Heimili og skóli - 01.03.1975, Side 43
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ:
Mýjungar í kennslumálum
(Greinargerð áfanganefndar)
Haustið 1972 voru hafnar róttæhar
breytingar á skipulagi náms og
kennslu í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð. Horfið var frá hinu arftekna
bekkjakerfi menntaskólanna en í þess
stað tekið upp svonefnt áfangakerfi.
Hið nýja kerfi tók frá upphafi til nem-
enda á fyrsta og öðru námsári en
nemendur, sem lengra voru komnir,
luku stúdentsnámi sínu samkvæmt
fyrra skipulag.i
Einn þáttur í löngum aðdraganda
og áframhaldandi undirbúningi að
framkvœmd áfangakerfisins er útgáfa
AFANGA, frétta- og upplýsingablaðs,
sem kynnir kennurum og nemendum
skólans hið nýja kerfi jafnóðum og
það tekur á sig sína fyrstu föstu mynd.
Meðfylgjandi grein birtist í 12.
blaði Afanga og er prentuð hér með
leyfi rektors skólans, Guðmunds Arn-
laugssonar. — Afanganefnd skipuðu
kennararnir Ingvar Asmundsson, Jón
Hannesson, Stefán Briem og Valdi-
mar Valdimarsson.
Áfangakerfið hefur nú verið starfrækt í
Menntaskólanum við Hamrahlíð í tvo vet-
ur, og úrskrifuðust fyrstu stúdentarnir í
vor og þá um leið síðustu nemendur bekkja-
kerfisins. Frá og með haustönnum 1974
verður áfangakerfið því ekki aðgreint frá
skólanum sjálfum.
Áfanganefnd hefur starfað að skipulagn-
ingu áfangakerfisins óslitið frá ársbyrjun
1972 til þessa dags og telur sig nú hafa
lokið verkefni sínu. Áfanganefnd lætur því
af störfum við lok yfirstandandi skólaárs.
Áður en áfanganefnd skilur við, vill hún
gera grein fyrir mati sínu á stöðu áfanga-
kerfisins, hvað vel hefur gefist, hvað miður
hefur farið og hvernig nefndin telur, að
standa beri að starfrækslu og þróun áfanga-
kerfisins í framtíðinni. Einnig verða kynnt-
ar hér ýmsar tillögur og hugmyndir áfanga-
nefndar og annarra um endurbætur á skóla-
starfinu. Sumar þeirra hafa áður verið
lagðar fram við skólastjórn. Áfanganefnd
telur mikilvægt, að einnig kennarar og nem-
endur fái tækifæri til að taka afstöðu í þess-
um málum og að sem flestir þeirra taki
virkan þátt í þróun áfangakerfisins og
skólastarfsins yfirleitt.
MARKMIÐ OG ÁRANGUR
Markmiðið með breytingunni frá bekkja-
kerfi í áfangakerfi var og er fjölþætt, m. a.
eftirfarandi:
HEIMILI OG SKÓLI - 37