Bændablaðið - 04.04.2023, Síða 70
70 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Bændablaðið tók til prufu Caddy,
sem er lítill sendibíll í sama
stærðarflokki og Citroen Berlingo,
Mercedes-Benz Citan, Ford Transit
Connect og margir fleiri.
Í áratugi hefur þýski bifreiða-
framleiðandinn framleitt smáa
sendibíla sem hafa notið mikilla
vinsælda og er þessi nýjasta útgáfa
engin bylting frá því sem áður var,
heldur framþróun á gamalreyndri
uppskrift. Þegar Caddy er skoðaður að
utan sést að hann er á margan hátt mjög
líkur samkeppninni. Nokkur einsleitni
er á þessum markaði – sérstaklega
þegar stór hluti sendibíla eru hvítir með
svarta plaststuðara. Á framhliðinni sést
vel að um Volkswagen er að ræða, en
breytingin er nokkuð mikil frá eldri
kynslóð Caddy. Nú er grillið lokað
og loftinntakið er komið í stuðarann.
Afturljósin eru talsvert breytt og þegar
horft er á bílinn frá þeirri hlið minnir
hann um margt á Mercedes-Benz Vito,
nema mun minni.
Þó útlit bílsins að utan myndi
seint teljast spennandi, þá samsvarar
hann sér allur mjög vel og greinilegt
er að Volkswagen hefur vandað alla
hönnunarvinnu.
Vönduð innrétting
Þegar sest er inn í bílinn tekur hins
vegar á móti manni falleg og vönduð
innrétting. Því er ekki að neita að svart
og hart plast er í stóru hlutverki, en allt
það sem fingurnir snerta er úr vönduðu
efni. Stýrishjólið er úr massífu og
mjúku gúmmíi, gírstöngin fer vel í
lófa og allir hnappar eru þéttir.
Ágætis geymslupláss er uppi á
mælaborðinu, stórir hurðavasar beggja
vegna og glasahaldarar og opin hólf í
miðjustokknum. Á bak við sætin er
rými þar sem hægt er að koma fyrir
hlutum sem ekki þarf að nálgast oft,
enda tímafrekt að draga fram sætið
og halla sætisbakinu. Hanskahólfið
er í smærra lagi og ekki með loki.
Mjög lítið er um „sniðugar“ lausnir
í innréttingunni eins og gjarnan hjá
samkeppninni, en þar má nefna
að ekki er geymsluhilla ofan við
framrúðuna, ekki hægt að lyfta upp
sessu á farþegasæti og hleri á þilinu
milli geymslurýmis og ökumannshúss
er ekki staðalbúnaður.
Í miðju mælaborðsins er
snertiskjár, en lítið er um kerfið að
segja nema að það er fábrotið og ekki
margt til að afvegaleiða notandann.
Mjög fljótlegt er að tengja símann
með Bluetooth og auðvelt að hringja
símtöl með handfrjálsa búnaðinum
og hlusta á tónlist.
Þegar síminn hefur verið tengdur
í fyrsta skipti er hann mjög fljótur
að ná sambandi aftur þegar kveikt
er á bílnum. Helst má gagnrýna að
öllu því sem tengist miðstöðinni er
stjórnað í gegnum skjáinn og þarf
nokkra smelli ef ætlunin er að gera
smávægilegar breytingar á hitastigi
eða blæstri.
Ánægjuleg akstursupplifun
Sterkustu hliðar Caddy koma í
ljós um leið og ekið er af stað, en
akstursupplifunin er afar ánægjuleg.
Sætin eru mjög vönduð, en greinilegt
er að svampurinn í þeim er af
dýrari gerðinni. Ökumannssætið er
hæðarstillanlegt og þegar það er
í hæstu stöðu er eins og setið sé
í jeppling, og aðgengið í bílinn
samkvæmt því. Rýmið er með besta
móti, en hávaxnir ökumenn munu
geta teygt vel úr fótunum og dregið
stýrishjólið að sér. Sætið styður
vel við líkamann, en til að setja út
á eitthvað hefði undirritaður viljað
geta stillt mjóbaksstuðninginn.
Bíllinn í þessum prufuakstri var
útbúinn tveggja lítra, fjögurra strokka,
dísilmótor og sex gíra beinskiptingu.
Volkswagen fær sérstakt hrós fyrir
að gera vélar sem eru ánægjulegar
í notkun, en þó svo að hún skili
ekki nema 102 hestöflum, þá gefur
hún mikið tog á lágum snúningum.
Í innanbæjarsnatti er lítil þörf á
að hræra stöðugt í gírkassanum
og reyndist þriðji gírinn afar
notadrjúgur. Kúplingin er mátulega
stíf og fyrirsjáanleg í notkun og er
skemmtilegt að vinna með gírkassann
þegar þess er þörf. Þegar bílnum er
gefið almennilega inn nær hann
hámarkshraða áreynslulaust. Úti á
þjóðvegunum er Caddy stöðugur og
mjúkur í akstri, enda ekki við öðru að
búast þar sem undirvagninn er mikið
til sá sami og á Volkswagen Golf.
Nokkur niður berst í ökumanns-
húsið frá geymslurýminu, en á
malbiki nær hávaðinn ekki þeim
hljóðstyrk að af honum hljótist ami.
Á malarvegum heyrist mjög vel í
grjótkasti undir bílinn.
Geymslurými hefðbundið
Geymslurýmið er afar einfalt og
á margan hátt ekkert ólíkt því sem
gerist hjá samkeppninni, þ.e. flatt
gólf og flatir veggir. Dyrnar aftast
opnast alla jafna í 90 gráður, en
með einu handtaki er hægt að opna
þær í 180 gráður. Á gólfinu eru sex
festipunktar sem hægt er að binda í.
Bíllinn sem Bændablaðið prufaði
er af lengri týpunni, sem nefnist
MAXI og er 353 millímetrum lengri
en staðlaði bíllinn. Það skilar sér í
hleðslurými sem er með 2.150 x
1.230 millímetra gólffleti og 2.275
millímetra lofthæð.
Að lokum
Volkswagen Caddy er sendibíll sem
heldur í heiðri margreynda uppskrift
sem einyrkjar, verktakar og aðrir sem
þurfa mikið geymslupláss kunna vel
að meta. Hér er lítið um nýjar lausnir,
heldur er allt mjög einfalt og virkar.
Greinilegt er að Volkswagen
hefur lagt vinnu í að gera aksturs-
upplifunina sem besta, en inn í það
spila lipur vél, létt kúpling, sæti sem
styðja vel ásamt ökumannshúsi með
prýðilegri hljóðeinangrun.
Verðið á bílnum er 5.090.000
krónur m.vsk., en hægt er að fá
stuttan bensínbíl á 4.490.000 krónur
m.vsk. hjá Heklu.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Volkswagen Caddy er íslenskum einyrkjum og verktökum af góðu kunnur. Gott samræmi er í ytra útliti bifreiðarinnar og má gera ráð fyrir að hönnunin
eldist vel. Lengri útgáfan er með miklu geymslurými og nógu langt til að flestir ættu að geta lagst flatir. Myndir / ÁL
Góð vinnuaðstaða er í ökumannshúsinu og hljóðeinangrunin ágæt.
Samkeppnin býður upp á meira geymslupláss og fleiri sniðugar lausnir.
Talsverð breyting er á útliti bílsins að aftan. Eldri bíllinn var með einföldum
ferhyrndum ljósum, en þessi með löngum afturljósum með mun flóknara formi.
Porsche á Íslandi | Krókhálsi 9 | 110 Reykjavík | S: 590 2000 | porsche.is | Opið mán-fös: 9 til 17 og um lau: 12 til 16
Komdu í Porsche salinn og skoðaðu úrvalið,
við eigum margar gerðir á lager.
– Prufuakstur á Volkswagen Caddy MAXI