Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 52
50 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Alltaf hægt
að gera meira
og betur í
umhverfismálum
Hvernig hefur gengið að fylgja umhverfisstefnu
Landspítalans eftir?
Ég myndi segja að framan af hafi fyrirtæki látið nægja
að móta stefnu og svo ekki meira. Landspítalinn
er í um 100 byggingum og starfsmenn hans eru
rúmlega 6.000 í rúmlega 4.000 stöðugildum. Þetta er
heilmikið batterí að halda utan um en mikið hefur
verið gert í umhverfismálum og allir starfsmenn
þurfa að taka þátt í því verkefni. Að flokka rusl og
vistvænar samgöngur eru liður í því en svo er verið
að gera margt á bak við tjöldin eins og að innleiða
eyðingarbúnað fyrir glaðloft á fæðingardeildina.
Glaðloftsnotkun við eina dæmigerða fæðingu hefur
jafnmikil loftslagsáhrif og 1.500 km akstur bensínbíls
eða rúmlega hringinn um landið. Annað sem var gert
og minnkaði kolefnisspor spítalans um 240 tonn á ári
var að olíuketill á Hringbraut var aflagður.
Hvaða skref í átt að umhverfisvænni Landspítala
hafa vegið þyngst á undanförnum áratug, eða
síðan umhverfisstefnan var sett í gang?
Við náðum að draga saman kolefnisspor okkar um
40% á fimm árum. Verkefni sem gerast á bak við
tjöldin eins og nefnt var hér á undan skipta miklu
máli og einnig hvað starfsmenn eru duglegir að
flokka. Það eru fáar stofnanir með umhverfisstjóra
en til að ná góðum árangri tel ég það nauðsynlegt.
Upphaflega kom krafan um að bæta umhverfisstarfið
frá starfsmönnum sem bera umhyggju fyrir
umhverfinu, frumkvæðið kom þaðan og við erum
að ná árangri í úrgangsmálum á Landspítalanum.
Annað sem vegur þungt er að frá árinu 2014 höfum
við verið að virkja starfsfólk í vistvænum samgöngum;
ganga, hjóla, taka strætó, sem hefur skilað árangri.
T.d. samgöngusamningar og verkefni með Strætó.
Starfsmenn sem skuldbinda sig til að ferðast 40%
ferða til og frá vinnu fá árskort á 29.500 kr. Þeir sem
skuldbinda sig til að fara 80% ferða fá aukalega 5.000
kr. á mánuði í samgöngustyrk. Þegar ár var liðið af
átakinu var 400% aukning í árskortum hjá Strætó,
um 560 starfsmenn voru þá komnir með árskort.
Við höfum einnig verið að byggja upp aðstöðu fyrir
hjól og svo erum við að laga búningsaðstöðu. Við
höfum líka verið með rafhjólaverkefni í gangi þar sem
starfmönnum býðst að fá lánað rafhjól í mánuð og
margir sem hafa prófað það segjast í framhaldinu
ætla að kaupa sér rafhjól. Tilgangurinn er að
auðvelda fólki að máta sig við vistvænan ferðamáta
ef það hentar. Landspítali hefur einnig boðið upp á
deilibíla, lánsrafhjól og rafskútur sem starfsmenn
geta pantað, eins og fundarherbergi, til að fara á milli
staða á vinnutíma. Annar stór þáttur er að spítalinn
hefur hætt notkun á svæfingagösum með mikið
kolefnisspor og margt fleira.
Viðtal og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Hulda Steingrímsdóttir er líffræðingur, fædd á Ísafirði, með meistaragráðu í
umhverfisstjórnun. Frá árinu 2015 hefur Hulda gegnt stöðu umhverfisstjóra við
Landspítala. Hún er með skrifstofu í Skaftahlíð, býr í Skerjafirði og hjólar flesta
daga í og úr vinnu. Ritstýran kíkti í Skaftahlíðina og spjallaði við Huldu sem hefur
brennandi áhuga á umhverfismálunum, flokkun, betri nýtingu og minni sóun fyrir
komandi kynslóðir og heilsu jarðar. Eftir áhugavert spjall var Hulda til í myndatöku
úti í haustsólinni með reiðfákinn fagra sem á sinn þátt í því að minnka kolefnisspor
eiganda síns.
Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisstjóri Landspítala
Viðtal