Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Page 50
48 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Ráðstefna ENDA
á Selfossi
Ráðstefna samtaka evrópskra hjúkrunarstjórnenda (ENDA) fór fram
á Selfossi dagana 14.–17. september. Þessi ráðstefna var 15. ráðstefna
ENDA en samtökin fögnuðu 30 ára afmæli í ár. Þátttaka fór fram úr
björtustu vonum en alls sóttu 190 hjúkrunarfræðingar ráðstefnuna
og komu víða að. Íslensk náttúra og fallegt bæjarstæði Selfoss tók
vel á móti þátttakendum en á fyrsta kvöldi ráðstefnunnar sáust
Norðurljós sem vöktu mikla athygli erlendra gesta.
Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar var skipuð Guðlaugu Rakel
Guðjónsdóttur, formanni ENDA, og Margréti Hallgrímsson,
hjúkrunarfræðingi og ljósmóður. Formaður vísindanefndar
var Helga Bragadóttir, prófessor og deildarforseti
hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands.
Þema ráðstefnunnar var valið út frá þeim áskorunum sem
hjúkrunarstjórnendur standa frammi fyrir í umhverfis-
málum og breyttri heimsmynd vegna loftslagsmála.
Heilbrigðisstofnanir með flókna og dýra starfsemi og mikinn
mannauð þurfa í öllu tilliti að tileinka sér nýja nálgun á
viðfangsefnin. Ekki síst eru sjúkrahús umhverfiskrefjandi
stofnanir sem þurfa mikil aðföng og skila frá sér miklu magni
af úrgangi. Hjúkrunarstjórnendur gegna mikilvægu hlutverki í
Ráðstefna ENDA á Selfossi
að draga úr kolefnisspori heilbrigðisstofnana með því að virkja
umhverfismeðvitund starfsfólks og leita allra leiða sem eru
betri fyrir umhverfið og tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga.
En loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra hafa mikil áhrif á
heilsufar.
Kvöldið fyrir ráðstefnuna var viðburður á Snæfoksstöðum
í Grímsnesi. Þar var gróðursett tré fyrir hvern þátttakanda
ráðstefnunnar. Þetta tókst frábærlega, var ákveðinn ísbrjótur
þar sem allir unnu saman að ákveðnu verkefni sem skilar sér
til komandi kynslóða.
Fjölmörg erindi voru flutt í málstofum, auk aðalfyrirlestra,
kynninga á veggspjöldum og tveggja vinnusmiðja.
Texti: Sölvi Sveinsson / Myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir ofl.