Heimili og skóli - 01.08.1970, Qupperneq 17
Skólinn er byggður í álmum, sem mynda
3 lokaða ferhyrninga, er notast sem útivist-
arsvæði. Við gengum um eina kennslustof-
una af annarri og úr einum fyrirlestrarsal í
annan, aldrei tvisvar um sama gang og vor-
um nær tvær klukkustundir að ganga um
húsið. Aðeins gangana í skólanum er hægt
að mæla í kílómetrum og ekki var laust við
að Islendingar brostu, þegar rektor skólans
sýndi þeim rafmagns-mótorhjól, sem hús-
vörðurinn notaði á ferð sinni um skólabygg-
inguna. Ef lýsa ætti skólanum náið, tæki
það of mikið rúm í blaðinu, en ég ætla í fá-
einum orðum að lýsa tilhögun sumra
kennslustofanna. Þær eru mjög nýtízkuleg-
ar að formi, þannig, að byggðar eru 3 og 3
saman. Ætlaður er kennari í hverja stofu,
en aðeins tvær deildir í 3 stofur. Til viðbót-
ar meðfylgjandi teikningu er rétt að koma
með þessar skýringar.
A = almenn kennslustofa.
B = almenn kennslustofa.
C = hjálparkennslustofa.
D = skrifstofa kennaranna.
E = gangar.
F = aðstaða til sjálfstæðra vinnubragða hjá nemendum.
Kennslustofurnar A og B eru ætlaðar
deildunum tveimur, sem væntanlega eru af
sama árgangi. Þessar deildir eru með mis-
jafnlega duglegum nemendum, svo sem
gengur og gerist. Til þess nú að koma þeim
Salur nýja
mcnnfa-
skólans.
HEIMILI OG SKÓLI
61