Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 34
32 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Farið þið líka erlendis á veiðar?
Í gegnum Instagram höfum við kynnst frábæru fólki
sem á sama áhugamál víðs vegar um heiminn. Sjálf hef
ég farið á elgsveiðar í Svíþjóð með sænskum vinkonum,
til Austurríkis að veiða múrmeldýr og Póllands að veiða
villisvín og rádýr. Næsta ferð er núna í október, þá ætlum
við hjónin, ásamt dóttur okkar og tengdamömmu að gera
tilraun til að veiða Chamois, sem er eins konar fjallageit
sem lifir í Ölpunum.
Myndir þú segja að þetta væri áhugamál eða
ástríða hjá þér?
Ég myndi segja að veiðarnar séu áhugamál hjá mér en
ástríða hjá Gunnari. Það er mjög sterkt í honum að þurfa
að komast reglulega á veiðar, á meðan ég er öllu rólegri
og nýt þess að fara í veiðiferðir þegar tækifærið gefst.
Eru þið búin að smita fjölskyldu og vini af áhuga
ykkar á veiðum?
Gunnar er fæddur inn í mikla veiðifjölskyldu og ber þar
að nefna afa hans og móðurbróður. Tengdamamma mín
er einnig með byssuleyfi en hún stundar ekki veiðar,
aðrar en þær að verja æðarvarpið á Rauðasandi fyrir
vargi.
Nýtið þið dýrin sem þið veiðið til matar og
jafnvel skinn af einhverjum dýrum í fatnað eða
annað?
Við tökum þeim hluta mjög alvarlega og reynum að nýta
allt eftir bestu getu. Kjötið borðum við og höfum gert
ýmsar tilraunir til að nýta allar afurðir sem best. Skinn
höfum við sent í sútun eða komið á aðila sem geta nýtt
þau. Ég hef einnig stundum komið beinum, klaufum og
hornum á handverksfólk sem ég þekki sem hefur getað
notað afurðirnar í listmuni.
Kostir og gallar við að stunda veiðar á Íslandi?
Náttúran er auðvitað engri lík. Veðrið er óútreiknanlegt,
sem gerir allt flóknara en stundum líka meira spennandi.
Fyrir mig hefur kuldinn verið mín stærsta áskorun, en
með árunum hef ég náð tökum á þeim vanda með góðum
útbúnaði. Svo þegar maður hefur prófað að fara á veiðar
erlendis þá finnur maður hvað það er gott að þurfa ekki
að hafa áhyggjur af hættulegum skordýrum og slöngum
hér á Íslandi. Helsti gallinn er kannski sá að úrval
veiðitegunda er ekki sérstaklega mikið hér á í samanburði
við mörg önnur lönd.
Fallegasti staður á Íslandi?
Rauðisandur.
Uppáhaldsmatur?
Andabringur.
Uppáhaldsárstíminn?
Ég hef alltaf verið mikil haustmanneskja en haustið er
einmitt helsti tími veiðimannsins. Að liggja í skurði
í sólarupprás á fallegum haustmorgni með von um
að tálgæsirnar dragi til sín gæsahópa frá náttstað er
frábær stund. Haustlitirnir eru fallegir og breyta ásýnd
náttúrunnar í stutta stund áður en veturinn gengur í garð.
Veðrið er líka oft kyrrt og gott á haustin sem gerir það
enn dásamlegra að vera úti við á þeim árstíma.
Sportið
„Að liggja í skurði í sólarupprás
á fallegum haustmorgni með
von um að tálgæsirnar dragi til
sín gæsahópa frá náttstað er
frábær stund.“