Heilbrigt líf - 01.12.1942, Blaðsíða 104
III. Starfsemin á árinu:
1. VarúíSarráíSstafanir vegna KernaíiaraíSgerSa:
A. Bráðabirgðasjúkrahús: Sjúkrarúm með öllum útbúnaði voru
sett upp í Austurbæjarbarnaskólann, Verzlunarsk. og Lauganessk.
strax og nemendur yfirgáfu þá í apríl. Einnig' var starfsfólk ráðið
að nokkru leyti og stóð svo allt sumarið, en um haustið varð að
flytja þetta saman aftur, er nemendur komu á ný í skólana. Auk
þessa réð R. K. I. yfir miklu húsnæði í öðrum skólum bæjarins.
B. Forðabúr hjúkrunargagna var aulcið um helming (sjá síðustu
skýrslu) og er nú um 100 þús. kr. að verðmæti. En þó er það hvergi
nærri nóg að dómi sérstaklega vel dómbærra sendimanna frá Rauða
Krossi Bandaríkjanna, og eru nú á leiðinni 800 sjúkrarúm með
öllum útbúnaði og ýmsum hjúkrunargögnum sem gjöf til R. K. í.
frá Ameríska Rauða krossinum. Sá útbúnaður er liklega hálf millj.
kr. að verðmæti.
C. D. Hjálparstöðvar og Hjálparsveitir: Hvort tveggja hefir verið
aukið og endurbætt og betri tillögur um fjarvistir á sunnudögum
yfir sumarmánuðina. Skv. ósk landlæknis, lánaði enska setuliðið
stór tjöld til þess að setja upp í skyndi, ef stór sjúkrahús yrðu
fyrir alvarlegri árás. — Voru skátar æfðir í að tjalda þeim og
þau geymd á góðum stað í Landsp., Sct. Jós.sp., Kleppi og Vífilsst.
Setuliðið hefir nú, án þess að stjórn R. K. I. sé kunnugt hvers
vegna, hirt öll tjöldin.
E.F.G. Bréfskeyti, símskeyti og sendingar til stríðsfanga hafa
gengið svipað og árið áður. Talsvert er og um fyrirspurnir frá
Genf út af týndum mönnum.
H. Blóðgjafir: Samkvæmt tillögu próf. N. Dungals, og að
fengnu loforði hans fyrir aðstoð Rannsóknastofu Háskólans til
allra framkvæmda, var hafizt handa um að safna blóðvatni til
lækninga, ef til hernaðaraðgerða kæmi. Ahöld voru pöntuð frá
Englandi í ársbyrjun, en voru ókomin í september, er málið var
falið sendih. Islands í London og komu þau þá með fyrstu ferð.
Blóðtökurnar fóru fram daglega um tveggja mánaða skeið í
Austurbæjarskólanum og unnu að blóðtökunni læknarnir Bjarni
Jónsson og Gunnar Cortes, með aðstoð Guðrúnar Gíslad. hjúkr-
unarkonu. En Guðm. Kristjánsson, starfsmaður Rannsóknastofu
Háskólans, vann svo blóðvatnið úr blóðinu og kom því fyrir í
g'eymslu. Alls voru teknir 15714 lítrar af blóði og fengust úr því
70 lítrar af blóðvatni, en gefendur voru 570, þar af 500 karlar og
230
Heilbrigt líf