Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 45

Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 45
Miðvikudagur 16. febrúar: „Miðsvetrarprófi lauk í eldri deild með lestarrófi. Hæstu einkunn hlaut Amaldur Ámason, Ytri- Skógum, 8,06 stig. Næstur varð Ólafur Guðjón Tryggvason, Raufarfelli, með 7,82 stig. 21. febrúar, sunnudagur: „Ég var í vikunni sem leið boðinn í dag út að Lambafelli. Þar býr Hróbjartur Skæringsson, með konu sinni, Ingibjörgu Ámadóttur. Frá Lambafelli em tveir drengir í skóla mínum: Þór, 13 ára, og Einar Jón, f. 6. mars 1942, í yngri deild. Fékk góðar viðtökur. Böm hjónanna em sex. Elst er Kristín húsfreyja í Skarðshlíð, gift Sveini Jónssyni. Hún er fædd 1935“. 22. febrúar: „Fór snögga ferð á hjóli mínu að Skógum. Hitti Albert kennara. Hann hefur mikla stílabunka á borði jaíhan. Átti tal við Júlíus Daníelsson, kennara. Hann kennir alla ensku, og auk þess búfræði, því að hann hefúr stundað búnaðamám ytra; er stúdent.“. Hugleiðingar, fimmtudaginn 4. mars: „Veturinn hefur verið afar mildur, og ber auðvitað að þakka slíkt. Ég var staddur að Stórólfshvoli (Hvolsvelli) fyrsta vetrardag. Ferð sú hingað austur var góð, gagnleg og skemmtileg. Þó var ég nokkra daga á eftir óviss um, hvort ég ætti að fara hingað. Húsnæðið var þar fyrst og fremst í veginum. Sá ótti hefúr reynst ástæðulaus, en margt er vitanlega andstætt, en hvar er allt í lagi?“ 5. mars, löstudagur: „Sex böm mættu ei í eldri deild í dag. Hef látið þau skrifa heimastíla þar undanfarið. Ég fæ alls staðar gott orð fyrir kennslu mína hér. Þykir mér vænt um það.“ Drengur fæddur. Þriöjudaginn 9. inars fæddi kona mín dreng, sem Ijósmóðir úr Vík í Mýrdal tók á móti. Drengurinn fæddist um hálf sjö um kvöldið. Ljósmóðirin var Kristín Loftsdóttir, frá Bakka í Austur- Landeyjum. Frá Hmtafelli fengum við hjálparstúlku til að sjá um heimilið, meðan konan lá á sæng, Guðbjörgu Eyjólfsdóttur að nafni. Ljósmóðirin dvelst hér þrjár nætur. „Ég býð litla vin velkominn í hóp lifenda, og óska honum langrar ævi og farsældar á ófarinni ævibraut: Það munu og allir aðrir hér geta tekið undir.“ Sunnudagur 14. mars: „Þorlákur, drengurinn hér, varð mér samferða á reiðhjóli. Komum að Hlíð og að Seljavöllum. Alls staðar daikkið kaffi og borðað brauð. Góðar viðtökur hér á bæjum.“ Ingimar Jóhannesson, fúlltrúi í fræðslumálskrifstofúnni, skrifar mér bréf og segir þar m. a.: „Mér þykir gott að heyra, að þú unir þér vel áffarn, en geturðu ekki litið í kringum þig eftir þægilegra húsnæði, ef þú vilt vera þarna og fólkinu líkar vel við þig? Spyr sá, sem ekki veit. Ég skil, að þaö er alls vegna. Þú minntist á mismun þann, sem þér finnst vera á bömunum á Sandi og undir EyjaQöllum. Ekki er það með ólíkindum; umhverfið er ólíkt. Fjöllin em einhver fegursta sveit þessa lands, en Hellissandur með minni kauptúnum og ef til vill með þeim lágreistari, a. m. k. ef þeir em líkir því, sem gerist í Olafsvík, að sögn kunnugra. Gott er, að þú kynnist heimilum, en ekki skaltu gera of mikið af því. Meðalhóf er vandratað. „Maður verður alltaf að vera hæfilega tortrygginn", sagði gamall maður við mig í dag, og mikið er satt í því. Það er gott að kynnast fólkinu, en maður má ekki láta það ná of miklu valdi yfir sér. Sannarlega er það rétt, sem þú segir, að bamakennsla er fjölþætt starf og vandasamt Betur mætti það vera launað, og er þó stómm betra nú en fyrrum. Þegar ég var á þínum aldri, þurfti 15 ár, hálfa starfsævi, til að komast á hæstu laun. Og hefði ég haft sömu laun 1937 og nú er orðið, hefði ég talið mig efiiaðan mann. Ekki meira um það. Kær kveðja til konu þinnar og bama, frá mér og Sólveigu. Með vinsemcl og kœrri kveðju. Ingimar Jóhannesson. “ 20. mars skrapp ég út að Lambafelli: „Tek Þór í aukatíma þrisvar í viku fram að páskum.“ Daginn eftir fór ég með Svein á hjólinu austur að Jökulsá á Sólheimasandi, öðm nafúi Fúlalæk. „Það er réttnefni, því að mikil fyla gýs af vatninu í ánni. Kona frá Eyvindarhólum, Dýrfinna að nafhi, 11 bama móðir, færði okkur gjafir í dag, i tilefni fæðingar drengsins. Góðar gjafir.“ Fimmtudaginn 25. mars fór ég með yngri krakkana upp í fjallshlíðina fyrir ofan Skarðshlíð. Með kvöldinu hvessti dálítið og varð kalt nokkuð. Sunnudaginn 28. mars fór ég með Svein á hjólinu út að Ysta-Bæli. „Þar býr Sveinbjöm Ingimundarson, f. 1.9. 1926, með konu sinni, Eygló Markúsdóttur, f. 10. 7. 1933. Þau eiga einn dreng, og er annað bam væntanlegt í apríl. I Ysta-Bæli er drengur, Ingimundur að nafúi, 9 ára. Var í skóla fyrir jól, en eftir nýárið var ekki talið ráðlegt að hann færi í skóla vegna kíghósta, er berast kynni með honum heim að Ysta-Bæli, en þar er drengurinn, Öm að nafhi, mjög veill til heilsu. Hefur Ingimundi samt farið vel fram í vetur. Ég athugaði kunnáttu hans. Fimmtudaginn 8. apríl fór ég með yngri deild upp á fellið fyrir ofan Skarðshlíð. Höfðu þau gaman af því. Oft fór ég með þau eldri, og fúrðaði mig á hversu hugrökk þau vom að klifra í snarbröttum fjöllunum. Ég var ragari við þetta - að vonum. 11. apríl, sunnudagur. „Þau urðu úrslit í stafsetningar- samkeppninni í eldri deild hjá mér, að Amaldur Ámason varð efstur, Ema Gissurardóttir önnur og Olöf Bárðardóttir, Berjaneskoti, nr. 3. 16. apríl fór ég á hjóli út að Leirunt og Nýlendu. „Ólafur gamli á Leirum hefði þegið dropa af víni, en ég átti því miður ekkert slíkt. I sumar, ef ég skrepp austur, mun ég kaupa flösku handa honum og hafa aðra með mér. Slíkt efni ég, ef við lifúm báðir.“ Þetta varð því miður ekki, Ólafúr dó ekki löngu síðar. Heima er bezt 333
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.