Bændablaðið - 04.04.2023, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Það er að mörgu að hyggja þegar
nálgast fer sauðburð og getur verið
gott að setjast niður með kaffibollann
og hugsa hvað það nú var í fyrra sem
algjörlega vantaði.
Er heitt vatn í húsunum?
Og hitakúturinn í lagi?
Innkaup og undirbúningur
Ýmis tæki, tól og búnaður sem gott er
að hafa við höndina þegar sauðburður
hefst því erfitt getur verið á miðjum
háannatíma að ætla sér að safna
aðföngum sem vantar.
• Eitt það einfaldasta og þægilegasta
er að hafa ávallt burðargel við hönd
þegar aðstoða á við burð. Það hjálpar
okkur að athafna okkur og er einnig
betra fyrir ána. Hugum að því að hafa
nægilegt magn af burðargeli til fyrir
sauðburðinn og spörum ekki notkun
á því.
• Einnota hanskar eru nauðsynlegir.
Margir bændur kannast við þurrar og
sprungnar hendur eftir mikið legvatn
og aukna handþvotta. Þá er gott að
smeygja sér í hanska. Einnig eykur það
hreinlæti og getur komið í veg fyrir
sýkingar. Þá eru bæði til stuttir hanskar
og lengri sem ná upp á handlegg og
verja mann enn betur.
• Stífur vír eða burðartöng til að koma
inn fyrir grind og aftur fyrir hnakka
eða eyru lambsins ef aðstoða þarf við
að koma lambinu út. Vír er auðvelt að
þvo og sótthreinsa eftir hverja notkun.
Einnig er hægt að nota sérstök bönd
sem eru mjúk og sveigjanleg og auðvelt
að smokra inn fyrir ef ærin er þröng,
þá ríður á að vera ekki sparsamur á
burðargelið. Mýkja band og eða vír
með burðargeli áður en inn er farið.
Gott er að sjóða böndin reglulega og
sótthreinsa eftir notkun. Baggabönd
geta nýst til nettari aðstoðar og verka.
• Sprauta með stuttri slöngu, hæfilega
stífri en sveigjanlegri til að koma
burðargeli inn fyrir þegar lambið er
orðið mjög þurrt og lítið legvatn er
til staðar.
• Hreint og þurrt handklæði í
hæfilegri stærð til að vefja utan um
lambið eða til að ná betri gripi á
bjórnum á herðakambi þegar erfitt er
að toga lambið út. Til dæmis þegar
afturfótafæðing á sér stað eða það er
einfaldlega erfitt að ná taki á lambinu.
Þannig verður auðveldara að taka á
lambinu á skaðlausan hátt.
• Gott er að hafa einhvers staðar nærri
einhvers konar upphækkun ef þurfa
þykir fyrir ána til að hækka hana að
aftan. Það getur verið ákaflega gagnlegt
þegar ærin er mjög þröng og eða lambið
er komið of langt í fæðingarveginn.
Þá getur einnig verið gott að setja ána
upp á garðaband á plötu eða grind og
þannig hækka hana í vinnuhæð og þá
er auðveldara að athafna sig við erfiðan
burð og aðstoða þarf af kostgæfni.
• Stór sprauta og sonduslanga
til að gefa minni og veikari
lömbum mjólk beint í magann.
Einnig nægilegt magn af túttum
og peli.
• Lítill kollur getur verið þægilegur
þegar mjólka þarf ær eða koma lömbum
á spena. Hægt er að saga lappir af
klassískum kollum og þannig þarf
maður ekki stöðugt að krjúpa eða sitja
á gólfinu, þá getur maður einnig notað
fæturna til að halda að ánni meðan
maður athafnar sig við ána.
• Kassi/hús fyrir undirvaninga. Gott
er að láta lömbin liggja þétt saman sé
verið að venja undir og þannig er líka
komið í veg fyrir að ærin geti snuðrað
og þefað af lömbunum í tíma og
ótíma. Þannig blandast lyktin saman
og ærin ætti að taka lömbin fyrr. Þá
er lítill kassi sem þeim er komið fyrir
í fyrirtaks kostur, hugsa þarf um að
hann lofti vel og lömbin dvelji ekki of
lengi í einu.
• Lambastrætó. Hvernig flytjum við
lömbin til þegar ærin er borin og er
á leið í einstaklingsstíu? Um að gera
að finna þægilegan „strætó/taxa“ fyrir
lömbin sem hægt er að koma þeim fyrir
í og draga á sinn stað, þá þarf maður
ekki að bogra með lömbin. Athugið að
lömbin geti ekki klifrað upp úr honum
á leiðinni, svo hann þarf að vera dálitið
hár en samt þarf ærin að geta fylgst vel
með svo hún fylgi vel á eftir.
• Hvaða lyf þurfa að vera tiltæk
fyrir sauðburð? Hvað vantaði helst
að eiga í fyrra? Klassískt er að hafa í
lyfjaskápnum: sýklalyf af þeim sortum
sem þarf, verkjastillandi, selen, þar
til gerðan brodd fyrir minni fædd og
viðkvæmari lömb. Spenateip ef friða
þarf spena einhverra hluta vegna.
Joðlausn í góðum brúsa á naflastreng
og ab-mjólk fyrir ónæmiskerfið. Gott
að huga að því hvernig skal gefa ab
mjólkina inn þannig að það sé bæði
fljótlegt og þægilegt.
• Fyrir utanumhaldið um allt sem þarf
að hafa nálægt er gott að setja það allt
saman í kassa eða körfu/tösku sem
auðvelt er að taka með sér um húsin.
Þá er handhægara að leggja hluti frá sér
og vinna með.
• Einnig þarf að eiga nægt magn af
sprautum og nálum fyrir stungulyf.
Þetta geymist milli ára og allt í lagi að
eiga meira en minna.
• Lítil stíf blöð í mörgum litum og
teiknibólur. Gott getur verið að skilja
eftir skilaboð á garðabandi þar sem
hægt er að skrá ákveðnar upplýsingar
um einstaklinga. Þannig er hægt
að litarflokka eftir því hve áríðandi
skilaboðin eru.
• Tússtafla og tússar sem hengja má
upp þar sem allir geta séð og þar er
einnig hægt að skilja eftir mikilvæg
skilaboð sem þarf að skrá eða koma á
framfæri.
Eftirlitið
Hvernig á eftirliti að vera háttað þetta
árið? Ef skoða á að setja upp þar til
gert myndavélarkerfi þarf að huga að
því í tíma.
Athuga hvaða framboð er af
vefmyndavélum og hvað hverjum
og einum hugnast í þeim efnum.
Myndavélakerfi koma að ákaflega
góðum notum í upphafi sauðburðar
og lok. Þá er ekki endilega full við-
vera í húsunum og gott getur verið
að spara sér ferðina í húsin og kíkja
á myndavélarnar til að athuga hvort
eitthvað sé um að vera. Þannig er líka
hægt að láta vélarnar taka upp það sem
gerist í fjárhúsunum og þannig hægt að
varpa ljósi á annars dularfullar aðstæður
sem gætu komið upp. Staðsetning
vélanna þarf að vera á þann hátt að
hægt sé að sjá sem stærstan hluta af
húsunum, jafnvel er hægt að snúa
sumum vélum og þysja að til að sjá
betur hvort lamb ber rétt að.
Um að gera að prufakeyra kerfið
og vera með það tilbúið þegar fyrstu
ærnar bera til að auðvelda sér fyrstu
skrefin í sauðburðinum. Með slíku
eftirliti má spara nokkra fýluferðina
í fjárhúsin þegar ekkert er um að vera
og þannig spara þrekið fyrir komandi
vikur. Á sama hátt má fyrr hvíla sig og
sofa rólegar þegar slíkt kerfi er fyrir
hendi þegar líða fer á sauðburðinn og
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Sviðsstjóri
fjármála &
framkvæmda
Viltu vinna að spennandi verkefnum
allt í kringum Vatnajökul?
Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir að
ráða sviðsstjóra fjármála og fram-
kvæmda. Viðkomandi ber ábyrgð á
fjárhagslegum rekstri og áætlanagerð
og situr að auki í stjórnendateymi
Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðurinn
býður góða starfsaðstöðu víðsvegar
um landið þar sem samheldinn og
fjölbreyttur hópur starfar en starfið er
auglýst óháð staðsetningu.
Nánari upplýsingar er að finna hjá Hagvangi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2023.
Það styttist í
sauðburðinn
Sælleg og stolt tvílemba sem hefur það ákaflega gott. Mynd /AGG
Hreinlæti skiptir sköpum þegar vanda skal til verka
á sauðburði. Mynd /AGG
Áhugasöm tvílemba að viðra sig. Mynd /GHG Allir sáttir eftir átökin. Mynd /GHG
Allir verða aðeins þreyttir á sauðburði
og gott getur verið að lygna aðeins aftur
augunum. Mynd /GHG