Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 67
67Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
sett fram sem breytingar fyrir hverja
kynslóð sem er fáránlegt þegar verið
er að skoða breytingar fyrir og eftir
erfðamengisúrval. Árlegar breytingar
falla að okkar tímaskyni og er það sem
við verðum að búa við ef horfa skal
til framtíðar. Útreikningarnir sýndu
hæstan skyldleikaræktarstuðul hjá
Holstein gripunum árið 2017 reiknað
á grunni ætternis eða 10,9%. Þetta er
mjög hátt og það umhugsunarverða að
árleg aukning snarhækkar með tilkomu
erfðamengisúrvalsins.
Fram kemur að höfundarnir hafa
áhyggjur af þessari þróun. Þeir þekkja
vel neikvæð áhrif skyldleikaræktar
sérstaklega í sambandi við frjósemi
og sjúkdóma frá fjölda rannsókna
víða um heiminn. Þeir segja að
lágmarkskrafa sé að framfarir í öðrum
eiginleikum geri meira en vega upp
neikvæð áhrif skyldleikaræktarinnar á
hagkvæmni mjólkurframleiðslunnar.
Þeir benda sérstaklega á að skyldleika
aukning hjá Jersey reiknast minn
með nýjum aðferðum byggðum á
erfðamengisupplýsingum en gömlum
ætternisútreikningum. Þetta telja þeir gott
dæmi um góða nýtingu á upplýsingum
frá hinni nýju tækni. Fyrir Jersey nautin
sem fædd voru árið 2017 voru tölurnar
8,8 og 7,4% sem eru að vísu óþægilega
háar tölur. Athyglisvert er að sjá að fyrir
minni kynin að þar er skyldleikaræktin
minni sem helst í hendur við minni
framfarir fyrir aðra eiginleika. Þarna
birtist ljóslifandi ótti ræktunarfrömuðu
lítilla kynja við að nýta ekki sem skyldi
úrvalsmöguleika stofnsins til að halda
aftur af skyldleikaræktaraukningu.
Skyldleikarækt verður ávallt
umhugsunaratriði þeirra sem stýra
þurfa ræktun í örstofni eins og íslenska
kúastofninum. Þegar ég horfi til baka
til þeirra ára þá sýndi ég mögulega of
mikla varkárni. Nokkrar rannsóknir
hafa staðfest bærilega þróun í þessum
efnum á þessum tíma hérlendis.
Þekking mín á íslenskri nautgripa og
sauðfjárrækt segir mér að neikvæð
áhrif skyldleikaræktar er minni í
þessum búfjárkynjum en víða mælist
hjá erlendum kynjum. Minni einnig á
að oft hafa mikið skyldleikaræktuð naut
hér á landi orðið miklir kynbótagripir
og fer þar fremstur sem dæmi, einn
almesti ættfaðir Kluftastofnsins, Repp
frá Kluftum. Það mikið skyldleikaræktað
naut yrði einfaldlega aldrei tekið í notkun
hér á landi í dag. Í ljós þeirrar þekkingar
hefði ég ef til vill átt að nota miklu meira
og betur albestu nautin á hverju ári en
raunin varð. Um það snýst vandamálið.
Ættliðabil
Einn meginávinninga erfðamengis
úrvalsins eru möguleikar á að stytta
ættliðabilið en samkvæmt alþekktri
formúlu fyrir væntanlegum erfða
framförum standa þær í öfugu hlutfalli
við ættliðabilið. Þess vegna er eðlilegt
að þróun þess sé talsvert skoðuð.
Tölurnar um ættliðabilið eru yfirleitt
metnar fyrir þær fjórar mismunandi
leiðir sem eru frá kynslóð til kynslóðar.
Risastökkið er á leiðinni milli föður
og sonar. Þannig var það ættliðabil
hjá Holstein nautum fæddum 1975
9,4 ár en var komið niður í 2,2, hjá
sambærilegum nautum fæddum 2017.
Hjá Jersey nautum sömu fæðingarár eru
hliðstæðar tölur 9,8 og 3,2 ár. Fyrir bilið
frá föður til dóttur eru breytingarnar
hjá svartskjöldóttu kúnum úr 6,8
árum í 3,9 ár.Þessar niðurstöður eru
endalausar og er vísað til fylgitaflna
með greininni en þeir sýna þróunina
sjálfir myndrænt fyrir öll kynin.
Þar má sjá að aldur nautsmæðranna
einkum hjá Holstein og Jersey hefur
lækkað verulega á allra síðustu árum
eftir að erfðamengisúrvalið kom til
sögunnar. Rétt er að benda á að hjá
Holstein nautunum er ættliðabilið á
móðurhliðina komið í 2,2 ár nokkrum
mánuðum lægra en meðalaldur fyrsta
kálfs kvígna hér á landi er þegar þær
bera fyrsta kálfi. Ættliðabilið frá
móður til dóttur hefur lítið svigrúm til
breytinga en hefur samt farið lækkandi
hjá kúamörgu kynjunum síðustu ár.
Hér verður ekki vitnað til fjölda
rannsókna á þessari lykilstærð
ræktunar starfsins sem til eru
hérlendis. Þær sýna flestar veruleika
sem er víðs fjarri því sem greinin segir
vera vestanhafs.
Samandregnar niðurstöður
Í lokin draga þeir saman nokkrar
niðurstöður þess sem þegar er sagt.
Þeir byrja á að benda á að hjá Holstein
hafi erfðaframfarir í próteinmagni
aukist um 192% hjá nautum fæddum
á árunum frá 20092017 frá því sem
áður var en þetta er árabilið eftir að
erfðamengisúrvalið er tekið í notkun.
Tilsvarandi breytingar í framleiðsluævi
hjá gripum af sama kyni var 50%.
Þeir benda á að erfðamengisúrvalið
kalli á meiri stýringu ræktunarstarfsins
en verið hefur hjá sumum minni
kynjunum. Þeir enda greinina á
að hvetja til að í framtíðinni verði
hliðstæðar úttektir á ræktunarstarfinu
gerðar á fimm ára fresti. Sannarlega
hraustlega mælt.
Við lestur greinarinnar blasir við
að Holstein kýrnar bera höfuð og
herðar yfir öll önnur mjólkurkúakyn í
heiminum um afkastagetu gripa. Samt
hafa menn áhyggjur t.d. af aukinni
skyldleikarækt í stofninum ekki síst
eftir innleiðingu erfðamengisúrvalsins
Aðeins má víkja að því sem ekkert er
fjallað um. Að hlutum sem tengjast
sköpulagi og gerð gripa og einnig
mjöltun kúa er ekki vikið einu orði í
texta greinarinnar. Sýnir þetta held ég
hæfileika til að beina kröftunum að því
sem raunverulega skiptir máli. Fram
kemur í töflu um ræktunaráherslur
að júgur og tengdir eignleikar hafi
6% vægi og fætur fái 3% vægi í
heildareinkunn enda þekkt sem ein af
meiri förgunarástæðum hjá Holstein
kúnum. Athygli vekur að mjaltir fá
ekkert vægi enda hefur mér oft virst
sem Bandaríkjamenn líti á mjaltir sem
þátt í umgengi fremur en eiginleika
í ræktun kúnna. Spurning hvort
mjaltaþjónavæðingin hafi raungert
þessi sjónarmið.
Lokaorð
Ég vona að lesendur séu einhvers
vísari um það fádæma öfluga
ræktunarstarf sem unnið er fyrir
mjólkurkýr í Bandaríkjunum þó að
hér hafi aðeins verið mögulegt að
koma á framfæri litlum hluta þess
fróðleiks sem þar má lesa. Biðst
jafnframt fyrirgefningar á því að hafa
á nokkrum stöðum vikið að hliðstæðum
hér á landi. Það geri ég vegna þess að
mínu mati ætti viðkomandi atriði að
vekja til umhugsunar og umræðu hjá
kúabændum hér á landi, í öllu falli
þeim meirihluta þerra sem telja kröftum
sínum best varið við að viðhalda
ræktunarstarfi á okkar örstofni.
Ég tek ekki afstöðu í því máli, tel
mig eins og áður geta rökstutt það
bæði með og á móti. Meirihlutinn
verður hins vegar að taka ábyrgð á
sinni ákvörðun m.a. með að láta gera
hliðstæða skoðun á íslensku kúnni
og lýst er í greininni sem hér voru
tíndir punktar úr fyrir bandarísku
mjólkurkúakynin. Slík vinna hefur
aldrei verið unnin hér á landi. Hana
er aftur á móti nauðsynlegt að vinna
án fyrirfram gefinnar afstöðu til
kúakynsins.
Jón Viðar Jónmundsson,
sjálfstætt starfandi búvísindamaður.
9. – 20. september 2023
Fararstjórn: Kristín Jóhannsdóttir &
Magnús R. Einarsson
Verð 389.000 kr. á mann í tvíbýli
Bókaðu núna á bændaferðir.is
Upplifðu glæsilegar og einstaklega áhugaverðar
spænskar borgir, heimsborgina Madríd, hina
undurfögru Valencia og sólríku virkis- og
Undurfagra
Valencia & Alicante
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2
108 Reykjavík