Úrval - 01.02.1955, Page 10

Úrval - 01.02.1955, Page 10
8 ■qkval geti ákveðið sjálft, hverju það vilji trúa, þegar það verði eldra. En hvað um Krist? Má ég taka það fram í upphafi, að ég held að það væri ekki æskilegt, enda þótt núgildandi uppeldis- málalöggjöf heimilaði það, að börn yxu upp, án þess að þekkja Nýja Testamentið. Við kærum okkur ekki um kynslóð, sem veit ekki, hvað jól og páskar tákna, sem hefur aldrei heyrt um Betlehemstjörnuna, né um engil- inn við gröfina. Þetta er snar þáttur í menningu okkar. Það er fléttað saman við bókmennt- ir, listir og húsagerð. Barnið þarf að heyra þessar sögur. En ég mæli með, að barnið heyri, að þær séu aðeins helgisagnir. Mætti ég skjóta því hér inn, að mjög rangt er að telja alla trúleysingja tilfinningasnauða Filistea, sem kunni ekki að meta fegurð, beri enga virðingu fyrir erfðavenjum, kunni hvorki að hrífast né sýna lotningu og vildu helzt að dómkirkjan í Chartres væri rifin til grunna og almenningsþvottahús byggt á staðnum. Míg langar ekkert til að rífa Chartres, engu frem- ur en ég vil, að Parthenon sé jafnað við jörðu. En ég vildi, að þau fengju að njóta meiri jafnræðis. Hægt er að dást að og bera virðingu og lotningu fyrir Parthenon, án þess að tigna gyðjuna Aþenu, sem hof- ið var reist til dýrðar. Alveg eins má bera í brjósti svipaðar tilfinningar gagnvart Chartres, án þess að trúa á guð ísraels- manna. Ég legg því til, að börn séu látin lesa og hlusta á sögur Nýja Testamentisins á sama hátt og þau lesa og hlusta á sögur úr grísku goðafræðinni. Og þegar þau spyrja, hvort þessar sögur séu sannar, má segja þeim, að þær séu sam- bland sannleika og þjóðtrúar. Trójustríðið er staðreynd og vel getur verið, að Hektor og Akkilles hafi verið til, en við trúum því ekki nú, að Akkiles hafi verið sonur hafmeyjar, né að vopn hafi ekki bitið á hann, af því að honum var dýft í fljótið Styx. Á svipaðan hátt var uppi maður að nafni Jesús Kristur, sem prédikaði fyrir Gyðingum og var krossfestur. En við trúum því ekki nú, að hann hafi verið sonur Guðs og fæddur af ósnortinni mey, né að hann hafi risið upp frá dauð- um. Seinna getur barnið fengið meira að heyra um Krist sem einn af hinum mestu siðgæðis- boðendum heimsins. En það leiðir mig að annarri spurn- ingunni: um menningarlegt skapgerðaruppeldi. Byrjum á sálarfræðinni: Menn hafa haft ýmsar skoð- anir um eðli mannsins, eftir því á hvaða tíma þeir hafa verið uppi. Annars vegar voru skoð- anir heimspekingsins Hobbes, um að maðurinn sé fyrst og fremst eigingjarn. Eftir þeirri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.