Úrval - 01.11.1954, Síða 77
STÓRMEISTARAR SKÁKLISTARINNAR
75
til að vinna. En Lasker var sál-
fræðingur og tefldi nú einhverja
ágætustu skák sína. Þegar í
sjötta leik fór hann í drottn-
ingakaup og kom það Capa-
blanca svo úr jafnvægi, að
sjónarvottar segja að hann
hafi verið eins og dáleiddur.
Lasker neyddi hann til að tefla
andstætt því sem honum var
eiginlegt, unz hann missti al-
gerlega tök á skákinni. Áhorf-
endur fylgdust með einvíginu
með öndina í hálsinum, og þeg-
ar Capablanca velti kóngi sín-
um til merkis um uppgjöf, lustu
þeir upp fagnaðarópum.
Capablanca fékk uppreisn í
Havana árið 1921. Lasker var
illa fyrir kallaður, í ókunnugu
landi, skyldi ekki málið og þoldi
ekki matinn. Þegar þar var
komið í keppninni, að Capa-
blanca var öruggur um sigur,
gafst Lasker upp vegna sjúk-
leika og þar með lauk hinum
glæsilega skákferli hans.
Séu til skákguðir, þá hefur
Capablanca verið eftirlæti
þeirra. Þeir tímar voru þegar
hann gleymdi því næstum að
hann gæti tapað skák. Hann
lét sig skákkenningar litlu
varða og las aldrei skákbækur.
Enginn hefur nokkru sinni geng-
ið jafnilla undirbúinn til keppni
á hinum stærstu mótum, en hon-
um brást ekki snillin. Það var
haft á orði, að hann þyrfti að-
eins að rétta fram höndina og
fingurnir sæju um að leika
bezta leikinn hverju sinni.
Eitt sinn þegar hann var
drengur horfði hann á föður
sinn tefla. Tilfærsla taflmann-
anna vakti áhuga hans. Dag-
inn eftir horfði hann einnig á.
Þriðja daginn lék faðirinn —
sem var byrjandi — af sér með
riddara. Drengurinn fór að
hlæja og kvaðst geta leikið
betur. Faðirinn tók hann á orð-
inu — og tapaði fyrir syni sín-
um, sem aldrei hafði teflt fyrr.
Drengurinn var þá fjögra ára!
Tólf ára gamall varð hann
skákmeistari Kúbu og varð
strax eftirlæti þjóðar sinnar.
Hann hætti háskólanámi til að
helga sig skákinni eingöngu. Á
tveggja mánaða skákferðalagi
um Bandaríkin sló hann öll
met í fjöltefli. Hann vann 168
skákir áður en hann tapaði
einni af 22 í Minneapolis!
En Capablanca var ekki fyrr
orðinn heirnsmeistari en nýr
skáksnillingur kom fram á
sjónarsviðið, Rússinn Alexander
Alekhine, sem vann af honum
titilinn sex árum síðar. Eftir
þetta var sem guðirnir tækju
að bregðast eftirlæti sínu, og
eitt sinn er hann heimsótti hinn
kunna skákklúbb Manhattan
varð hann skyndilega veikur.
Hann hneig meðvitundarlaus
niður við skákborðið og dó
morguninn eftir, 42 ára gamall.
Arftaki hans, Alekhine, er að
áliti Reinfelds glæsilegasti og
fjörmesti skákmaður og mestur
listamaður í skákheiminum,
sem uppi hefur verið. Hann til-