Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 36

Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 36
HELGI VILBERG Þróun barnateikninga Ilelgi Vilberg er ungur og áhuga- samur kennari, sem starfar við Gler- árskólann á Akureyri. — Blaðinu er það mikil ánœgja að fá að birta þessa grein hans um námsgrein, sem alltof sjaldan er í sviðsljósinu. Yngsta aldursskeiðið Þegar í lok fyrsta æviárs þykir mörgum börnum gaman að halda á blýanti og gera með honum strik, ef ekki á pappír, þá á veggfóðrið eða jafnvel á gólfið. Þetta þekkja flestir foreldrar. Auk þeirrar venju- legu ánægju barnsins að líkja eftir full- orðnum, virðist það einkum vera tvennt, sem tekur hug þess. Annars vegar gildi hreyfingarinnar sjálfrar og hins vegar möguleikinn að geta haft áhrif á og valdið breytingu umhverfisins. Hvoru tveggja er ríkt í barninu. Hver þekkir ekki þá óum- ræðilegu gleði barnsins þegar fyrstu spor- in era stigin eða ánægjuna sem barnið hef- ur af því að velta um kubbum sínum og þannig mætti lengi telja. Hinar fyrstu teikningar eru venjulega dreifð strik eða punktar líkt því sem blý- antsoddi væri slegið á pappírinn. En jafn- vel á þessu stigi má brátt greina framfarir, barnið tileinkar sér fljótt reglubundnar sveifluhreyfingar og með þeim hefst það tímabil, sem oft er nefnt „sveiflukrasstíma- bilið.“ Hér er um að ræða verulegar fram- farir í jafnvægisstjórn, — í upphafi sveifl- ast allur handleggurinn, síðan dregur úr hreyfingu hans þar til hún er aðeins í fingr- um og úlnliði. Á öðru ári fer að gæta bogadreginna lína í myndum barnsins með sveigðum sam- stilltum línum fyllir það nokkuð vel út blaðið. Samtímis þróast vafninga- og bylgju- línur auk megingrunnformanna, og oft 4 ára. — MYNDIN, sem er af systur höfund- arins, er dregin með öruggum, föstum dráttum og sýnir mörg smáatriði. 30 - HEIMILI OG SKÖLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.