Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 10

Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 10
sem hér um ræðir vera að eðli og innihaldi bein hliðstæða frummenntunarinnar. Þá á fullorðinsfræðslan í öðru lagi að geta verið hvers konar nám sem tengist atvinnulífi landsmanna og ekki er bundið í öðrum lög- um, enda þótt það nám geti verið að eðli hliðstætt sumum greinum frummenntunar og falli því jafnframt undir þann flokk sem nefndur var fyrst. Til aðgreiningar er þetta afbrigði fullorðinsfræðslunnar kallað starfs- nám vegna hins sérstæða sambands þess við störf og atvinnu. Ekki á þó í því að fel- ast bein lýsing á náminu sjálfu, námstilhög- un eða kennsluformi. Getið er sérstaklega um fjölbreytni í námi þessu, enda má ætla að það kunni að hafa nokkra sérstöðu ein- mitt að því er til hennar tekur. Loks er getið þriðja heildarflokks fullorðinsfræðsl- unnar, en hann er hér kenndur við frjálst nám og frístundamenntun. Þessi skipting fullorðinsfræðslunnar í þrjá aðalflokka er í fullu samræmi við þá skipan sem orðið hefur í nágrannalöndum okkar þótt hennar gæti að vísu misjafnlega skýrt í lagasetningu og framkvæmd.“ Með þessum formálsorðum vill Heimili og skóli vekja athygli fólks á nýjum þætti í menntakerfi þjóðarinnar, fullorðinsfræðsl- unni, og koma af stað umræðum um málið. Ritnefnd. ORÐSENDING Til áskrifenda Heimilis og skóla Gjalddagi ritsins er eins og fyrr júlímán- uður. Vegna gífurlegrar aukningar á til- kostnaði við útgáfu blaðsins verður að hækka áskriftargjald þess og er það nú kr. 400.00. Undanfarin ár hefur árgjaldið fyrir ritið verið innheimt með póstkröfu hjá flestum kaupendum utan Akureyrar. En þar sem gjaldið fyrir póstkröfurnar hefur hækkað mjög mikið, viljum við eindregið ráða kaupendum til að senda sjálfir áskriftar- gjaldið. Odýrast mun vera að senda það í al- mennu bréfi eða greiða inn á gíró-reikning ritsins, sem er nr. 32100. Ef greiðsla hefur ekki borist í september neyðumst við til að senda póstkröfur, en það hefur nokkra aukagreiðslu í för með sér fyrir kaupendur. Nokkrir kaupendur hafa ekki gert skil fyrir síðasta ár og eru þeir beðnir um að bregðast nú fljótt við og greiða gjaldið. Afgreiðslu- og innheimtumaður Heimilis og skóla er Guðvin Gunnlaugsson, kennari, Vanabyggð 9, Akureyri. Með bestu kveðju, HEIMILI OG SKÓLI. 4 - HEIMILI OG SIÍÓLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.