Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
VIÐTAL
Þau Kristín og Bjarni byrjuðu ekki
í hestamennsku fyrr en í kringum
fertugt. Bæði höfðu þau verið í sveit
þegar þau voru yngri en aldrei neitt
í kringum hross. Árið 2004 fara þau
í fyrstu hestaferðina sína og eignast
fyrsta hestinn sinn. Þá fór boltinn að
rúlla. „Sumarið 2004 hringja tvenn
vinahjón okkar og bjóða okkur með
í hestaferð. Þau höfðu hringt tvisvar
sinnum áður og við alltaf neitað. Í
þetta sinn sögðu þau að ef við kæmum
ekki með núna þá yrði okkur aldrei
boðið með aftur, svo við létum slag
standa og fórum með þeim í átta
daga hestaferð,“ segir Bjarni en á
þessum tíma bjuggu þau í Sviss
þar sem þau voru í framhaldsnámi
í tannlækningum. „Gréta Rut, dóttir
okkar, var búin að vera á hestbaki á
stórum hestum í Sviss og var alveg
hestasjúk. Ég var ólétt og gat því
ekki setið hest og var rosalega glöð
að þurfa ekki að koma nálægt þeim.
Fannst þetta hálf ógnvænlegt allt
saman,“ segir Kristín.
Hestaferðin gekk vel þrátt fyrir
reynsluleysi hjónanna. Þegar þau
lentu á Keflavíkurflugvelli brunuðu
þau beinustu leið í Eystra-Fróðholt
í Vestur-Landeyjum, þar sem Ársæll
Jónsson hrossaræktandi og kona hans,
Anna Fía Finnsdóttir, búa en Anna Fía
og Bjarni eru systkinabörn.
Þar fengu þau lánaða nokkra hesta
og varð eitt hrossið í hópnum í eigu
þeirra í lok ferðarinnar.
„Ég ímyndaði mér að þetta væri
bara eins og hringja í bílaleiguna Hertz
og panta átta hesta í átta daga. Það
virkaði náttúrlega alls ekki þannig,“
segir Bjarni og hlær. Í hópnum var
grá hryssa sem Gréta Rut heillaðist
af og varð að eignast. Samdi hún við
pabba sinn um að gefa sér hryssuna
sem hann jánkaði. „Þarna var Heimir
sonur okkar árinu yngri og þriðja
barnið á leiðinni. Það var ekki hægt
að kaupa hest handa öðru barninu en
ekki hinu. Þannig hún var látin borga
hryssuna sjálf og það tók hana tæp tvö
ár,“ bætir Kristín við. Schneeglocke
var nafnið á hryssunni til að byrja
með enda þýskan allsráðandi í þeirra
umhverfi í Sviss en var síðar þýtt yfir
í Snjóbjöllu.
Eftir þetta fóru þau Bjarni og
Kristín alltaf í eina hestaferð á ári
þar til þau fluttu aftur til Íslands.
„Við komum því inn í hesta-
mennskuna sem ferðaáhugafólk
enda vön hálendisferðum á jeppum
og snjósleðum. Við fórum í aðra ferð
árið 2005 en á þessum tíma vissum við
ekkert að hestaferðir gætu verið tveir
eða þrír dagar því þá var farið í fjórtán
daga ferð. Farið upp Arnarvatnsheiði
og norður í land og Kjöl til baka.
Ég ákvað að taka þátt í slíkri ferð,
með Tryggva sjö mánaða á brjósti.
Það voru allir af vilja gerðir til að
hjálpa og ég fékk einhverja hesta
lánaða. Ég skildi ekki af hverju allir
sátu afslappaðir á baki á meðan ég
var í loftköstum, með 20 cm á milli
mín og hestsins, en ég kunni ekkert
að láta hest tölta. Ég man voða lítið úr
þessari ferð af landslagi og einhverju
svoleiðis og drengurinn fékk bara
rjóma að drekka,“ segir Kristín.
Kaupin handsöluð við
eldhúsborðið
Árið 2008 eru þau bæði komin aftur
til Íslands eftir Svissdvölina og eiga
orðið fimm hesta og leigja sér stíur,
fyrst í Heimsenda í Kópavogi og
síðan í Sörla í Hafnarfirði. Lífið í
hesthúsahverfinu fór að vera þeim
íþyngjandi vegna tímaskorts og þau
þurftu að leita sér annarra leiða til að
halda áfram að stunda hestamennsku.
„Þarna áttum við Snjóbjöllu og
Svaða, sem er hestur sem allir sem eru
að byrja í hestamennsku verða að eiga.
Hann tölti út í eitt, lyfti ekki fótunum,
en algjör töltmylla,“ segir Kristín og
Bjarni bætir við: „Við mættum eftir
vinnu til að hreyfa hestana til að
koma þeim í form fyrir sleppitúr eða
hestaferðir. Mér reyndar fannst þessi
nálgun alltaf rosalega skrítin. Taka
inn í desember eða janúar þegar það
er myrkur, snjór og leiðindi. Hreyfa
þá um veturinn kannski fram í maí.
Fara þá í sleppitúr austur fyrir fjall
og jafnvel sleppa og sjá þá ekki meir
fyrr en í janúar á næsta ári. Þá er
hesturinn úti á túni alla bestu mánuði
ársins. Þetta fannst mér vera rosalega
ólógískt en ég er kannski bara
óþarflega lógískur í hugsun,“ segir
Bjarni.„Við vinnum líka óþarflega
mikið og langa vinnudaga. Þegar við
komum upp í hesthús var oft búið
að gefa hrossunum. Krakkarnir voru
ekki allir í hestunum svo þetta var
aðeins farið að hafa tvístrandi áhrif á
okkur fjölskylduna. Hestamennskan
var því ekki alveg sú slökun sem hún
átti að vera.“
Á þessum tímapunkti fara hjónin
að velta fyrir sér að kannski væri betra
að fá sér þjálfara sem myndi þjálfa
hrossin og þau gætu komið um helgar
og riðið út.
„Þegar ég var kominn með
þessa hugmynd í hausinn að kaupa
einhverja aðstöðu sem ber þjálfara
er okkur bent á Hjarðartún. Ég heyri
í Óskari Eyjólfssyni, fyrrum eiganda
Hjarðartúns, og hittumst við þremur
vikum seinna. Við setjumst niður við
eldhúsborðið heima og náðum bara
lendingu þarna á einum eftirmiðdegi
heima á Laugarásveginum,“ segir
Bjarni og bætir við að eftir að
Kristín sá vel heppnað íbúðarhúsið
í Hjarðartúni þá var ekki aftur
snúið. Á endanum keyptu þau
ekki bara Hjarðartún heldur flestar
ræktunarhryssurnar hans Óskars
ásamt nokkrum öðrum hrossum, það
gerðist þó í nokkrum áföngum.
Rúmum 11 árum eftir að hafa farið
í fyrsta sinn á hestbak eru þau Kristín
og Bjarni búin að eignast eitt fremsta
ræktunarbú landsins í dag, Hjarðartún,
sem er við austurbakka Eystri-Rangár
í Hvolhreppi. Þau búa bæði þar sem
og í Reykjavík þar sem þau reka
tannlæknastofuna Valhöll. Kristín er
sérmenntuð í tannréttingum og Bjarni
í munn- og tanngervalækningum sem
og tannholdslækningum. „Best að
útskýra þetta þannig að ef þú færð
tannpínu er ég ekki rétta addressan
en ef þú ert sleginn af hrossi og tapar
öllum framtönnunum þá talarðu
við mig,“ segir Bjarni en bæði eru
þau einnig að kenna við Háskóla
Íslands, Bjarni er prófessor við
Tannlæknadeild HÍ og Kristín lektor.
„Við kunnum rosalega vel
við okkur hérna í Hjarðartúni og
draumurinn er auðvitað að í staðinn
fyrir að vera í bænum að vinna
meirihluta vikunnar að snúa því
við,“ segir Bjarni og Kristín bætir
við „Það er vandamál í mínu fagi að
það er skortur á sérfræðingum. Ég
gæti alveg séð fyrir mér að vera bara
hér og kenna síðan með en við höfum
bæði gaman af kennslunni.“
Horfir mikið í tölfræðina
Við rekstur hrossaræktarbús er margt
sem þarf að huga að og á stóru búi er
í mörg horn að líta. Er eitthvað sem
kom þeim á óvart eftir að þau byrjuðu
í rekstrinum?
„Mér finnst svolítið gott grín
sem ég heyrði einu sinni að til
þess að verða milljónamæringur
af hrossarækt að þá þarftu að vera
milljarðamæringur þegar þú byrjar.
Það er kannski eitthvað til í þessu,“
segir Bjarni í kímni. „Ég er svolítið
eins og lest á teinum en við erum með
ákveðið langtímaplan í kollinum og
förum bara eftir því. Eins og er hefur
allt gengið samkvæmt áætlun. Mér
finnst líka fegurðin við hrossaræktina
að hafa þennan vinkil lífinu sem
gengur frekar hægt fyrir sig. Lífið
gengur svo hratt; áður en þú veist
af eru komin aftur jól og síðan aftur
sumar en með hrossaræktina, þú parar
hryssu við hest og þarft síðan að bíða
í fimm ár eftir því að sjá fyrstu merki
um niðurstöðuna.“
Hrossaræktin er Bjarna hugleikin
og hefur hann ef til vill öðruvísi
sýn á ræktunina en margur annar.
„Hann er algjörlega búinn að missa
sig í WorldFeng en þarna opnaðist
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
Rækta ekki tilviljunargæðinga
– Kristín Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pjetursson urðu verðlaunahrossaræktendur ellefu árum eftir fyrstu hestaferðina
Verðlaunahrossaræktendur í Hjarðartúni. Bjarni Elvar Pjetursson heldur
í Svaða frá Hjarðartúni, 5 vetra, undan Dögun frá Hjarðartúni og Hring frá
Gunnarsstöðum og Kristín Heimisdóttir heldur í Sindra frá Hjarðartúni, 8
vetra, undan Dögun frá Hjarðartúni og Stála frá Kjarri. Á milli þeirra situr
tíkin Loppa. Mynd / HF
Hjarðartún er staðsett við austurbakka Eystri-Rangár í Hvolhreppi.
Snjóbjalla og Tryggvi, yngsti sonur
hjónanna. Mynd / Lárus Karl Ingason
Það var kaldur sunnudagsmorgunn þegar ég hitti hjónin Kristínu
Heimisdóttur og Bjarna Elvar Pjetursson, í hesthúsinu í Hjarðartúni
í Hvolhreppi. Það er ekki að sjá á þeim að þau hafi verið að klára 20
kílómetra skíðagöngu deginum áður. Við setjumst niður við eldhúsborðið
í kaffistofunni og ræðum lífið og tilveruna og hvernig það gerist að tveir
sérfræðingar í tannlækningum ákveða að hella sér af fullum krafti í
hrossaræktina.
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is