Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 66
66 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
LESENDARÝNI
Greinin fjallar
um nákvæmustu
ú t r e i k n i n g a
á þessu sviði
sem ég nokkru
sinni hef séð.
Gagnamagnið að
baki útreikningum
er nánast ólýsandi
að umfangi.
Þarna eru nýttar
upplýsingar, mismiklar eftir eiginleikum
og tímabilum, fyrir rúmlega 154 þúsund
naut og rúmlega 33 milljónir kúa. Eru
gögnin samt áður búin að fara í gegnum
fjölmargar síur til að tryggja gæði eins
og krafist er af virtum vísindagreinum
sem birtar eru þar í landi. Rannsóknir
af þessu umfangi fyrir mjólkurkýr geta
engir aðrir en bandarískir vísindamenn
unnið og þar í landi er vagga allrar
vísindalegrar fræðimennsku að baki
þeim. Nákvæmni útreikninganna
reiknar m.a. árlegar breytingar fyrir
framleiðslugetu mjólkurmagns og
mismunandi mælikvarða þar um
með nákvæmni upp á brot af kg hjá
svartskjöldóttu kúnum sem yfirgnæfa
gagnamagnið.
Framleiðsluumhverfi þekki ég ekki
af eigin raun heldur aðeins af lestri
fræðibóka og mest tímaritsgreina
hliðstæðra þessari sem hér um ræðir. Það
sem hér segir byggir því á að endursegja
glefsur og gullmola úr greininni þó að
á einstaka stöðum leyfi ég mér aðeins
að skoða niðurstöður með hliðsjón af
hliðstæðum hlutum hér á landi.
Bandarísk mjólkurkúakyn
Útreikningarnir ná til allra
mjólkurkúakynja þar í landi sem hafa
mótuð ræktunarmarkmið en það eru
Ayrshire sem á skoskan uppruna,
Ermasundseyjakynin Guernsey og
Jersey, brúnu svissnesku kýrnar og að
lokum svartskjöldóttu kýrnar sem oft
eru nefndar Holstein þar vestra. Uppruni
svartskjöldóttu kúnna er í Hollandi en
þær dreifðar um allan heim og þá oft
undir heitinu Frisian.
Hlutdeild kynjanna er ákaflega
breytileg vegna þess að tæp 91%
kúnna eru af Holstein kyninu eða
tæplega 30 milljónir kúa í þessari
rannsókn. Þar við bætast rúm 7%
sem Jersey kýr og þannig eru aðeins
eftir til skiptanna tvö prósent fyrir hin
kynin þrjú. Í umfjöllun greinarinnar
fær samt ræktunarstarf hvers og eins
af kynjunum fimm umfjöllun álíka að
umfang. Þegar skipting milli kynjanna
fer fram á grunni fjölda nauta verður
hún minnstu kynjunum ögn hagstæðari
sem skýrist af hinni gríðarlega miklu
notkun bestu svartskjöldóttu nautanna
sem er með öllu óhugsandi í minnstu
kynjunum eigi að halda þar uppi
sjálfbæru ræktunarstarfi.
Þó að hér sé rætt um þrjú kynjanna
sem örkyn að fjölda gripa eru
raunverulegar fjöldatölur þeirra samt
margfaldur fjöldi íslenska kúakynsins
jafnvel þó að allar íslenskar kýr
hefðu verið skýrslufærðar á sama
árabili sem allir lesendur þekkja að
er órafjarri öllum veruleika. Þessi
stærð íslenska kúakynsins ætti að vera
okkur ærið umhugsunarefni eins og
raunar hefur verið.
Breytingar á ræktunaráherslum
Umfjöllunina hefja höfundar á að
gera grein fyrir þróun í vægi einstakra
eiginleika í opinberri kynbótaeinkunn
mjólkurkúa vestanhafs á því tímabili sem
rannsóknin nær til. Breytingarnar eru
gríðarlegar á þessum fimm áratugum.
Við upphaf tímabilsins voru aðeins
tveir eiginleikar í einkunninni. Það
voru mjólkurmagn og magn mjólkurfitu
og skiptust áherslur hlutfallslega jafn
á eiginleikana. Nánast strax bætist
magn mjólkurpróteins við og var það
sá eiginleiki sem hafði hlutfallslega
langmest vægi undir lok síðustu aldar.
Síðan hafa hlutfallslegar áherslur
þess dalað við það að eiginleikum í
einkunninni hefur fjölgað mjög mikið.
Í dag er samt hlutfallslegt
vægi magnþáttanna um 60%. Þar
telur próteinmagnið enn langmest
sem að sjálfsögðu endurspeglar
markaðsáherslur vestanhafs.
Mjólkurmagnið hefur hins vegar í dag
aðeins 5% vægi. Þróun síðustu áratuga
er sú að sífellt fleiri eiginlekar hafa verið
að koma inn í einkunnina. Þetta er sama
þróun og við þekkjum hér á landi og í
löndum Vestur-Evrópu. Hins vegar má
segja að þessi þróun hafi oft verið fast
að áratugi síðar á ferðinni hér á landi en
hjá umræddum þjóðum.
Eiginleikum í heildareinkunninni
hefur fjölgað jafnt og þétt og eru um
tugur í dag. Þó að hér sé um að ræða
sömu eiginleika og við þekkjum að hafa
verið að koma inn í ræktunarmarkmið
hér á landi. Ástæða er hins vegar að
vekja athygli á að skilgreiningar
margra þeirra eru talsvert frábrugðnar
því sem við þekkjum hérlendis nema
magneiginleikar mjólkur eru nánast eins
skilgreindir. Þetta á hins vegar ekki við
um eiginleika eins og endingu, frjósemi
og heilsufar kúnna. Hvert kyn hefur
sína eigin ræktunaráætlun og er margt
í framkvæmd þeirra breytileg milli
kynjanna. Árangur ræktunarstarfsins
er sömuleiðis verulega misjafn eftir
kynjum og fyrir einstaka eiginleika. Allt
er þetta nákvæmlega tíundað í greininni.
Tilkoma erfðamengisúrvalsins
Stóra breytingin verður með tilkomu
erfðamengisúrvalsins sem hefur
gerbreytt framförum. Það voru
svartskjöldóttu kýrnar sem riðu á vaðið
með að byggja kynbótamatsútreikninga
á þessum nýju aðferðum og var það
snemma árs 2009 en síðastar til
leiks voru Gurnsey kýrnar árið 2016
Ákaflega misjafn er á milli nautanna og
kúnna hve hlutfall erfðagreindra gripa
er hátt. Þannig var hlutfall nautanna
sem erfðagreind voru árið 2005 nær
helmingur þeirra erfðagreind en 2017
voru öll naut komin með slíka greiningu.
Hlutfall kúnna með slíka greiningu
hefur farið jafn og þétt vaxandi og voru
rúm 17% kúnna fæddra 2017 komnar
með slíka greiningu. Nú er erfðagreindir
gripir komnir eittvað yfir sex milljónir
samtals, enda hlutfall kúnna sem sem
fengið hafa slíka greiningu tæp 3,9%.
Samanburður á Banda-
ríkjunum og Íslandi
Aðeins er forvitnilegt að bera þetta
saman við okkar tölur. Þegar við tökum
upp erfðamengisúrval rúmum áratugi
síðar en Bandaríkjamenn þá berjum við
okkur á brjóst með að ætla að erfðagreina
alla fædda og ásetta kvígukálfa auk
nautanna. Það mun þó ekki skila okkur
neinum hlutfallslegum erfðaframförum
umfram þá. Þar verða þeir með árangur
þannig mælt með himinskautum
umfram það sem við munum búa
við. Aðeins á einu sviði náum við
örugglega að skáka þeim en það er
í kostaði á framleiddan mjólkurlítra.
Það tel ég vart eftirsóknarvert. Mér
hefur virst að ekki gæti neins hófs í
þeim fjárútlátum sem varið er til að
koma erfðamengisúrvali fyrir íslensku
kýrnar á koppinn. Eftir sitjum við með
eitt hæsta framleiðslukostnaðarverð
mjólkur á Vesturlöndum. Það böl
búum við áfram við meðan við reynum
að stunda ræktunarstarf í þessum
örstofni. Við sleppum ekki einu sinni
hjá þeirri áhættu sem fylgir óheftri
skyldleikaræktaraukningu samfara
beitingu erfðamengjaúrvalsins og vikið
verður að síðar í pistlinum. Miklu meiri
líkur á að þar keyrum við okkur líka í
ógöngur í þessum litla stofni okkar, þær
eru ekki fjarlægar.
Framleiðslukostnaður á mjólkurlítra
er okkar stóra ógn og þar mun
erfðamengjaúrvalið ekki hjálpa okkur
hænufet. Ég held að beinlínis væri
ástæða að draga úr ræktunarkostnaði.
Í öllu falli mundi það smávegis lækka
framleiðslukostnaðinn á kg mjólkur.
Þessi sjálfhelda mjólkurframleiðslu
hér á landi ætti að vera kúabændum
umhugsunarefni.
Framfarir í magn-
eiginleikum mjólkur
Í greininni er endalaus umfjöllun um
árangur ræktunar í smákynjunum fyrir
fjölda eiginleika og eru þeir yfirleitt
ánægðir með árangurinn fyrir þau flest
þó að sumir lágarfgengiseiginleikar
sýndu varla jákvæða þróun á tímabili.
Þegar kemur að stóru kynjunum
birtast tölur sem ekki er annað hægt
en taka ofan hattinn fyrir. Þannig eru
erfðaframfarir hjá svartskjöldóttu
nautunum rúmlega 2700 kg mjólkur,
en það eru hæstu tölurnar. Nákvæmni
þessara útreikninga er slík að
niðurstöður telja þeir sig geta kynnt
með nákvæmni upp á brot af kg. Fyrir
áratug birtum við Ágúst Sigurðsson
grein um erfðaframfarir hjá íslenskum
kúm 1970-2009 og reiknuðust þær um
810 kg af mjólk. Þessir útreikningar eru
mun ónákvæmari en þeir bandarísku og
skila litlum framförum í samanburði við
þær bandarísku. Ekki vil ég ábyrgjast að
þær hafi nokkuð aukist á síðasta áratugi.
Aðeins veit ég að ræktunarkostnaðurinn
hefur margfaldast í samanburði við það
sem var hér á landi á þeim árum.
Júgurhreysti og ending
Kynbótamat fyrir júgurhreysti byrjuðu
Bandaríkjamenn að reikna árið 1994
og byggðu það á frumutölumælingum
líkt og gert er hérlendis. Umbætur í
þessum eiginleika fara að blasa við
um aldamótin og eru stöðugar og
miklar hjá stóru kynjunum síðasta hluta
tímabilsins. Framfarir valda aftur á móti
vonbrigðum hjá sumum minni kynjanna
og kenna það strjálum mælingum og
lágu arfgengi eiginleikans eins og hann
er metinn. Þeir virðast samt ekki hafa
neinar áhyggjur af framtíðinni eftir að
áhrifa erfðamengisúrvalsins fer að gæta
að fullu líka hjá minni kynjunum.
Ending kúnna hefur verulegt vægi í
ræktun kúnna vestanhafs. Þannig hefur
endingin eins og þeir mæla hana í því
sem þeir skammstafa LP 17% vægi í
heildareinkunn kúnna. Þennan eignleika
tóku þeir að reikna kynbótamat fyrir
1994 líkt og frumutöluna og hegðun
framfara beggja eiginleika fylgjast að,
það verða litlar breytingar til aldamóta
en frá þeim tíma verulegar jákvæðar
breytingar. LP er skilgreindur sem
farmleiðsluævi kýrinnar frá fyrsta
kálfi til endalokanna mælt í mánuðum.
Þetta er því einfaldur og auðskilinn
mælikvarði sem hlýtur ætíð að vera
mikill kostur. Jákvæðar breytingar eru
verulegar og hefur LP þannig aukist um
nánast nákvæmlega heilt ár á síðustu
árum hjá stóru kynjunum.
Allt framleiðsluumhverfð stýrir því
síðan hvort framleiðendur nýta sér bætta
erfðagetu gripanna. Ég ætla ekki að bera
þetta saman við þróun hér á landi, til
þess skortir hér allar rannsóknir. Hér
hafa þær aðallega snúist um að koma á
kynbótamati fyrir endingu, en ekkert að
því að mæla árangur ræktunarstarfsins.
Þar finnst mér samt að hérlendir hefðu
getað lært eitthvað af Bandaríkjamönnum
að koma á auðskildum skilgreiningum
eiginleikans.
Nýverið (2016) hafa þeir farið að
reikna kynbótamat fyrir nýjan eiginleika
sem þeir skammstafa LIV og tengist
endingu en er ekki enn orðinn hluti af
heildareinkunn eftir því sem ég les í
greininni. Þessi eiginleiki er greinilega
talsvert flókinn í útreikningi en hann á að
meta líkur á að gripurinn sé í framleiðslu
í hjörðinni á tilgreindum tímapunkti
og þannig að þeirra sögn óbeinn
mælikvarði á dánartíðni. Þó að þetta
sé dæmigerður lágarfgengiseiginleiki
þá virðast þeir sannfærðir um að
þessir útreikningar muni skila þeim
umtalsverðu á komandi árum. Tilkoma
erfðamengisúrvalsins mun breyta öllu í
þessum efnum. Þennan eiginleika segja
þeir hafa mikil áhrif á heildarhagkvæmni
mjólkurframleiðslunnar.
Frjósemi
Frjósemi kúnna vestanhafs hefur
sennilega verið svartasti bletturinn á
ræktunarstarfinu fyrir mjólkurkýr þar.
Þeir virðast ekki fara að gefa þessum
eiginleika gaum fyrr en með byrjun
nýrrar aldar.
Núna hefur frjósemin fengið 9%
vægi í heildareinkunninni og þrátt
fyrir að þetta sé lágarfgengiseiginleiki
þá láta þeir sér nægja að nota aðeins
eina mælingu fyrir eiginleikann og
horfa björtum augum til framtíðar
með aðstoð erfðamengisúrvalsins.
Mælistærðina sem þeir nota til að meta
frjósemi skammstafa þeir DPR og er
það eins konar mæling á fangprósentu.
Allra síðustu árin eru þeir farnir að
mæla jákvæðar erfðaframfarir fyrir
frjósemi kúnna.
Hér langar mig að skjóta inn
umfjöllun á minni reynslu eftir áratuga
störf að nautgripakynbótum hér á landi
og skoða það í samanburði við það sem
ég las á sama tíma um þróun á þessu
svið í Vestur-Evrópu og vestanhafs. Í
ljósi þeirrar reynslu má líklega álykta
að margt af þessu var meira og minna
markleysa vegna truflandi áhrifa
heimanautanotkunar á flesta þessa
tölfræði hérlendis aðeins bil milli
burða var óbrenglaður mælikvarði sem
ég góðu heilli valdi þegar við tókum
þennan eiginleika í ræktunarmarkmið
og fórum að reikna kynbótamat fyrir
hann. Þessi eiginleiki hefur auk þess
þann augljósa kost að vera auðskilinn
og mæla frjósemina eins og hún horfir
sem hagnýtur eiginleiki við íslenskum
kúabónda.
Á síðustu áratugum aldarinnar
síðustu þá las ég lýsingar á feikilegri
afurðaaukningu mjólkurkúa víða
erlendis á sama tíma og frjósemi
kúnna í sumum löndum var samtímis
í frjálsu falli. Þetta var samt mjög
breytilegt eftir löndum og skýrast kom
þetta fram hjá svartskjöldóttu kúnum í
Bandaríkjunum. Ég sannfærðist strax um
að hér birtist ekki algilt lögmál heldur
væri þetta bundið kúakynjum. Þróunin
hér á landi var mér vísbending um að
svo væri. Þó að ég sæi ekki hættulega
þróun í tölum um fanghlutfall eða
bil milli burða er ekki þar með sögð
öll sagan vegna þess að frjósemi hjá
mjólkurkúm er miklu fjölbreyttara
fyrirbæri. Þar vil ég sérstaklega nefna
ógnvekjandi tölur um kálfadauða hjá
fyrsta kálfs kvígum samhliða alltof
háum burðaraldri kvígnanna hérlendis.
Því miður hef ég grun um að hér geti
verið um meðfædda ágalla hjá íslensku
mjólkurkúnni að ræða. Í öllu falli er
þörf miklu meiri rannsókna á þessum
mikilvægu eiginleikum sem tengjast
frjósemi og beina þeim að mörgu fleira
en afleiddum bilmælingum á frjósemi.
Þessar rannsóknir verður samtímis
að tengja miklu meira en verið hefur
hagkvæmni mjólkurframleiðslunnar
vegna þess að margir þessir mælikvarðar
eru þar lykilstærðir.
Fyrir og eftir tilkomu
erfðamengisúrvalsins
Mjög fróðleg tafla er í greininni þar sem
sýndar eru árlegar erfðaframfarir fyrir
allmarga eiginleika annars vegar frá
1975-2008 og hins vegar frá 2009-2017
þ.e. fyrir og eftir að erfðamengisúrvalið
var tekið í notkun. Þar kemur fram að á
fyrra tímabilinu eru árlegar framfarir að
jafnaði 34,7 kg af mjólk en á því síðara
62,3 kg. Fyrir framleiðsluævilengd
eru árlegar breytingar 0,51 mánuðir á
fyrra tímabilinu en á því síðara 0,77
mánuðir. Hér verða ekki fleiri tölur
þuldar, þær sýna aðeins ótrúlegan mun
á fyrra tímabilinu og því síðara eftir
að erfðamengisúrvalið er komið til
sögunnar. Um þetta verður nánar fjallað
síðar í greininni.
Skyldleikarækt
Talsverð umfjöllun er um þróun
skyldleikaræktar hjá nautum og
kúm af þessum fimm kynjum á
umræddu tímabili rannsóknarinnar.
Með tilkomu erfðamengisupplýsinga
koma fleiri möguleikar til að meta
skyldleikaræktarþróun en hér verða
aðeins nefndar tölur um þessa þróun
reiknað með hinum hefðbundnu
aðferðum út frá ætternisupplýsingum
sem árlegar breytingar. Bent skal á
að einstaka sinnum sér maður þetta
Erfðamengisúrval:
Erfðaframfarir hjá bandarískum
mjólkurkúakynjum
Tímaritið Journal of dairy science er af mörgum talið virtasta
vísindatímarit á sviði mjólkurframleiðslu í heiminum. Tilefni er að
vekja athygli á skrifum tímaritsins að þessu sinni er grein sem ber heitið
„Changes in genetic trends in US dairy cattle since the implementation
of genomic selecton“. Greinin birtist í febrúarhefti ritsins á nýbyrjuðu
ári. Fyrirsögnin er léleg tilraun til íslenskunar á ensku heiti hennar.
Bandaríka kúakynið Ayrshire er af skoskum uppruna. Mynd / breedslist.com
Jón Viðar
Jónmundsson.
Svartskjöldótt Holstein / Frisian kýr. Mynd /wikimedia.org