Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 40
konan vildi ekki fara frá honum meðan
hann væri á sjúkrahúsinu. Var því rætt
um að eldra bamið, stúlka, sem var orðin
tíu ára, færi með mér heim og hjónin
tækju áhvörðun um framtíðina þegar
heilsa hans væri orðin betri.
Var búist til ferðar og flogið til
Fairbanks. Á leiðinni var ég fræddur
um landið sem við flugum yfir, auðnin
virtist vera óendanleg, vötn, skógur og
fljótið, sem var afar tilkomumikið. Það
var einstök upplifún að horfa á hæsta
fjall Norður-Ameríku, McKinley, 6240
metra hátt, sem var tignarlegt að sjá, þar
Bjálkahús. Bústaður irmfœddra, tvö
börn veifa Ijósmyndarannm.
sem það reis upp úr auðninni. Ekki sá ég
þó svæðið þar sem gullgröfturinn mikli
átti sér stað og bæjarnafnið Klondike
minnir á. Hefur mikið verið rætt og
ritað og gerðar kvikmyndir um gullæðið
mikla, sem svo var nefnt. Þó mest hafi
verið rætt um gullgröftinn er einnig
unnið margt annað úr jörð þama, t.d.
tin, kopar, platínum, kol, olía, marmari
og fleira. Síðustu árin hafa svo bæst
við miklir tlutningar á orkugjöfum til
Bandaríkjanna.
Það vakti athygli mína og undrun í
að í nágrenni flugvallarins virtust vera
Qölmörg bílastæði þar sem bílum var lagt
skipulega í allmargar raðir. Mér fannst
þetta eitthvað undarlegt fyrirkomulag og
fékk þær upplýsingar að þetta væru ekki
bílar heldur litlar flugvélar. Þær væru
mest í eigu einstaklinga og fyrirtækja
og notaðar svipað og einkabíllinn hjá
okkur á Islandi. Þama væri venja að fólk
fengi réttindi til flugs á þessum vélum
eins og ökuréttindi á bifreiðum.
328 Heima er bezt