Heimili og skóli - 01.08.1970, Page 22
TEIMIKEMSLA
Magnús Hjálmar Þorsteinsson, kennari á Akranesi, svarar spurningum varðandi teiknikennslu
Undanfarin ár hefur verið efnt til
samkeppni í teikningum skólabarna.
Fjölmargir barna- og skyldunámsskól-
ar hafa tekið þátt í þessari samkeppni
og mörg börn hlotið verðlaun eða
aðra viðurkenningu fyrir góðar teikn-
ingar. Við verðlaunaveitingar þessar,
hefur verið dálítið áberandi, hvað
mörg verðlaun fara til vissra skóla, og
einn þeirra er barnaskólinn á Akra-
nesi.
Ég hitti því að máli teiknikennara
þar, sem er Magnús Hjálmar Þor-
steinsson, og lagði fyrir hann nokkrar
spurningar:
Hefur þú sérmenntað þig í teiknikennslu?
Nei, því miður. Eg hef ekki notið annarr-
ar teiknikennslu en þeirrar, sem ég fékk í
barnaskóla, gagnfræðaskóla og kennara-
skólanum. Auk þess sótti ég kvöldnámskeið
í Handíðaskólanum í Reykjavík. Hinsvegar
hef ég safnað að mér listaverkabókum, og
bókum, sem eingöngu fjalla um teikni-
kennslu, og á nú nokkurt safn slíkra bóka.
Hafðir þú snemma löngun til að teikna?
Já, allt frá því er ég var í barnaskóla hef
ég haft einstaka ánægju af því að teikna og
mála, hvort heldur var í skóla eða heima.
Hvað hefurðu kennt teikningu í mörg ár?
Ég hef kennt teikningu nokkuð, síðan ég
byrjaði að kenna fyrir 17 árum, en ekki að
ráði fyrr en sl. 5 ár, þannig að nú annast ég
teiknikennslu í 11 og 12 ára bekkjum, og
hef auk þess einn bekk í umsjón. Þetta fyrir-
komulag líkar mér vel.
/ skólanum er sérstök teiknistofa. Telurðu
það mikilvœgt?
Alveg nauðsynlegt. Ef taka skal þessa
námsgrein alvarlega, verður að búa þannig
um hnútana, að aðstaða sé góð m. a. með
sérstofu, ásamt tilheyrandi kennslutækjum.
Hvaða gerðir lita nota nemendur þínir?
HEIMILI OG SKÓLI
66