Úrval - 01.11.1954, Side 62

Úrval - 01.11.1954, Side 62
60 tTR VAL hata þá, sem vinna illvirki, en ég er ekki þeirrar skoðunar. Ef vér hötum þá, er ekkert lík- legra en að vér verðum jafn- miklir illvirkjar. Og borin von er, að vér fáum þá til að bæta ráð sitt. Að hata hið illa er á vissan hátt að vera bundinn því. Skilningurinn einn getur vísað oss veginn, hatrið aldrei. Ég er ekki að ráða mönnum til að sýna enga mótstöðu. En ég segi, að ef mótstaða á að hafa áhrif í þá átt að koma í veg fyrir útbreiðslu hins illa, verð- ur að fylgja henni sá mesti skilningur og sú minnsta vald- beiting sem nauðsynleg er til þess að hið góða, sem vér vilj- um varðveita, lifi. Því er þrátt haldið fram, að skoðun eins og þessi sé ósam- rýmanleg skjótum aðgerðum. Ég held að sagan sýni hið gagn- stæða. Elísabet I. Englands- drottning og Hinrik IV. Frakka- konungur lifðu bæði á tímum mikils ofstækis, sem ríkti jafnt í hópi kaþólskra manna og lút- erskra. En hvorugt þeirra lét ánetjast þessari villu síns tíma og báðum tókst með því að koma miklu góðu til leiðar og vissulega var hvorugt þeirra aðgerðarlaust. Abraham Lincoln háði mikla styrjöld án þess að missa nokkurn tíma sjónar á því sem ég kalla vizku. Ég hef haldið því fram, að vizku sé hægt að kenna að vissu marki. Ég held að í þeirri kennslu eigi vitsmunirnir að skipa meira rúm en venjan hef- ur verið í siðrænni fræðslu hingað til. I almennri þekking- arfræðslu er hægt að benda á hinar skelfilegu afleiðingar hat- urs og þröngsýni fyrir þá sem bera í brjósti slíkar tilfinning- ar. Ég tel óráðlegt að halda 4 þekkingu og siðgæði um of að- greindu. Það er rétt, að sú teg- und sérfræðiþekkingar, sem nauðsynleg er til ýmissa starfa, á lítið skylt við vizku. En með kennslu hennar ætti að fylgja víðtækari fræðsla þannig að sér- fræðingurinn fái rétta mynd af því hlutverki, sem starf hans skipar í heildinni. Jafnvel beztu tæknisérfræðingar ættu einnig að vera góðir þegnar; og þegar ég segi ,,þegnar“ á ég ekki við þegna sérstakrar þjóðar heldur alls heimsins. Með vaxandi þekkingu og tæknikunnáttu verður þörfin á vizku brýnni, því að með hverri slíkri aukn- ingu verður geta mannsins til illra verka meiri, ef vizkuna vantar. Mannkynið hefur meiri þörf fyrir vizku nú en nokkru sinni fyrr; og ef þekkingin held- ur áfram að vaxa, verður sú þörf enn brýnni í framtíðinni. □---□
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.