Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 64

Heima er bezt - 01.08.2008, Blaðsíða 64
lausamaður. Þegar Sigríður fer ffá Görðum lætur hún skíra bam sitt Svein, og mætti ætla að það hafí hún gert í þeirri von að maður hennar sneri til baka. Fer hún síðan til dvalar hjá vinafólki sínu á Gmnd, en þar deyr sveinninn Sveinn á fímmta mánuði aldurs síns. Verða nú straumhvörf í lífi Sigríðar Jóhannesdóttur Hansen. Hún er gift kona, 27 ára, en eiginmaðurinn á brott farinn. Hún heíur eignast fjögur böm og misst tvö. Tekur hún nú það til bragðs að hún fer til Reykjavíkur með bömin tvö sem eftir lifa, þau Jóhannes og Maríu, á fund eiginmannsins, Sveins Jónssonar, en það er skemmst frá því að segja að íundum þeirra lýkur með lögskilnaði í ársbyijun 1868. Þau skipta með sér bömunum og fær Sveinn Maríu en Sigríður Jóhannes. Að svo komnu fer Sigríður til Hafnarfjarðar á íund fóstm sinnar og hálfbræðra, Einars og Hendriks, og hefur sveininn Jóhannes með sér. Þar er henni tekið með kærleiksríku hugarþeli. Hún segir fóstru sinni frá raunum sínum og lífshögum og biður hana að taka sveininn að sér því að henni treysti hún best fyrir uppeldi hans. Mannkostakonan Kristín Jónsdóttir verður við bón hennar og tekur hinn unga svein til uppeldis, drenginn sem ber nöín hins látna eiginmanns hennar. Segir nú ekki af Sigríði um skeið fyrr en í allsherjarmanntali 1870. Er hún þá skráð húskona á Klafastaðagmnd í Skilamannahreppi og sögð lifa af vinnu sinni sem var saumaskapur, en saumaskapinn hafði hún lært af fóstm sinni. Frá Sveini, fyrrverandi manni hennar, er hins vegar það að segja að hann gerðist bústjóri ájörðinni Gufunesi í Reykjavíkummdæmi hjá ekkjunni Sigríði Bjamadóttur. Þar á bænum er María, dóttir hans, skráð fósturbam. Sveinn kvæntist ekkjunni nokkm eftir komu sína að Gufunesi og þar með var hann orðinn bóndi á kostaríkri hlunninda jörð. Það átti ekki fyrir Sigríði að liggja að giftast öðru sinni. Hún er jafnan skráð húskona eftir skilnað sinn við Svein frá Hvítanesi. Arið 1875 er hún sögð húskona að Osi í Skilamannahreppi og þar eignast hún fimmta bam sitt 15. maí 1875. Barnið er drengur og skírður Ámi og jafnffamt lýsir hún föður að bami sínu Ama Amason sem þá var vinnumaður í Hvítanesi. Þótti faðemið með nokkmm ólíkindum í sveitinni, en það er látið blífa sem klerkur skráir í kirkjubók. Skömmu eftir fæðingu Ama litla að Ósi í Skilamannahreppi fer Sigríður með drenginn að Klafastaðagmnd, sem var hjáleiga ífá Klafastöðum. Þar sest hún að með son sinn á eigin ffamfæri og væntir þess að sér auðnist að sjá honum og sér farborða með eigin vinnu sem, eins og áður er fram komið, var einkum saumaskapur. Eigi má við öllu sjá og fóra nú í hönd erfíð ár vegna harðinda til sjávar og sveita, veðurfarið var eitt hið grimmasta sem sögur fara af, langvarandi norðanáttir ár eftir ár með landföstum hafis á Vestfjörðum og við norðurströndina, samfara kuldanepju og tregum sjávarafla. Skorti nú mörg heimili bjargræði og sáu margir þann kost vænstan að flýja landið og flytja til Vesturheims. Við þessar aðstæður brugðust afkomuvonir hinnar einstæðu móður á Klafastaðagmnd. Þegar svarf að fólki í nágrenni hennar gat það ekki borgað fyrir vinnuna sem hún innti af hendi og smám saman varð henni ljóst, vitandi um vanmátt sinn og bjargarleysi, að hún yrði að meta rödd skynseminnar ofar djúpstæðum móðurtilfínningum og láta gjörvilegan son sinn ffá sér í annarra hendur, þar sem úr meira væri að spila og afkoman betri. Og það gerði hún. Drengurinn fékk fósturforeldra á Effa-Skarði í Svínadal, hjá hjónum er þar bjuggu, Þómnni Amadóttur og Magnúsi Ólafssyni. Þar átti hann góð uppvaxtarár og var orðinn tvítugur þegar fósturforeldramir féllu ífá sama árs, árið 1895. Þungbær hefur sú ákvörðun verið fyrir einstæða móður að láta tfá sér eina barnið sem hún hafði hjá sér í fábreytni og nöturleika aðstæðnanna, eins og þær vom orðnar um þessar mundir; bömum hennar ráðstafað til annarra, bjargræðis hvergi að vænta. Með hugann íullan af sorg leitar hrjáð sál huggunar og athvarfs í vanmætti sínum hjá guði og góðum mönnum. „Eins og móðir huggar son sinn, eins mun ég hugga yður,“ segir Drottinn. Og huggun sína fann hún í félagsskap ógifts vinnumanns á næsta bæ, Lofts Oddssonar í Galtarholti. Vinátta þeirra og samskipti olli því að hún varð þunguð enn á ný og ól tvíbura í Katanesi fyrsta dag júlímánaðar árið 1879, en svo nærri gekk henni meðgangan og fæðingin að viku síðar var hún liðið lík. Barst nú bræðmm hennar í Hafnartirði til eyma að systir þeirra liði skort og hefði ekki nóg fyrir sig að leggja. Brugðu þeir skjótt við og fóm með mat upp að Klafastöðum henni til bjargar úr örbirgðinni, en þegar þangað kom hafði Sigríður kvatt þennan heim. Tvíburamir sem hún ól, drengur og stúlka, hlutu nöfnin Sigríður og Gísli. Komst Sigríður til fullorðinsára og eignaðist dugmikla afkomendur, en Gísli átti ekki líf fyrir höndum. Hann andaðist í fmmbemsku. Sigríður hafði alið sjö böm, er andlát hennar bar að höndum. Fjögur náðu fullorðinsaldri og eignuðust afkomendur, kjammikið og traust fólk eins og hún var sjálf, þótt hún yrði leiksoppur grárra örlaga. Þau sem upp komust voru þessi: Jóhannes Wilhelm Hansen, f. 4.4. 1864, María, f. 1.6. 1866, Árnif. 15. 5. 1875 Sigríður f. 1.7.1879 Skal nú reynt að gera ofurlitla grein fyrir hverju þeirra um sig. Jóhannes Wilhelm Hansen Sveinsson ólst upp hjá Kristínu Jónsdóttur eiginkonu afa síns og stjúpu móður sinnar og átti góð uppvaxtarár. Jóhannes var bráðþroska og hafði hneigð til verslunarstarfa og tókst að afla sér þekkingar á verslunarháttum þótt ekki yrði það með formlegri skólagöngu. Milli tektar og tvítugs var hann orðinn vinnumaður á Álftanesi, fyrst á Eyvindarstöðum og síðar á Breiðabólstað II. Á síðamefhda býlinu bjó Oddný Hjörleifsdóttir, ekkja eftir góðbóndann Bjöm Bjömsson, með uppkomnum bömum sínum; þeirra á meðal var Guðlaug Björg. Fella þau nú brátt hugi saman Jóhannes og Guðlaug, dóttir ekkjunnar og vom vígð í hjónaband árið 1885, brúðguminn 21 árs en brúðurin tveimur ámm eldri. Tvö fyrstu búskaparárin búa þau á Breiðabólstað II. og þar fæðist frumburður þeirra er skírður var Bjöm, nafni móðurföður síns. Skömmu síðar höguðu atvikin því svo að þeim var talið skylt 352 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.