Heimili og skóli - 01.08.1970, Page 35
Skólinn þarfnast nú samhæfingar (syntese)
þessara sjónarmiða í markmiðum sínum og
aðferðum. Eg hugsa þá einkum til prófess-
ors Skinners og aðferða hans „operational
conditioning“ og þá sérstaklega það sem
kallast „shaping“ nám með aðstoð kennslu-
véla (programmed instruction) og kennsla
með tölvum (computers). Hins vegar eru
svo viðhorf „humanistiskra“ sálfræðinga og
uppeldisfræðinga, sem telja að gildi (valu-
es) og sjálfur einstaklingurinn séu það sem
mestu varðar bæði fyrir skólann, samfélagið
og einstaklinginn.
8. Starfsskólamenn reyndu á sínum tíma
að nýta hin skárri félagslegu öfl innan
bekkjarins, bæði sem uppeldistæki og til
þess að ná betri námsárangri. Stefna þessi
var hins vegar ófús og jafnvel andvíg því að
beita dynamiskum öflum geðlífs og tengja
þau vitsmunalegum og félagslegum ferluni.
Ég legg til, að nú sé tímabært að opna
kennslustofurnar fyrir þekkingu frá geð-
fræði, félagsfræði og skyldum greinum.
Þorir skólinn það? Vogar þjóðfélagið sér
það? Slík aðgerð gæti að mínu áliti gjör-
breytt lífi hins námstrega nemanda í skólan-
um.
Kennarar og ráðgjafar af nýrri gerð.
9. Til þess að slík þróun geti hafizt að
marki þarf að uppfylla mörg skilyrði. Hið
augljósasta er ný tegund kennara, sem
kunna og þora að nota róttækar aðferðir til
að breyta nemendunum. Stóraukið nám
kennara í kennslufræðum, geðfræði og fé-
lagsfræði er nauðsynlegt skilyrði. Fjölþætt
starf sálfræðiráðgjafa í sambandi við nám
og kennslu er óhjákvæmilegt. Það starf þarf
að vera opið og beint en ekki í þeim felu-
leik, sem því miður einkennir oft þessa
starfsemi nú. Bezt er að ræða það mál ekki
nánar, þar sem tími minn er takmarkaður.
Bæði kennari og ráðgjafi þurfa mikla starfs-
þjálfun undir umsjón. Fordæmi þeirra og
verk eru mikilvægari en sjálf fræðikenning-
in, þótt hún sé í vissum mæli nauðsynleg
sem undirstaða. Annars þarfnast skólinn
starfsmanna með margvíslega menntun.
Abraham Maslow segir á einum stað.
„When the philosophy of man, his nature,
liis goals, his potentialities, his fulfilment
changes, the everything changes . . . .“
Ég geri þessi orð að mínum. Möguleikar
mannsins felast í sveigjanleika og marg-
breytileika manneðlisins. Jafnframt er það
mesta hætta mannsins, að hann er háður
sjálfstúlkun sinni og sjálfsskilningi, sem
m. a. geta leitt hann til sjálfsblekkingar.
Það er út frá þeim sjónarmiðum og grund-
vallaratriðum, sem ég hef reynt að nefna, að
ég álít að alger umbreyting sé nauðsynleg
og möguleg í hinum almenna skóla, enda má
sjá merki þess að sitthvað er reynt í þessa átt
víða um heim. Það verður vonandi til þess
að breyta verulega stöðu og þroskamögu-
leikum þeirra nemenda, sem við köllum
námstrega nú til dags. En slík breyting mun
aðeins ná fram að ganga, ef ráðandi öfl í
þjóðfélaginu leyfa slíka umbreytingu á gild-
isviðhorfum í siðmenningu okkar og samfé-
lagi.
Ákvörðunarferli og ábyrgð.
Skólinn einn ræður ekki við slíkt verk-
efni, en hann getur lagt lóð sitt á metaskál-
arnar. Mitt álit er, að eitt helzta verkefni
kennarans sé að taka beinan þátt og stöðug-
an í baráttunni fyrir breyttum þjóðfélags-
verðmætum og grundvallarviðhorfum í
þjóðfélaginu. Það er ósk mín til handa
HEIMILI OG SKOLI
79