostnaður við nýja húsið
er áætlaður 1,2 milljarðar króna og
er þá innifalin jarðvinna, ytri og innri
frágangur, lóðagerð og búnaður.
/mhh
Byggja nýtt íþróttahús í Hvalfjarðarsveit