Heimili og skóli - 01.03.1975, Side 23
löggjöf um framhaldsskólastig og starfs-
menntun innan þess í reynd verið komið í
viðunandi horf.
2. Stjórnsýsla
Með frumvarpinu er lagt til, að stjórnun
og eftirlit með fullorðinnafræðslu byggi í
veigamiklum atriðum á nýmælum í löggjöf
með grunnskóla að því er varðar fræðslu-
ráð og fræðsluskrifstofur, sem landshluta-
samtök sveitarfélaga yrðu aðilar að á móti
ríkissjóði. Skólanefndin telur æskilegt, að
reynsla verði látin skera úr um ágæti þessa
kerfis, áður en farið verði að bæta þar við
nýjum þáttum, svo sem fullorðinnafræðslu-
nefndum (sbr. 7. gr.), en fræðsluskrifstof-
ur gætu þó tekið að sér tiltekna þætti sem
samræmingaraðili milli ríkis og sveitarfé-
laga og ýmis konar fyrirgreiðslu í þágu
fullorðinnafræðslu. Við teljum hins vegar,
að stjórnun fullorðinnafræðslu að því er
tekur til opinberra aðila, eigi fyrst um sinn
að vera í höndum menntamálaráðuneytis-
ins og sveitarfélaga. Ekki er óeðlilegt, að
ríkinu til ráðuneytis komi fullorðinna-
fræðsluráð, kostað hlutfallslega af tilnefn-
ingaraðilum, og í sveitarfélögum viðkom-
andi skólanefnd í samvinnu við aðra aðila,
svo sem aðstæður gefa tilefni til (launþega-
samtök, fræðslufélög o. fl.).
Á þennan hátt mætti tryggja verulega
aukinn stuðning við fullorðinnafræðslu og
samræmingu af hálfu hins opinbera í sam-
ræmi við markaða stefnu, án þess að bæta
við nýjum stjórnsýsluaðilum, fyrr en þá að
fenginni reynslu.
3. Stuðningur ríkisins
Skólanefndin telur, að meginreglan um
fjárhagsstuðning ríkisins við fullorðinna-
fræðslu eigi fyrst um sinn að felast í marg-
háttuðum óbeinum aðgerðum, en ékki í
„75% af sannanlegum kostnaði,“ sem
frumvarpið gerir ráð fyrir sem aðalvið-
miðun um styrkveitingar.
Stuðningur ríkisins ætti m. a. að koma
fram í eftirtöldu:
a. Stjórnun og samræmingu fullorðinna-
fræðslu á vegum menntamálaráðuneytisins
og á vegum fræðsluskrifstofa í umboði þess.
b. Skólarannsóknir ráðuneytisins taki
einnig til fullorðinnafræðslu og ríkið standi
að og kosti námskeið fyrir leiðbeinendur.
c. Ríkið launi sérþjálfaða námsleiðbein-
endur (kennara), er starfi á vegum mennta-
málaráðuneytisins sem eins konar farand-
kennarar, er taki að sér fræðslu og aðstoði
við að koma henni af stað á vegum náms-
flokka í sveitarfélögum, á starfsþjálfunar-
námskeiðum og víðar. Jafnframt geta þeir
orðið mikilvægur tengiliður við skólarann-
sóknir og á annan hátt ráðgefandi um þró-
un fullorðinnafræðslu. Slíkum leiðbeinend-
um verði fjölgað smátt og smátt með hlið-
sjón af reynslu og æskilegri þróun.
d. Skólarannsóknir beiti sér fyrir samn-
ingu og gerð fjölþætts námsefnis til full-
orðinnafræðslu og stuðningi við útgáfu
þess, einnig að því er varðar kennsluefni á
vegum bréfaskóla.
e. Veitt verði aðstaða án endurgjalds í
skólahúsnæði eða öðru húsnæði í eigu rík-
isins eða ríkis og sveitarfélaga, með að-
gangi að kennslugögnum að bókasöfnum
meðtöldum, að sjálfsögðu með fullu sam-
komulagi við umráðaaðila (sbr. 36. gr.).
f. í öllum nýbyggingum skóla og við
breytingar á eldra húsnæði verði tekið til-
lit til þarfa fullorðinnafræðslu og gengið
frá normum þar að lútandi á vegum
HEIMILI OG SKOLI - 17