Bændablaðið - 04.04.2023, Qupperneq 74
74 Bændablaðið | Þriðjudagur 4. apríl 2023
Mynd á forsíðu síðasta tölublaðs Bænda-
blaðsins vakti mikla athygli og hrifningu hjá
lesendum, ekki síst fyrir fótabúnað þann er
blasti við – kúrekastígvél í sérflokki. Ófáar
símhringingarnar glumdu um skrifstofuna í
kjölfarið og ritstjórn innt nákvæmra svara
vegna þessarar dýrðar. Við förum því yfir
málið hér með.
Forsíðuna prýddi Egill nokkur Gunnarsson,
bústjóri í Hvanneyrarfjósi en búið er aðsetur
rannsókna og kennslu Landbúnaðarháskóla
Íslands. Egill, sem hefur sveitina í blóðinu
og húmorinn bak við eyrað, segir að tildrög
stígvélanna séu þau að hann, ásamt félaga
sínum Hrannari, hafi verið í skemmtiferð í
Kaliforníu, keyrandi um á Mustang eins og
alvöru kúrekum sæmir.
Amerísk gæði í sérflokki
Í bænum Santa Maria vissi Hrannar af
verslun – Boot Barn – þar sem hægt
væri að finna kúrekastígvél í sérflokki
og fannst þeim félögum afleitt að ljúka
ferðinni án þess að fjárfesta í einu
pari. Þeir snöruðu sér því inn og eftir
nokkra stund og marga hringsnúninga
varð Egill stoltur eigandi stígvéla
myndskreyttum bandaríska fánanum
– sem glöggir lesendur létu ekki fram
hjá sér fara. Egill, sem í framhaldinu
hálfsá eftir að hafa ekki keypt sér
alklæðnað að hætti kúreka, vill þó
ekki meina að hann sé „flamboyant“
maður að upplagi.
Amerísku kúrekastígvélunum
klæðist hann heldur ekki dagsdaglega
heldur fremur við hátíðleg tilefni – en
almennt eru þau til stofuskrauts hjá
honum heima við.
Áhugasamir geta þó farið á vefsíðu Boot
Barn, www.bootbarn.com, og notið úrvalsins
sem þar er að finna, enda ókeypis heimsending
ef verslað er yfir rétt rúmar 20 þúsund kr.
íslenskar. Lítur út fyrir að verslunina sé að
finna í öllum ríkjum Bandaríkjanna, stærsta
fyrirtæki vinnu- og kúrekafatnaðar í landinu.
Frá árinu 1978, þegar hún var sett á laggirnar
í bænum Huntington Beach, Kaliforníu, hafa
vinsældir þessarar ágætu verslunar þannig
aldeilis vaxið og ekki margir sem geta fetað í
fótspor slíks risaveldis.
Hvaða leður viltu, ljúfan ...
Kúrekastígvél má svo finna auðvitað víða. Á
vefsíðunni www.timsboots.com er til að mynda
hægt að hanna sín stígvél eftir geðþótta og
smekk hverju sinni. Í boði eru margs konar
saumar og mynstur, stærðir og víddir – en að
auki er hægt að velja um margvíslegt leður.
Úrvalið kemur jafnvel hörðustu kúrekum
á óvart. Hægt er að fá allt frá hinum sæmilega
vel þekktu valmöguleikum á borð við
krókódíla, snáka og strútaleður, en einnig
leður gíraffa, ála, flóðhesta, fíla, hákarla
og fornaldarfisksins Pirarucu – sem einnig
gengur undir nafninu Arapaima fiskurinn.
Er það einn stærsti hreistraði ferskvatns-
fiskur í heimi, er að finna í suður-amerískum
hitabeltisvötnum Amazon og í meginatriðum
óbreyttur frá tímabili risaeðlanna –
Júratímabilinu svokallaða.
Eru stígvél gerð úr leðri pirarucu fisksins vel
metin vegna þess hve mjúk og meðfærileg þau
eru, auk þess að vera sérstaklega endingargóð.
Þau má til dæmis finna á vefsíðum á borð
við www.cavenders.com, sem hefur mikið
úrval kúrekastígvéla. Ein eru þó þau sem eru
hvað allra best stígvélaleðurtegunda sem völ
er á; ástralskt kengúruleður.
Vilja sérfræðingar í þessum efnum meina
að þarna sé um að ræða afar þunnt og létt leður
sem þó er mögulega það sterkasta í heiminum.
Til viðbótar við að vera vinsælt í stígvél er
leðrið helst allra notað í svipur þar sem hægt
er að skera það þunnt án
þess að það slitni.
Verði ykkur að
góðu og gleðilega
páska! /SP
Ein þekktustu stígvél landsins er prýddu
forsíðu 6.tbl. Bændablaðsins á dögunum.
Hrafninn, eða krummi, er vel þekktur í íslensku fuglafánunni. Hann er stærstu allra spörfugla og auðþekkjanlegur á stærð, útlit og hljóði. Hans er víða getið í þjóðsögum, vísum, söngtextum, göldrum og hjátrú.
Þeir eru hrekkjóttir og uppátækjasamir líkt og fuglinn á myndinni sem var að tína lauf og greinar af ösp. Þeir eru einstaklega gáfaðir og enn þann dag í dag eru rannsóknir að sýna fram á að þeir fuglar sem eru
í ætt hröfnunga (hrafnar, krákur, skjór o.fl) sýna einstaka hæfileika í að leysa verkefni, búa til áhöld, eru minnugir t.a.m. á andlit, og margir hæfileikar þeirra er eitthvað sem áður var talið að væri eingöngu að
finna í fari manna. Hér á Íslandi eru hrafnar útbreiddir um allt land. Hrafninn helgar sér óðal sem hann ver af miklum krafti. Þeir verpa gjarnan í klettum og giljum en nokkuð er um að þeir geri sér líka hreiður í
alls konar mannvirkjum. Undanfarin ár hefur síðan færst í aukana að þeir geri sér hreiður í trjám. Þeir parast snemma og má búast við því nú þegar að fuglar séu farnir að huga óðali sínu.
Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Tíska:
Fótabúnaður þeirra djörfu
Á vefsíðunni www.timboots.com má finna einstakt úrval kúrekastígvéla. Á meðfylgjandi mynd er þaðan skótau úr leðri gaddaskötu.
Fornaldarfiskurinn pirarucu.
Stígvél úr leðri pirarucufisksins.