Heilbrigt líf - 01.12.1942, Blaðsíða 120
fjarðar fyrir forg-öngu Halldórs Kristinssonar, héraðslæknis. Stofn-
endur voru 370 að tölu.
A þessum stofnfundi voru samþykkt lög' fyrir deildina, sam-
hljóða lögum deildarinnar á Sauðárkróki, nema ársgjald var hækk-
að úr kr. 3.00 í kr. 5.00.
Þá var kosin 7 manna stjórn fyrir deildina. Þessir hlutu kosn-
ingu: Halldór Kristinsson, héraðslæknir, Daníel Danielsson, lækn-
ir, Lárus Jónsson, læknir, Gestur Fanndal, kaupm., Einar Kristjáns-
son, lyfjafræðingur, Þormóður Eyjólfsson, konsúll og Jóhann Jó-
hannsson, cand. theol.
17. apríl s. á. kom hin nýkjörna stjórn saman á fund til að skipta
með sér verkum.
Formaður var kjörinn Halldór Kristinsson, varformaður Þormóð-
ur Eyjólfsson, gjaldkeri Gestur Fanndal og ritari Jóhann Jóhanns-
son.
Fundurinn samþykkti að sækja um upptöku fyr'ir deildina í
R.K.Í. Nokkru seinna barst deildinni bréf R.K.Í., þar sem tilkynnt
var, að Rauða Kross deild Siglufjarðar hafi verið staðfest sem full-
gild deild í R.K.Í.
Með bréfinu barst deildinni gjöf frá R.K.Í., að upphæð kr.
309.00. Skyldi það vera stofnfé deildarinnar hér, og var helmingur
þeirrar fjárhæðar, sem safnast hafði hér á Siglufirði, undanfarna
öskudaga.
A þessum sama fundi var samkvæmt ósk bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar, kosinn 1 maður í nefnd, sem annast átti brottflutning
barna úr Siglufirði. Kosningu hlaut Einar Kristjánsson.
Þá var einnig samþykkt að gangast fyrir sameiginlegum fundi
loftvarnanefndar og stjórnar Rauða Kross deildarinnar til þess
að ræða um þátttöku deildarinnar í starfsemi loftvarnanefndar.
Þessi sameiginlegi fundur var haldinn 2. maí s. á., og var sam-
þykkt að fela stjórn deildarinnar að útvega nauðsynleg sjúkra-
gögn, sjúkraskýli og annast sært fólk, ef til loftárása kæmi.
Stjórn deildarinnar hefir síðan unnið nokkuð að þessum málum.
Hefir hún útvegað nokkuð af sjúkragögnum, sjúkraskýli og æft
hjálparsveitir. Þessum undirbúningi er þó enn eigi lokið, en líkur
eru til, að úr þessu rætist bráðlega.
A þessu starfsári hafa verið haldnir 8 stjórnarfundir. Hafa
fundir þessir að mestu fjallað um þær ráðstafanir, sem hægt væri
að gera, og gera bæri, til þess að vera sem bezt undirbúinn, ef til
loftárása kæmi.
246
Heilbrigt líf