Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 31
Höfnin í Izmir (Smyrna).
(Mynd afpóstkorti).
Agúst Sigurðsson
frá Möðruvöllum
REIS
AFTUR
UPP
/ frásögunni af Jóhannesi Zebedeussyni og
rústunum á Ayasulukhœðinni, 3,5 km firá
Efesus, þar sem hann bjó einsetumaður til
hárrar elli, var getið um 10 ára fjarvist hans,
nær útlegð á smáeynni Patmos. Þar má gizka
á, að hann hafi skrifað Opinberunarbókina.
Eru þœr ástœður, að hann vœri þunglyndur
og harla undarlega innanbrjósts, þegar þeir
fióru allir þrír, hann, Jakob og Pétur, svo að
segja um Ieiðfrá Efiesus eftir hina löngu og
árangursríku veru þar, síðan þeir urðu að
yjirgefia Jerúsalem og heimland sitt.
Jesús Kristur hafði horfið frá Nazareth til fjölmennari
bæjar nokkru norðar í Galileu. Var það Kapernaum, 15
þúsund manna bæjarfélag. Voru fiskimenn þar margir.
Meðal þeirra bræðumir Pétur og Andrés, sem fengu fyrstir
postulaköllunina, síðan Jóhannes og Jakob. Er athyglisvert,
að bæði föður- og móðumafns þeirra er getið, en hún hét
Salóme, friðsæld, sennilega skyldfólk Jósefsbarna Jakobssonar
í Nazareth, sem var dáinn, þegar Jesús tók sig upp frá heimabæ
sínum og fóru María móðir hans og bræður með honum. -
Hér byrjaði boðunarstarf Jesú, en við lát föður hvíldi forsjá
og framfærsla heimils á elzta syninum.
Pétur eins og allir, læra í kverinu fyrir fermingu, hét Símon,
en frelsarinn gaf Pétursnafn, því að það er útlagt klettur,
en á þeim kletti reisti hann kirkjuna. Gríska nafnið Andrés
merkir sterkur og stór maður. Var þetta við upphaf starfsins
í Kapernaum. Jesús mun þá hafa verið við þrítugsaldur og
boðunarstarfíð varað í 2 !4 til 3 ár, unz hann lauk mannsvem
sinni anno 33. Er því haldið hér, þó að bent hafi verið á
annað, en svo litlu munar, að ekki skiptir máli. Hitt meir
að starfsárin voru eilíft líf hans í tímanum. Skal enn sagt
nokkuð frá Jóhannesi, en nafn hans er útlagt sá, er nýtur
náðar, í lok þessara minningabrota frá komunni á hæð hans
um jafndægrin í vor, og þeim fmmpostulunum þremur í
Efesus.
Utan guðspjallanna em frumpostulamir sárasjaldan nefndir.
Sál frá Tarsus, síðar nefndur Páll postuli, hlýtur hins vegar
afar mikið rúm. Hann fekk postulaheitið af hefð, en hafði
aldrei verið ásamt Drottni né á hann hlýtt, þvert á móti
ofsótt lærisveina hinnar nýju kenningar. Nafn hans merkir
verkamaður, en hann var útlærður í tjaldgerð og seglasaumari
Heima er bezt 319