Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 56
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Líknarmeðferð og
líknarþjónusta á Íslandi
Höfundar:
Dóra Björk Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur í heimahlynningu SAk,
með framhaldsmenntun á sviði krabbameins- og líknarhjúkrunar.
Svandís Íris Hálfdánardóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun og
verkefnastjóri líknarmiðstöðvar Landspítala.
Líkn og líknarmeðferð
Orðið líkn merkir að milda þjáningu, hjálpa eða hjúkra. Það
er gert daglega á hinum ýmsu heilbrigðisstofnunum landsins
sem og inni á heimilum fólks. Það að veita líknarmeðferð
hefur í hugum margra einskorðast við meðferð sem veitt er við
lok lífs, þ.e. þegar einstaklingur er deyjandi og því hefur það
oft og tíðum valdið fólki áhyggjum og álagi þegar minnst er
á líknarmeðferð. Á síðustu áratugum hefur þó orðið töluverð
hugarfarsbreyting, bæði hérlendis og erlendis, þar sem reynsla
og rannsóknir hafa sýnt fram á að þær aðferðir sem notaðar
eru í líknarmeðferð einskorðast ekki við síðustu daga eða vikur
í lífi fólks heldur er hægt að beita þeim samhliða læknandi
og lífslengjandi meðferð. Kjarni líknarmeðferðar kemur
fram í skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) frá 2002, þar sem segir að líknarmeðferð sé meðferð
sem miðar að því að bæta lífsgæði sjúklinga sem eru með
lífsógnandi sjúkdóma og fjölskyldna þeirra. Samkvæmt
WHO felst meðferðin í að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri,
sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Líknarmeðferð á við
snemma á veikindatímabilinu samhliða annarri meðferð sem
notuð er til að lina einkenni en jafnframt að lengja líf. Þegar
lífslengjandi meðferð er ekki lengur talin skila árangri stendur
líknarmeðferðin ein og sér. Vægi líknarmeðferðar eykst því
með versnandi sjúkdómi.
Almenn og sérhæfð líknarmeðferð
Gerður er greinarmunur á almennri og sérhæfðri líknar-
meðferð. Allt heilbrigðisstarfsfólk á að hafa grunnþekkingu í
líknarmeðferð og heildrænni nálgun við sjúklinga. Starfsfólk á
að geta aðstoðað og stutt sjúklinga, og fjölskyldur, við að lifa
með lífsógnandi og/eða versnandi sjúkdóma og veita meðferð
Undanfarin ár og áratugi hefur mikil þróun verið í
líknarmeðferð á heimsvísu. Rannsóknir á þessu sviðið
hafa aukist, breytingar orðið á umönnun og meðferð en
einnig hefur verið unnið að því að auka þekkingu bæði
heilbrigðisstarfsfólks og almennings á líknarmeðferð.