Úrval - 01.11.1954, Page 100

Úrval - 01.11.1954, Page 100
98 ÚR VAL að deila aldri ættfeðranna með tíu, ef það mætti verða sann- leikanum samkvæmt. Hann stingur þessvegna upp á því, að við hugsum okkur að Nói hafi verið fimmtugur, þegar hann hóf að smíða örkina, og synir hans ungir menn, 28, 24 og 20 ára gamlir. Hinn upphaflegi sögumaður fer ekki mörgum orðum um kvenfólkið, en þar sem endur- segjandi þarf að lýsa því nánar, er rétt að minnast á, að kona Nóa hét Hanna, að Sem var giftur Kerin, Ham Ayeshu og Jafet Meribal. Og svo getum við byrjað. Nói hafði þann ávana að dreyma drauma á næturnar — og það var venja hans að segja fjölskyldu sinni frá draumun- um við morgunverðarborðið. Þessir draurnar voru annað- hvort ótvíræðir fyrirboðar alls- kyns mótlætis, eða þeir voru svo óljósir og ruglingslegir, að það var ómögulegt að ráða þá fyrr en þeir höfðu rætzt. Ef engisprettur gerðu til dæmis að- súg að akri Nóa, setti hann þeg- ar upp spekingssvip og minnti heimilisfólkið á draum sem hann hafði dpeymt fyrir mán- uði — draumurinn snerist um að þurrausa djúpan brunn með sáldri. Hann viðurkenni þó að sér hefði í fyrstu orðið það á að ráða drauminn þannig, að það yrði aldrei maður úr næst- elzta syni hans. Hann væri svo þver og einþykkur. Eina nótt dreymdi Nóa draum, sem stóð honum lifandi fyrir hugskotssjónum. Hann dreymdi að fljótin Evrat og Tigris rynnu saman í einn streng og fossuðu á móti hon- um, að hann og Ham sætu á trjábol í miðjum flaumnum, og að Ham segði: ,,Hvers vegna dreymdi þig ekki fyrir þessu í tæka tíð, svo að við gætum smíðað bát og bjargað móður minni og bræðr- um og eiginkonum þeirra?“ Og þá fyrst var eins og hann minntist konu sinnar, og hann bætti við. ,,Og Ayeshu.“ Svo breyttist Ham í krókó- díl, og krókódíllinn sagði: ,,Og hvernig er það með konuna mína?“ Og allt í einu voru þeir umkringdir fjölda dýra sem sögðu: ,,Og hvernig með kon- urnar okkar?“ En Nói sat ekki á trjábol, hann sat á efstu grein sýprustrés og var að saga af henni af því að hann ætlaði að smíða bát, en skyndilega upp- götvaði hann sér til mikillar skelfingar, að hann sat á öfug- um enda greinarinnar. Um leið og hann hrapaði niður rak hann upp óp, og konan hans vaknaði og sagði: „Hvað gengur að þér?“ Og þá varð honum ljóst að þetta var draumur. „Mig var bara að dreyma,“ sagði hann, ,,ég skal segja þér frá því á morgun.“ En hann lá vakandi í þrjá klukkutíma og var að hugsa um drauminn, og þegar þrír klukkutímar voru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.