Úrval - 01.08.1949, Qupperneq 46
u
ÚRVAL
ar, heldur einnig af því þeir
höfðu ,,vafasama“ pólitíska for-
tíð. Fangabúðir eru engar, en
,,vinnubúðir“ hafa þegar verið,
eða verða á næstunni opnaðar
fyrir verkamenn sem „svíkjast
um“, yfirstéttarslæpingja og
aðra, sem vilja ekki vinna með
stjórninni.
Á hverjum degi má lesa í
blöðunum um réttarhöld þar sem
hermenn og liðsforingjar eru
dæmdir til margra ára fangels-
isvistar — ákæran er oftast
„samband við útlendinga". Þess-
ir útlendingar eru venjulega am-
erísk hernaðaryfirvöld í Austur-
ríki og Þýzkalandi. Erfitt er að
segja, hve miklar njósnir Am-
eríkumenn reka í Tékkóslóvakíu.
Sennilega eru þær ekki meiri
en rúsneskar njósnir í öðrum
löndum.
En hver svo sem raunin er,
þá eru áhrifin á fólkið í flestum
tilfellum þau, að þeir sem fyrir
þrem mánuðum umgengust am-
eríska og brezka kunningja sína
frjálsmannlega, eru nú ekki
nærri eins ákafir að hitta þá.
Um 10000 pólitískir fangar eru í
fangelsum, flest fólk sem reyndi
að flýja eða var að búa sig und-
ir flótta rétt eftir „febrúar-
byltinguna". Álika margir Tékk-
ar og Slóvakar eru í útlöndum.
Þeir eru þyrnir í augum tékk-
nesku stjórnarinnar, en eins
og öllum útlögum hættir þeim
til að ofmeta andstöðuna og
mótspyrnuhreyfinguna innan
landamæranna. Nú orðið er
virk andstaða gegn stjórninni
næstum engin og mjög lítil
óvirk andstaða. í stórum drátt-
um má segja, að næstum helm-
ingur þjóðarinnar hafi stutt
„febrúarbyltinguna.“ Hinn
helmingurinn leitast að meira
eða minna leyti við að laga sig
eftir hinum breyttu aðstæðum.
Sendisveitafólk frá Vestur-
Evrópu, sem maður hittir í
Prag, ypptir öxlum — „þeim er
ekki viðbjargandi þessum Tékk-
um,“ segir það, „þeir eru eins
og Mieawber hans Dickens —
bíða stöðugt eftir því að eitt-
hvað skeði sem bæti ástandið,
eða „úr því að þeir gleyptu
Þjóðverjana, verður þeim ekki
skotaskuld úr að gleypa sinn
eigin kommúnistaflokk". — En
að segja að Tékkar séu eins og
Micawber eða að þeir geti van-
izt næstum öllu, það er alltof
yfirborðsleg skýring. Sannleik-
urinn er sá — og það er eins
gott fyrir Vesturveldin að horf-
ast í augu við það strax — að