Heimili og skóli - 01.08.1970, Page 5

Heimili og skóli - 01.08.1970, Page 5
og skóli TÍMARIT U M UPPELDISMÁL >• 73 & Heimli r ! UTGEFANDI: KENNARAFELAG EYJAFJARÐAR Ritið kcmur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síSur hvert hefti, og kostor órgongurinn kr. 150.00, er greiðist fyrir 1. júlí. — Utgófustjórn: Indriði Ulfsson, skólastjóri, (óbyrgðarm.). Edda Eiríksdóttir, skólastjóri. Jónas Jónsson, kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Guðvin Gunnlaugsson, kennari. Vanabyggð 9, Akureyri. PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR MATTHÍAS JÓNASSON: Móðnrhlntverk og menntunarvandi kvenna I. Margar eru þær lofræður, sem haldnar hafa verið konum til sæmdar. Þær hafa ver- ið vegsamaðar fyrir fegurð og yndisþokka, fyrir ást og tryggð, en hjartnæmust orð um þær hafa þó líklega fallið af vörum sona, sem minntust mildrar móðurumhyggju. „Það var svo ljúft, því lýsir engin tunga, af litlum herðum tókstu dagsins þunga. Hvarf eg til þín, móðir mín, og mildin þín svæfði soninn unga.“ Þessi hefðbundna lofgerð um konuna sem meyju, eiginkonu og móður hefir ævin- lega sett hana inn í umgerð heimilisins, veg- samað ástartryggð hennar og þá fórnfúsu umönnun, sem hún veitti þar ungum börn- um sínum: „ ... Eg lék og þú last í lítilli stofu inni.“ Með móðurmjólkinni höfum við drukkið þá trú, að hinn eiginlegi vettvangur kon- unnar væri heimilið og það væri eðlisbundið hlutverk hennar að sinna börnum sínum og ala þau upp. Yið vissum að vísu, að hlut- skipti hennar var örðugt og fórnfrekt, en töldum þó, að það veitti flestum konum heilnæma lífsfylling og innilega gleði. En samfélagið hefir breytzt og um leið breytast allar aðstæður konunnar. Áugljós- asta breytingin er sú, að launuð atvinna HEIMILI OG SKÓLI 49

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.