Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 43
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 41
Núna, rúmlega 100 árum eftir fyrsta sameiginlega fundinn,
er Samvinna hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN),
regnhlífarsamtök 340.000 hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum.
Hundrað ára stórafmæli samtakanna var fagnað með
afmælisráðstefnu þar sem fulltrúar frá Íslandi létu sig ekki vanta.
Aðeins nánar um samtökin en Samvinna hjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum (SSN) er svæðisbundin samvinna stéttarfélaga
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum sex. Hlutverk SSN er
meðal annars að beina athygli sinni að þróun og eiga frumkvæði
í málum sem hafa áhrif á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á
Norðurlöndum. Samvinnan á að leggja sitt af mörkum til
100 ára
afmælisráðstefna
SSN í Kolding
Í septembermánuði árið 1920 klæddu um það bil 1000
hjúkrunarfræðingar sig upp á og héldu til Kaupmannahafnar með
skipi eða lest. Hjúkrunarfræðingarnir komu frá Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og Danmörku. Tilgangurinn var að hittast á fyrsta
sameiginlegum norrænum fundi sem var ætlaður hjúkrunarfræðingum
á Norðurlöndunum en það var danska hjúkrunarfélagið sem stóð fyrir
fundinum. Ísland hefur verið aðili að samtökunum síðan 1923 og tekur
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga virkan þátt í starfi SSN.
áframhaldandi þróunar hinnar almennu heilbrigðisþjónustu og
hjúkrunar á Norðurlöndum. Til að styrkja þessa þróun á SSN að
eiga samvinnu við, og hugsanlega sækja um aðild að, viðeigandi
norrænum, evrópskum og alþjóðlegum samtökum.
Afmælisráðstefna samtakanna var haldin í september síðastliðnum
í Kolding í Danmörku. Upphaflega átti að halda ráðstefnuna
árið 2020 þegar 100 ár voru liðin frá stofnun samtakanna,
vegna heimsfaraldursins var henni frestað þar til í ár. Sérstök
undirbúningsnefnd hafði frá árinu 2018 unnið að því að undirbúa
ráðstefnuna og var fulltrúi Íslands í nefndinni Edda Dröfn
Daníelsdóttir, sviðsstjóri fagsviðs Fíh.
Umsjón: Edda Dröfn Daníelsdóttir
100 ára afmælisráðstefna SSN í Kolding
Eydís Sigfúsdóttir og Heiðdís Hlíf Hjaltadóttir Ólafur fyrrverandi formaður Fíh og Guðbjörg núverandi formaður ásamt
Pamelu Cipriano forseta ICN