Heilbrigt líf - 01.12.1942, Blaðsíða 51
fólki mjólkursamsölunnar, rökurum, veitingaþjónum og
prenturum. Fundust 16 menn með virka berkla.
Héraðslæknarnir hafa yfirleitt gert mikið af því að
framkvæma berklapróf á skólabörnum, og bera skýrslurn-
ar með sér útkomuna af því. Þeir kunna vel að meta heim-
sóknir berklayfirlæknis, sem eru læknunum til mikillar
hjálpar og uppörvunar. Það er ekki neitt áhlaupaverk að
grafast fyrir rætur smitunar, sem upp kann að gjósa í
héruðunum, og oft kemur algjörlega að óvörum. Smitun-
in stafar sem sé stundum frá smitberum, þ. e. a. s.
berklaveikum mönnum, sem kenna sér lítils meins, en
gefa þó frá sér sýkla með uppgangi. Það er sannmæli,
sem landlæknir hefir eftir héraðslækni Öxfirðinga, er
kemst svo að orði um þetta atriði: ,,Það er aðeins með
því að leggja saman þekkingu og rannsóknir berklayfir-
læknis, með fullkomnum tækjum, og slóðagöngu mína og
kunnugleika, að þetta fólk finnst“. Hér er oft um e. k.
leynilögreglustarf að ræða, sem reynir á hugkvæmni og
sérþekkingu beggja aðilja. Héraðslæknirinn á Djúpavogi
getur þess t. d., að þar hafi berklalæknirinn gert hóp-
skoðun, þ. e. a. s. allir voru skoðaðir, holt og bolt, hvort
sem þeir kenndu sig sjúka eða ekki. Þá fundust smitandi
lungnaberklar í manni, er gengið hafði um sem alheill
væri. Maður þessi hafði þann leiða vana að gera hús-
göngult og fara mjög milli bæja. Til þessa manns mátti
svo rekja berklasýkingar í sveitinni. í Eyrarbakkahéraði
reyndust 2 telpur á skólaaldri smitberar. — Berklaveikin
er varasöm og dutlungasöm. Það er stundum ekki auð-
hlaupið að því að leita uppi, hvaðan sýklarnir stafa —
það er oft úr þeirri átt, sem sízt er búist við, og má hér
heimfæra hið fornkveðna: „Óvíst es at vita, hvar óvinir
sitja á fleti fyrir“.
HoldsveiJci. Sjúklingafjöldinn mjög svipaður og áður.
Á Holdsveikraspítalanum voru 17, en 4 í héruðum. Eins
Iíeilbrigt líf — 12
177