Úrval - 01.10.1946, Síða 54
52
tmVAL
lendinu, skammt frá Los Gatos
i Kalíforníu, varð vettvangur
gleði og glaðværra hlátra. —
Yehudi hafði gaman af að
föndra við bílvélar. Og að sjálfs
hans sögn væri hann nú senni-
lega vélfræðingur ef hann hefði
ekki orðið fiðluleikari.
Árið 1935 lagði Menuhin í
fjrrsta sinn af stað í hljómleika-
för til annarra landa og hélt þá
110 hljómleika í 63 borgum og
þrettán löndum. Áheyrendur og
gagnrýnendur kunnu sér ekki
læti. Stórblaðið Times í London
sagði: ,,Hér er ekki úr vöndu
að ráða. Um leik hans allan má
hafa eitt orð, og það orð er
fullkomnurí1. Og þess má þó
geta, að Times hefur ekki orð
fyrir að kalla allt ömmu sína.
Eftir þetta ferðalag, en
Yehudi var þá nítján ára, þótti
foreldrum hans sem nóg væri
komið af hljómieikunum og
skelltu skolleyrunum við hinum
ótrúlegustu tilboðum, er honum
bárust. Þegar þeir áttu í höggi
við óða og uppvæga fram-
kvæmdastjóra, sögðu þeir að-
eins: „Okkur langar til, að
sonur okkar lifi tvö hamingju-
söm og áhyggjulaus ár, áður en
heimurinn tekur hann upp á
sína arma. „Hann stundaði út-
reiðar með systrum sínmn og
vinum, sjmti, lék á fiðluna sína,
fór í langar gönguferðir og las
gamansöm blöð.
„Þetta var yndislegur tími,“
segir Yehudi. „Við nutum lífsins
í ríkum mæli.“
Þegar hann fór til Evrópu,
var öll fjölskyldan í fylgd með
honum, faðir hans, móðir og
systir, og auk þess undirleikari
og ritari. í París tóku þau hús
á leigu og höfðu þrjú píanó,
eitt hafði Hephzibah, annað
Yaltah og hið þriðja undirleik-
arinn.
Og svo bar við dag nokkum,
að George Enesco, hið kunna
rúmenska tónskáld, kom í heim-
sókn, er Yehudi og Hephzibah
voru að Ieika sónötu eftir Beet-
hoven. Enesco hlýddi stundar-
korn á leik þeirra, en vatt sér
síðan að Menuhin föður þeirra.
„Hvers vegna látið þér ekki
Yehudi og Hephzibah halda
hljómleika saman? Hún er
ágætur píanóleikari."
Og af þessu leiddi, að Yehudi
og Ilephzibah Menuhin urðu um
nokkurra ára skeið hinn mikli
segull allra hljómlistarunnenda
og á hljómsveitarpöllum gat
ekki önnur systkin slík sem þau.
En svo skall styrjöldin á, og