Bændablaðið - 04.04.2023, Side 74

Bændablaðið - 04.04.2023, Side 74
74 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023 Mynd á forsíðu síðasta tölublaðs Bænda- blaðsins vakti mikla athygli og hrifningu hjá lesendum, ekki síst fyrir fótabúnað þann er blasti við – kúrekastígvél í sérflokki. Ófáar símhringingarnar glumdu um skrifstofuna í kjölfarið og ritstjórn innt nákvæmra svara vegna þessarar dýrðar. Við förum því yfir málið hér með. Forsíðuna prýddi Egill nokkur Gunnarsson, bústjóri í Hvanneyrarfjósi en búið er aðsetur rannsókna og kennslu Landbúnaðarháskóla Íslands. Egill, sem hefur sveitina í blóðinu og húmorinn bak við eyrað, segir að tildrög stígvélanna séu þau að hann, ásamt félaga sínum Hrannari, hafi verið í skemmtiferð í Kaliforníu, keyrandi um á Mustang eins og alvöru kúrekum sæmir. Amerísk gæði í sérflokki Í bænum Santa Maria vissi Hrannar af verslun – Boot Barn – þar sem hægt væri að finna kúrekastígvél í sérflokki og fannst þeim félögum afleitt að ljúka ferðinni án þess að fjárfesta í einu pari. Þeir snöruðu sér því inn og eftir nokkra stund og marga hringsnúninga varð Egill stoltur eigandi stígvéla myndskreyttum bandaríska fánanum – sem glöggir lesendur létu ekki fram hjá sér fara. Egill, sem í framhaldinu hálfsá eftir að hafa ekki keypt sér alklæðnað að hætti kúreka, vill þó ekki meina að hann sé „flamboyant“ maður að upplagi. Amerísku kúrekastígvélunum klæðist hann heldur ekki dagsdaglega heldur fremur við hátíðleg tilefni – en almennt eru þau til stofuskrauts hjá honum heima við. Áhugasamir geta þó farið á vefsíðu Boot Barn, www.bootbarn.com, og notið úrvalsins sem þar er að finna, enda ókeypis heimsending ef verslað er yfir rétt rúmar 20 þúsund kr. íslenskar. Lítur út fyrir að verslunina sé að finna í öllum ríkjum Bandaríkjanna, stærsta fyrirtæki vinnu- og kúrekafatnaðar í landinu. Frá árinu 1978, þegar hún var sett á laggirnar í bænum Huntington Beach, Kaliforníu, hafa vinsældir þessarar ágætu verslunar þannig aldeilis vaxið og ekki margir sem geta fetað í fótspor slíks risaveldis. Hvaða leður viltu, ljúfan ... Kúrekastígvél má svo finna auðvitað víða. Á vefsíðunni www.timsboots.com er til að mynda hægt að hanna sín stígvél eftir geðþótta og smekk hverju sinni. Í boði eru margs konar saumar og mynstur, stærðir og víddir – en að auki er hægt að velja um margvíslegt leður. Úrvalið kemur jafnvel hörðustu kúrekum á óvart. Hægt er að fá allt frá hinum sæmilega vel þekktu valmöguleikum á borð við krókódíla, snáka og strútaleður, en einnig leður gíraffa, ála, flóðhesta, fíla, hákarla og fornaldarfisksins Pirarucu – sem einnig gengur undir nafninu Arapaima fiskurinn. Er það einn stærsti hreistraði ferskvatns- fiskur í heimi, er að finna í suður-amerískum hitabeltisvötnum Amazon og í meginatriðum óbreyttur frá tímabili risaeðlanna – Júratímabilinu svokallaða. Eru stígvél gerð úr leðri pirarucu fisksins vel metin vegna þess hve mjúk og meðfærileg þau eru, auk þess að vera sérstaklega endingargóð. Þau má til dæmis finna á vefsíðum á borð við www.cavenders.com, sem hefur mikið úrval kúrekastígvéla. Ein eru þó þau sem eru hvað allra best stígvélaleðurtegunda sem völ er á; ástralskt kengúruleður. Vilja sérfræðingar í þessum efnum meina að þarna sé um að ræða afar þunnt og létt leður sem þó er mögulega það sterkasta í heiminum. Til viðbótar við að vera vinsælt í stígvél er leðrið helst allra notað í svipur þar sem hægt er að skera það þunnt án þess að það slitni. Verði ykkur að góðu og gleðilega páska! /SP Ein þekktustu stígvél landsins er prýddu forsíðu 6.tbl. Bændablaðsins á dögunum. Hrafninn, eða krummi, er vel þekktur í íslensku fuglafánunni. Hann er stærstu allra spörfugla og auðþekkjanlegur á stærð, útlit og hljóði. Hans er víða getið í þjóðsögum, vísum, söngtextum, göldrum og hjátrú. Þeir eru hrekkjóttir og uppátækjasamir líkt og fuglinn á myndinni sem var að tína lauf og greinar af ösp. Þeir eru einstaklega gáfaðir og enn þann dag í dag eru rannsóknir að sýna fram á að þeir fuglar sem eru í ætt hröfnunga (hrafnar, krákur, skjór o.fl) sýna einstaka hæfileika í að leysa verkefni, búa til áhöld, eru minnugir t.a.m. á andlit, og margir hæfileikar þeirra er eitthvað sem áður var talið að væri eingöngu að finna í fari manna. Hér á Íslandi eru hrafnar útbreiddir um allt land. Hrafninn helgar sér óðal sem hann ver af miklum krafti. Þeir verpa gjarnan í klettum og giljum en nokkuð er um að þeir geri sér líka hreiður í alls konar mannvirkjum. Undanfarin ár hefur síðan færst í aukana að þeir geri sér hreiður í trjám. Þeir parast snemma og má búast við því nú þegar að fuglar séu farnir að huga óðali sínu. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Tíska: Fótabúnaður þeirra djörfu Á vefsíðunni www.timboots.com má finna einstakt úrval kúrekastígvéla. Á meðfylgjandi mynd er þaðan skótau úr leðri gaddaskötu. Fornaldarfiskurinn pirarucu. Stígvél úr leðri pirarucufisksins.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.