Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 82
80 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 98. árg. 2022
Tengsl á milli upplifaðs álags foreldra á gjörgæslu
og vanlíðanar þeirra: Niðurstöður sýna að aukin
álagsupplifun foreldra af veikindum barna þeirra á meðan á
gjörgæslulegunni stóð hafði áhrif á líkamlega og andlega líðan
foreldra sex vikum síðar. Þegar borin voru saman heildarstig
hvers foreldris fyrir sig kom í ljós að eftir því sem foreldrar
fengu hærri heildarstig úr PSS:PICU, þ.e. upplifðu almennt
meira álag á matstækinu voru marktækt auknar líkur á að þeir
fyndu fyrir einkennum þunglyndis (r=0,462, p<0,05). Þegar litið
var til álagsflokkanna sjö (undirflokkar PSS:PICU) hvert í sínu
lagi voru marktæk tengsl milli útlits barns og þess að upplifa
líkamlega vanlíðan, kvíða- og þunglyndiseinkenni. Einnig
sáust marktæk bein tengsl á upplifun samskipta við fagfólk og
fjölgandi þunglyndiseinkenna. Önnur marktæk tengsl sáust
ekki milli álagsflokkanna sjö og upplifaðra andlegra og/eða
líkamlegra einkenna (Tafla 3).
Þegar litið var nánar á staka þætti sem tilheyra hverjum
álagsflokki í PSS:PICU kom í ljós að nokkrir höfðu marktæk
tengsl við andlega og líkamlega líðan foreldra samkvæmt
SCL-90. Aukin líkamleg vanlíðan foreldra hafði marktæk tengsl
við átta þætti innan PSS:PICU en þau voru; að barnið væri
þrútið, virðist vera kalt, breytt foreldrahlutverk, tilfinningin
að geta ekki sinnt barni, uppnám barns, mótþróafull hegðun,
verkjahegðun og eirðarleysi barns. Kvíðaeinkenni höfðu
marktæk tengsl við sex þætti þar sem breytt foreldrahlutverk
hafði mestu marktæku tengslin við kvíða, en einnig við að
barnið væri þrútið, virðist vera kalt; mar, rispur eða skurðir á
barni, mismunandi starfsfólk og að geta ekki verið hjá grátandi
Áhrif gjörgæslulegu barns á líðan foreldra
barni sínu. Upplifun þunglyndiseinkenna hafði marktæk
tengsl við mótþróafulla hegðun barnsins en fylgnin þar á milli
var mjög sterk og nákvæm. Fimm önnur atriði höfðu marktæk
tengsl við upplifun þunglyndiseinkenna, að barn væri þrútið,
starfsmenn segi ekki til nafns, geta ekki sinnt eða verið hjá
grátandi barni sínu ásamt ótta upplifun barns. Að barn væri
sogað af heilbrigðisstarfsmanni hafði marktæk tengsl við reiði
en einnig hafði heildarupplifun foreldra af gjörgæsludvölinni
marktæk tengsl við upplifun reiðieinkenna (Tafla 4).
Tengsl upplifaðs álags foreldra á gjörgæslu og einkenna
áfallastreituröskunar: Þegar bornar voru saman niðurstöður
úr álagsmælingu PSS:PICU við auknar líkur á þróun
áfallastreituröskunar samkvæmt PCL-5, kom í ljós að marktæk
tengsl eru við álag af völdum útlits barns (r=0,462, p<0,05),
verkja- (r=0,558, p<0,01) og reiðihegðunar barns (r=-0,698,
p<0,05) ásamt heildarálagsmati foreldra (r=0,397, p<0,05).
Einnig sést að sterk marktæk tengsl eru milli allra þátta
andlegrar og líkamlegrar vanlíðanar og upplifun einkenna
áfallastreituröskunar í úrtakinu (sjá töflu 5).
Tengsl alvarleikaskors barna við vanlíðan og
áfallastreituröskunar foreldra: Þegar tengsl alvarleikaskors
veikinda barna (PRISM) við líkamlega og andlega líðan
foreldra, SCL- 90, var skoðað kom í ljós að hærra alvarleikaskor
tengdist marktækt meiri líkamlegri vanlíðan foreldra, kvíða
og einkenni reiði. Einnig voru marktækt hærri gildi einkenna
um áfallastreituröskun samkvæmt PCL-5 eftir því sem börnin
skoruðu hærra á PRISM (sjá töflu 6).
Tafla 4. Aukin álagsupplifun af stökum þáttum PSS:PICUa og tengsl þeirra við andlega og líkamlega vanlíðan (SCL-90), N=29
Einkenni Líkamleg vanlíðan
r
Kvíði
r
Þunglyndi
r
Reiði
r
Að barn væri þrútið 0497* 0,580* 0,645* -
Barni virðist vera kalt 0,507* 0,587* - 0,231*
Geta ekki sinnt barni sínu 0,711** 0,641** 0,650* -
Geta ekki verið hjá grátandi barni sínu - 0,702* 0,456* -
Uppnám barns 0,571* - - -
Ótti barns - - 0,518* -
Mótþróafull hegðun 0,854** - 0,825** -
Verkjahegðun 0,395* - - -
Eirðarleysi barns 0,584* - - -
Mar, rispur eða skurðir á barni - 0.398* - -
Mismunandi starfsfólk/ Starfsfólk segi ekki
til nafns
- 0,486* 0,555* -
Barn sé sogað af heilbrigðisstarfsmanni - - - 0,579*
Heildarálagsupplifun - - - 0,517*
*p<0,05; **p<0,01
a einungis eru birtar niðurstöður þar sem um marktæk tengsl var að ræða
Tafla 3. Aukin álagsupplifun af flokkum PSS:PICUa og tengsl þeirra við andlega og líkamlega vanlíðan (SCL-90), N=29
Einkenni Líkamleg vanlíðan
r
Kvíði
r
Þunglyndi
r
Reiði
r
Útlit barns 0,543** 0,513** 0,601** 0,333
Samskipti við fagfólk 0,201 0,218 0,451* 0,231
*p<0,05; **p<0,01