Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 19
Oldfur Qunnorsson
súlfrœðingur:
línulengdin og rdðaleysi tilverunnar
Vandamál ]ífsins eru ýmist stór eða smá,
en öll höfum við þurft að taka afstöðu til
þeirra. Stundum látum við skoðun okkar í
ljós, sem þátttakendur í venjulgum umræð-
um, stundum í öllu vandaðri álitsgerðum,
sem þátttakendur í hópstarfi „teamwork“.
Stundum hirtist skoðun okkar sem eins kon-
ar ákvörðun, sem hefur þýðingu fyrir okkur
sjálf og aðra. Hvaða form sem afstaða okk-
ar fær, er okkur ljóst, eða ætti að vera ljóst,
að hún byggist ekki nema að nokkru leyti á
okkar eigin rökrænu hugsun, en að miklu
leyti á því hvaða skoðun aðrir hafa á mál-
unum.
Hversu mjög við erum háð því hvað öðr-
um finnst, fengum við skíra vísbendingu
um, þegar við kynntumst tilraunum banda-
ríska sálfræðingsins, Solomon Asch.
Solomon Asch sýndi stúdentum sínum
nokkrar línur, mismunandi langar, og ein
þeirra var nefnd mælikvarðinn.
1 upphafi fengu stúdentarnir að láta álit
sitt á línunum í ljós einstaklingsbundið, án
nokkurra áhrifa frá öðrum. Þarna var
þannig aðeins um að ræða hlutlægt mat á
línulengdinni og árangurinn átti þá helzt
að komast sem næst mælikvarðanum.
Árangurinn af þessari athugun sýndi, að
99 prósent stúdentanna völdu rétt, og aðeins
eitt prósent valdi rangt. Hvers vegna þetta
eina prósent valdi rangt er ekki ljóst, en
sennilega hafa legið til þess huglægar or-
sakir, sem byggðust á hugarástandi stúdent-
anna á valstundinni. Yera má að einstakl-
ingsbundnir örðugleikar við að meta línu-
lengd hafi einnig komið til greina.
Það sem mestu máli skiptir er þó, að 99
prósent stúdentanna völdu rétt.
Þegar Solomon Asch hafði gert sér grein
fyrir hinum raunverulga hæfileika stúdent-
anna hvað línumat snerti, hófst hin eigin-
lega tilraun. Hópar með 8 stúdentum í
hverjum voru nú beðnir að meta línur. Af
þessum 8 var aðeins einn þ. e. sá síðasti,
raunverulegur þátttakandi í tilraun, hinir
höfðu í laumi verið gerðir að aðstoðar-
mönnum sálfræðingsins. Aðstoðarmennirnir
fengu nú fyrirmæli um að meta línurnar
rangt í 67 af hundraði, en í 33 af hundraði
skyldi matið vera rétt. Þessu var þannig fyr-
ir komið, að þeir sem mátu fyrst héldu sig
við hið rétta mat, en síðan var matið gert
rangt og sama villan látin endurtaka sig hjá
öllum. Hinir raunverulegu þátttakendur í
HEIMILI OG SKÓLI
63