Úrval - 01.11.1954, Blaðsíða 40

Úrval - 01.11.1954, Blaðsíða 40
38 tJR VAL getum við brýnt það fyrir okk- ur, að við búum við lögmál okk- ar þjóðfélags, engu síður en Ar- abar eða Lappar. Undir því, sem okkur virðist fáránlegar öfgar, býr sams konar ótti og sömu þrár. 1 öllum þjóðfélögum er reynt að finna lausn á helztu vandamálum mannlegs samfé- lags. Til dæmis má nefna út,- rýmingu ofbeldis, verndun ein- staklings og fjölskyldu, örfun sköpunarþrár og heftun kynlífs. Lausn þessara vandamála hef- ur heppnazt eða misheppnazt og fer það eftir kringumstæðum, bæði sögulegum og landafræði- legum. Þetta skiljum við enn betur, ef við íhugum okkar eigin for- tíð. Af happasæld og mistökum okkar eigin þjóðar þróast sú auðmýkt hugans, sem þarf til að meta líf ólíkra þjóða við ó- líkar aðstæður, sem þarf til að skilja hina djúprættu mannúð, sem tengir okkur öll. Viðhorf okkar til þjóðfélagsins eru ekki aðeins einkennandi fyrir okkur, þau eru einkennandi fyrir mann- inn yfirleitt. Arfleifð mannsins er ást og hatur, ótti, gleði og harmur, þörfin til að skapa og þjóna öðrum, barátta og ótti við líf og dauða. Allt þetta er hvar- vetna til, þó að okkur sjáist yfir það við fyrstu sýn. E. H. þýddi. FJARSTÆÐA! Lög'regluþjónninn á þjóðveg'inum, tók upp vasabókina sína og brosti kankvís: „Þér ókuð með sjötíu km. hraða á klukku- stund, ungfrú. Þér vitið að það er ekki leyfilegt." „Hvað segið þér! Sjötíu km. á klukkustund ?“ sagði hún og stóru kringlóttu augun og opinn munnurinn lýstu undrun og sakleysi. „Nei, nú eruð þér að gera að gamni yðar. Það eru ekki nema fimm mínútur siðan ég fór að heiman!" — Sun. ★ TORTRYGGNI í PARADlS. Dag nokkurn kyssti Adam Evu sína og sagðist ætla út í skóg að veiða. Hann kom ekki aftur fyrr en að kvöldi næsta dags — og þá tómhentur. „Mér dettur ekki i hug að trúa því, að þú hafir verið að veiða,“ sagði Eva tortryggin. „Hvað heldurðu ég hafi verið að gera? Þú veizt vel, að við t.vö erum einu manneskjurnar á jörðinni.“ Eva þagði við og talaði fátt það sem eftir var dagsins. Urn kvöldið þegar Adam var sofnaður, horfði hún lengi á hann tortryggnum augum. Svo læddist hún til að telja í honum rif- beinin ... — Allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.