Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 9

Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 9
Nýtt umhverfi og ný áhrif geta auðveldlega valdið ofreynslu, sem örðugt reynist að bæta. Aðskilnaður frá móður er barni vitanlega alltaf nokkur tilfinningaraun, en veldur þó sjaldan varanlegu tjóni, ef hann stendur skamma hríð og barnið nýtur nærgætinnar umönnunar. IV. Eftir því sem barnið stálpast, dregur úr þörf þess fyrir stöðuga návist móðurinnar. Þegar smábarnið er komið vel á legg, svo sem um þriggja ára aldur, þarf það að fá rýmra athafnasvið og fjölbreyttari viðfangs- efni en áður. Það leitar þá félagsskapar jafnaldra og lærir að leika sér við þá. Þetta er vitanlega ekki bundið við ákveðið aldurs- mark, heldur er nokkuð breytilegt eftir þroska einstaklinganna. En það fer saman hjá hverju barni, að þegar það tekur að una sér vel við leik með öðrum börnum, þolir það án skaða stuttar daglegar fjarverur frá móður sinni, hvort sem hún dvelur nokkrar stundir utan heimilis eða sendir barnið burt, en að sjálfsögðu má barn á þessum aldri ekki skorta nákvæma umönnun og gæzlu. Fyrir börn á þessu skeiði er leikskólavist hálfan daginn æskilegasti viðaukinn, sem við þekkjum nú, við uppeldisstarf foreldra- heimilisins. Þar kynnist barnið öðrum börn- um, lærir að hegða sér í hópi þeirra, láta undan eða halda sínum hlut og hlýða sömu boðum og leiksystkinin. Þar við bætast leik- ir, utan húss og innan, og ýmislegt föndur, sem er mjög þroskandi fyrir börnin, en fæst- ir foreldrar hafa aðstöðu til að sinna heima. Þessi aukna fjölbreytni í athöfnum örvar þroska barnsins sýnilega, og meðan það er í umsjá fóstrunnar, getur móðirin áhyggju- laust varið tíma sínum til menntunar eða atvinnu, eftir hneigð sinni og högum. Hér sýnist mér opnast leið, sem fram- sæknar konur verða að feta í nútíð og fram- tíð. Hún er nokkuð vandrötuð, mjótt mund- angshóf, en gæti þó veitt móðurinni þolan- legt svigrúm og barninu nauðsynlegt öryggi. Enn er hún aðeins fáum fær, því að leik- skóla skortir mjög, miðað við þörfina. Stjórnvöld verða að taka þetta mál til gagn- gerrar athugunar, marka stefnu af framsýni og fella leikskólana að hinu almenna fræðslukerfi. Konur þurfa vissulega að fá aðstöðu til að afla sér menntunar og stunda atvinnu í samræmi við hæfileika sína. Þjóð- félagið þarfnast orku þeirra, hugkvæmni og lipurðar, og fjölmargar konur þarfnast sjálfra sín vegna fjölbreytilegra athafna- sviðs en heimilisstörfin ein geta veitt. Hins þarfnast þjóðfélagið þó ekki síður, að upp- eldi ungra barna sé rækt af þeirri alúð og nærgætni, að upp vaxi í landinu heilbrigð og þróttmikil æska. Enn þá þekkjum við ekkert form uppeldis, sem sé jafn líklegt til að tryggja þetta og foreldraheimili, þar sem börn vaxa upp undir ástríkri vernd og um- sjá móður og föður. Ungar konur og framsæknar standa hér frammi fyrir miklum vanda. Enginn dregur í efa, að þær séu hæfar til menntunar undir flest þau störf, sem vinnumarkaðurinn hefir að bjóða. En utan og ofan við seljanlega starfshæfni eru þær gæddar einum óviðjafn- anlegum eiginleika: hneigðinni til fórnfúsr- ar móðurástar. I hennar stað getur ekkert komið. Enginn getur tekið að fullu við upp- eldisstarfi móðurinnar, án þess að þroska- möguleikar barnsins séu skertir. Ungar kon- ur verða því að velja á milli barnsleysis, er HEIMILI OG SKÓLI 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.