Úrval - 01.08.1949, Síða 131

Úrval - 01.08.1949, Síða 131
„Daginn sem við flugum flugdrekumun.“ Framhald af 4. kápusíðu. á loft aftur. Hvílík unun að hlaupa með flugdrekunum, til hœgri og vinstri, og sjá hinar veikburða, jarðbundnu hreyfingar okkar end- urspeglast mörgum mínútum síðar í tignarlegum skýjadansi þeirra! Við skrifuðum óskir á pappírs- ræmur og brugðum þeim um strenginn. Hægt, en örugglega, klifruðu þær upp strenginn, unz þær náðu flugdrekanum. Allar slíkar óskir hlutu að rætast. Jafnvel feður okkar lögðu frá sér hamar og öxi og slóust í hóp- inn. Mæður okkar skemmtu sér og hlógu eins og skólastelpur. Hár þeirra losnaði úr viðjum hárnál- anna og féll í lokkum niður um vangana. Svunturnar flögruðu um fótleggi þeirra. Fögnuður okkar var blandinn eins konar lotningu. Fullorðna fólkið var að leika við okkur! Einu sinni þegar ég leit á mömmu, fannst mér hún blátt áfram falleg. Og hún sem var komin yfir fertugt! Við vissum aldrei hvernig tím- inn leið þenna dag. Við vorum víst ekki alveg með sjálfum okkur. Foreldrarnir gleymdu skyldum sínum og virðuleik; börnin gleymdu innbyrðis meting og deilum. „Kannski er lífið á himn- um svona,“ hugsaði ég óljóst. Það var orðið skuggsýnt þegar við stauluðumst heim, syfjuð og mettuð af sól og vorlofti. Við höf- um sjálfsagt borðað einhvern kvöldverð, og sjálfsagt hefur far- ið fram einhver íljótaskriftar til- tekt í húsinu, því að ekki bar á öðru en allt væri snyrtilegt á sunnudagsmorguninn. Merkilegt var, að enginn minnt- ist á þenna dag eftir á. Ég varð feiminn þegar ég hugsaði til hans. Áreiðanlega hafði enginn orðið eins djúpt snortin og ég þenna dag. 'Ég lokaði endurminningu hans i dýpsta leynihólfi hjartans, þar sem allt hið dýrmætasta og helgasta er geymt. Árin liðu og dag nokkurn var ég á þönum í eldhúsinu mínu að reyna að ljúka við verkin á með- an þriggja ára dóttir mín nauð- aði í sífellu að fá að „fara út í listigarð og sjá endurnar." ,,Ég get ekki farið.“ sagði ég. ,,Ég á svo mikið eftir að gera, og þegar ég er búin, verð ég orðin of þreytt til að ganga svona langt.“ Móðir mín, sem var í heimsókn hjá mér í borginni, leit upp frá baununum sem hún var að afhýða. „í*að er yndislegt veður,“ sagði hún, „hlýtt í lofti og hressandi gola. Það minnir mig á daginn sem við flugum flugdrekunum." Ég staðnæmdist á ferð minni milli, ofns og eldhússbekks. Leyni- hólfið hrökk upp og út úr því flæddu endurminningarnar. Ég tók af mér svuntuna. ,,Komdu,“ sagði ég við barnið mitt. „Það er Framhald á 2. kápusíðu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.