Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 57
3. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 55
Líknarmeðferð og líknarþjónusta á Íslandi
Líknarmeðferð og
líknarþjónusta á Íslandi
sem stuðlar að sem bestum lífsgæðum viðkomandi,
óháð sjúkdómsgreiningu eða sjúkdómsstigi.
Starfsfólk á öllum heilbrigðisstofnunum landsins
sinnir því almennri líknarmeðferð í starfi.
Sérhæfð líknarmeðferð hefur sömu markmið og
almenn líknarmeðferð en hefur yfir fleiri úrræðum
að ráða til að ná þessum markmiðum. Í sérhæfðri
líknarmeðferð er megináherslan á að sinna
sjúklingum með versnandi sjúkdóma og erfiðum,
fjölþættum og flóknum einkennum af ýmsum toga.
Það starfsfólk sem vinnur í sérhæfðri líknarþjónustu
vinnur nær eingöngu með þessum hópi skjólstæðinga
og hefur oft aflað sér aukinnar menntunnar á þessu
sviði og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu.
Fjórir sérfræðingar í líknarhjúkrun starfa nú innan
sérhæfðrar líknarþjónustu Landspítala, einn í HERU
(sérhæfðri líknar-heimaþjónusta Landspítala), einn á
líknardeild og tveir í líknarráðgjafarteyminu.
Framhaldsnám í krabbameins- og líknarhjúkrun er
kennt við HA og HÍ. Báðir háskólarnir bjóða upp á
meistara-nám auk doktorsnáms. Nokkrir læknar hafa
lokið samnorrænu sérfræðinámi í líknarlækningum
en árið 2015 voru líknarlækningar viðurkennd sem
undirsérgrein í sérfræðilækningum hér á Íslandi.
Sérhæfð líknarþjónusta á Íslandi
Uppbygging sérhæfðrar líknarþjónustu hófst
ekki fyrr en á níunda áratug síðustu aldar hér á
Íslandi. Heimahlynning Krabbameinsfélag Íslands
hóf störf 1987 og var starfrækt til ársins 2006 en
þá flutti starfsemin á Landspítalann og varð að
Heimahlynningu Landspítala. Heimahlynning
á Akureyri hóf svo störf 1992 og hjúkrunar- og
ráðgjafarþjónustan Karítas árið 1994. Í dag eru
Heimahlynning Landspítala og Karítas sameinaðar;
HERA er sérhæfð líknarþjónusta (Heima-Eftirlit-
Ráðgjöf-Aðstoð). Líknarráðgjafarteymi Landspítala
var stofnað 1997 og líknardeild Landspítala
árið 1999. Líknarlæknar og hjúkrunarfræðingar
líknarráðgjafarteymis sinna einnig sjúklingum á
göngudeild spítalans. Heimahlynning á Akureyri hefur
verið hluti af Sjúkrahúsinu á Akureyri síðan árið 2019.
Starfsfólk sérhæfðrar líknarþjónustu hefur í gegnum
árin sinnt skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra,
innan sem utan sjúkrahúsa, veitt starfsfólki ráðgjöf,
sinnt fræðslu sem og kennslu og starfsþjálfun
nema í hinum ýmsu heilbrigðisgreinum. Einnig
hefur starfsfólk tekið þátt í og sinnt rannsóknum og
þróunarvinnu.
Aðgerðaráætlun
Árið 2021 birti heilbrigðisráðuneytið fimm ára
aðgerðaráætlun varðandi líknarþjónustu á
Íslandi. Þar er birt sú stefna að bæta aðgengi
allra landsmanna að líknarþjónustu með því að
samræma og samhæfa líknarþjónustu á landsvísu.
Aðgerðaráætlunin er byggð á tveimur skýrslum
sem áður höfðu verið unnar: Samþætting líknar- og
lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið og skýrslu
um Framtíðarskipan líknarþjónustu á Íslandi – með
sérstakri áherslu á höfuðborgarsvæðið, Suðurnes,
Vesturland og Suðurland.
Það er ánægjulegt að aðgerðaráætlun varðandi
líknarþjónustu hér á landi sé fyrir hendi en
starfsfólk í sérhæfðri líknarþjónustu hefur lengi
kallað eftir slíkri áætlun. Í aðgerðaráætluninni
eru lagðar til aðgerðir til að efla og byggja upp
líknarþjónustu á sérgreinasjúkrahúsum og einnig
á hjúkrunarheimilum og í þjónustu við fólk í
heimahúsum. Við gerð þessarar áætlunar voru höfð
til hliðsjónar fyrirmæli WHO um að líknarmeðferð
skuli vera hluti af almennri heilbrigðisþjónustu
aðildarríkja WHO.
Aðgerðaráætlun stjórnvalda setur líknarþjónustu
í brennidepil þar sem mikilvægi líknarmeðferðar
er viðurkennd og efling hennar forgangsverkefni
sjúklingum og fjölskyldum þeirra til góða. Þar er
lögð áhersla á aðgengi að þjónustu, stuðning og
eflingu þekkingar sem og að tryggja þurfi gæði
líknarþjónustu á stofnunum og í heimahúsum.
Aðgengi og efling þekkingar
Í aðgerðaráætluninni er meðal annars lagt upp með
að auka eigi aðgengi fagfólks að sérfræðiþekkingu
á líknarmeðferð og vinna að því að efla þekkingu
fagfólks á líknarmeðferð, bæði á stofnunum og
í heimahjúkrun. Áætlunin miðar líka að því að
sérhæfð líknarmeðferð standi öllum sjúklingahópum
til boða og að tryggja eigi gæði líknarþjónustu á
hjúkrunarheimilum og í heimahúsum. Þó að vel sé
gert þegar líknarmeðferð er veitt skjólstæðingum
víða um land, má alltaf betur gera og fagfólk hefur
sýnt vilja til eflingar líknarþjónustu enn frekar.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að sérgreinasjúkrahús
landsins, sem eru Landspítali og Sjúkrahúsið á
Akureyri verði ráðgefandi og leiðandi í samhæfingu
þessarar þjónustu á landsvísu.
Í dag er hægt að fá sérhæfða líknarráðgjöf hjá líknar-
ráðgjafarteymi Landspítala. Slík ráðgjöf getur meðal
annars falið í sér ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks við
„ Aðgerðaráætlun stjórnvalda setur
líknarþjónustu í brennidepil þar sem
mikilvægi líknarmeðferðar er viðurkennd
og efling hennar forgangsverkefni
sjúklingum og fjölskyldum þeirra til góða.“