Heilbrigt líf - 01.12.1942, Blaðsíða 6
læknisrannsókninni á þeim, sem grunaðir eru um ölvun
við akstur. En síðan 1935 hefir lögreglan í Reykjavík, og
víðar, látið gera rannsóknir á blóði allmargra manna, sem
slíkur grunur hefir hvílt á, ef vera mætti, að sú rannsókn
gæfi bendingar um sekt eða sýknu.
Svo sem fyrr segir, getur oft orkað tvímælis, hvort
maður sé ölvaður eða ekki. Þau einkenni, sem ölvun veldur
að jafnaði, og lýsa sér ýmist andlega eða líkamlega, eða
hvort tveggja, geta stafað af öðrum orsökum en nautn
áfengis. Ýmis önnur eiturefni en áfengi, geta valdið svip-
uðum breytingum á háttum manna, en einnig geta ýmsir
sjúkdómar komið til greina„ Því fer þess vegna fjarri, að
það sé alltaf einfalt mál að fella úrskurð um, hvort maður
sé ölvaður eða ekki, og gildir þetta jafnt, hvort sem dómar-
inn á að byggja á framburði lögreglunnar, vitna, eða al-
mennri læknisskoðun út af fyrir sig.
Það er hvergi nærri einhlítt, þótt áfengislykt leggi af
vitum hins grunaða. Oft, og jafnvel oftast, vill svo til, að
slys hefir orðið, og ökumaðurinn vakið á sér gruninn fyrir
þær sakir. En vel getur málum þá verið svo farið, að öku-
maðurinn hafi sjálfur slasazt, fengið heilahristing og
orðið ruglaður í bili, hafi beinbrotnað eða slasazt svo á
annan hátt, að eigi sé hægt að gera almennar rannsóknir,
til þess að skera úr um, hvort hann sé ölvaður eða ekki.
Þegar svo stendur á, getur mæling áfengismagns í blóði
hans gefið réttvísinni mikilvæga vitneskju um hið sanna
í málinu.
Mæling áfengismagns í blóði hefir tíðkazt um allmörg ár
erlendis, eftir að aðferðir fundust til að framkvæma slíka
rannsókn, aðferðir, sem talist gætu nægilega öruggar, en
þó eigi flóknari en svo, að þær væru vel gerlegar.
Sú aðferð, sem einna mest er notuð á Norðurlöndum,
og raunar víðar, er kennd við sænskan prófessor, Wid-
mark að nafni, og hefir hann lagt mjög mikla vinnu í að
132
Heilbngl líf