Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 44
Húsið í Skarðshlíð þar sem Auðunn kenndi í rishœðinni, veturinn 1953-1954. Ljósm: Guðjón Baldvimson.
og Grétar Andrésson í Beijanesi (11 ára). Þá mættu ei bömin
tvö, systkinin frá Önundarhomi, Svanlaug (9 ára) og Jón Már
Adólfsson.
Fimmtudaginn 14. janúar komu þrjú böm ný í yngri deild.
Þóra Gissurardóttir, Selkoti, 9 ára, Þórhildur Jónasdóttir,
Rauðafelli, 9 ára, og Kristinn Heiðar Jónsson, 9 ára. „Þá em
bömin í yngri deild orðin 17 að tölu, eins og í þeirri eldri.“
Sunnudaginn 17. janúar fórég til kirkju að Eyvindarhólum.
„Þar messaði séra Sigurður Einarsson, sóknarprestur í Holti.
Mæltist honum vel, fannst mér. Fáir vom við messu. Organisti
er Jón Hjörleifsson í Skarðshlíð.“
Ekki var skólahúsnæóið í Skarðshlíð beint til fyrirmyndar.
Oft var kalt á loftinu, og miðvikudaginn 20. janúar varð ég að
vísa bömunum heim stuttu eftir hádegið. „Búast má við, að
ekki verði alltaf hlýtt í veöri eftirleiðis, ef stormar aö ráði.“
Sunnudaginn 24. janúar skrapp ég á reiðhjóli mínu með Svein
son minn út að Rauöafelli, til Jónasar Hjörleifssonar. „Fékk ég
þar góðar viðtökur. Jónas á tvær dætur hjá mér í yngri deild:
Guðnýju Ingunni, f. 26. mars 1942, og Þórhildi, f. 9. febr. 1945.
Þar að auki á Jónas tvo drengi, fædda 1954, í janúar, og 1952,
24. febrúar. Jónas er sonur Hjörleifs Jónssonar í Skaröshlíð,
föður Jóns oddvita s. st„ en þeir em þó ekki sammæðra. Jónas
er fæddur l.jan. 1909. Er skírður af sr. Kjartani Einarssyni,
prófasti í Holti. Eftirmaöur Kjartans í embætti var sr. Jakob
Ó. Lámsson, en hann átti dóttur hans, Sigríði.“
„Séra Sigurður spurði bömin bamaspuminga í skólanum
eftir að ég hafði lokið kennslu, miðvikudaginn 27. janúar og
ofl endranær. Atti ég stutt spjall við hann. Ekki fannst honum
skólahúsnæðið hentugt, sem er heldur ekki að vænta. Þetta er
bráðabirgðahúsnæði, leigt um tveggja ára tímabil fyrir kennslu
bama í Austur-Eyjafjallahreppi“.
Sunnudaginn 7. febrúar fór ég á hjóli mínu austur að Skógaskóla.
Messa féll niður hjá prestinum, vegna veikinda.
Amór sonur minn varð tveggja ára þennan dag. Hann var
þriðja bam okkar; varð ekki nema 23 ára, dó 16. mars 1975.
13 febrúar: „Kenndi yngri deild. Aldrei hefur nokkur blettur
fallið á sambúð mína og bamanna í vetur, og má þaö teljast
þakkarvert. Ég er ánægður með það. Didda litla er 3ja ára
og 3ja mánaða í dag. Mikið á hún eftir, ef hún fær að lifa til
elliára.“
Að Drangshlíð kom drengureinn laugardaginn 13. febrúar,
Þorlákur Láms Hannesson, 9 ára. Verður hann hér eitthvað.
Drengurinn er úr Reykjavík. Hann las hjá mér í dag í fýrsta
hefli, nýrri útgáfu. Æskan er þjóðin á morgun. íslenska þjóðin
á glæsilega kynslóð, sem nú er að vaxa upp.“
Mánudaginn 15. febrúar segir frá því, að feikileg rigning haíi
verið. Komu aðeins tvö böm í skólann, Sigga í Skarðshlíð og
Magnús á 1 Irútafelli. Féll því kennsla niöur. En tljótlega geröi
besta veður. Ég fór á hjólinu austur að Eystri-Skógum.
Fékk þar góöar viötökur. A eltir að koma á marga bæi hér,
hvaðan böm em frá í skólanum.“
332 Heima er bezt