Heimili og skóli - 01.03.1975, Side 52
aftur á bak, ef svo mætti að orði komast —
hefja kennsluna í nútímanum, en hverfa
síðan til liðinna tíma.“
Hér er snjöll hugmynd á ferðinni og ættu
kennarar að gefa henni oftar gaum en raun
ber vitni.
Bókin skiptist í 10 meginkafla, auk
margra undirkafla. Ennfremur fylgja henni
margs konar töflur, skrá yfir félög, fyrir-
tæki, stofnanir o. fl., nafnaskrá og skrá um
höfunda og uppruna ljósmynda, en margar
myndir prýða bókina. Fyrsti kafli bókarinn-
ar er nokkuð sérstakur, ber hann yfirskrift-
ina „Tvennir tímar,“ og tengir saman gamla
og nýja tímann með skemmtilegum hætti.
Síðan taka við aðrir kaflar bókarinnar, sem
fjalla um hina ýmsu þætti þjóðlífs okkar.
Frágangur bókarinnar er til sóma fyrir
útgáfuna. Hún er sett og prentuð hjá Ing-
ólfsprenti hf. og virðist mér verk það vel
af hendi leyst.
Hin fornu tún eftir Pál Líndal er saga
Reykjavíkur í máli og myndum og er heiti
bókarinnar tilvitnun úr kvæði eftir Eggert
Olafsson. í inngangi kemst höfundur svo
að orði:
„Þessi bók er tilraun. Hún er tilraun til
að gera nokkuð alhliða grein fyrir Reykja-
vík í fortíð og nútíð. Hún er tilraun til að
gera grein fyrir mannlífinu hér í Reykja-
vík og þeim skilyrðum, sem því hafa verið
búin.“
Ekki verður annað sagt en þessi tilraun
Páls hafi tekist vel. Höfundur lýsir með
nærfærnum og glöggum hætti breytingum
mannlífsins í Reykjavík gegnum árin og
þróun byggðar í nútímaborg og kemur ó-
trúlega víða við í ekki lengri bók (rúmar
200 bls.). Greinilegt er að höfundur kann
afar góð skil á efninu og þá list að kunna
að velja og hafna þegar blaðsíðutal er
naumt skammtað.
Bókin skiptist í æðimarga kafla. Hún
hefst á spurningunni: Af hverju Reykjavík?
og í köflunum, sem á eftir fylgja, leitast
höfundur við að veita lesendum svör við
spurningunni. Reyndar tekur höfundur
það fram að ef til vill kunni sum svörin að
vera hæpin, þar sem þetta merkilega rann-
sóknarefni hefur ekki verið kannað ítarlega.
Skemmtilegastur fannst mér síðasti kafli
bókarinnar, sem ber heitið „Reykjavík í
bókmenntum,“ og þá um leið of stuttur. —
Hann speglar ótrúlega vel mannlífið og get
ég ekki stillt mig um að taka hér sýnishom,
viðlag við langt vikivakakvæði, sem sr.
Gunnar Pálsson orti um miðja 18. öld:
„Hjá honum Jóni Hjaltalín
hoppa menn sér til vansa.
Allan veturinn eru þeir að dansa.“
Fjöldi mynda og teikninga eru í bókinni
og sumar hverjar í litum, ejnkum ljósmynd-
ir af listaverkum. Ennfremur fylgir nafna-
og atriðaorðaskrá og skrá um höfunda,
uppruna ljósmynda og teikninga og eykur
þetta vissulega á gildi bókarinnar.
Bókin er sett í Isafoldarprentsmiðju hf.,
en prentuð hjá Litbrá hf„ og er öll vinna við
bókina snotur.
Að lokum vil ég þakka Ríkisútgáfu náms-
bóka fyrir þessar tvær ágætu og kærkomnu
bækur. Vil ég hvetja alla skóla til að eign-
ast þær og reyndar alla sem áhuga hafa á
sögu þjóðarinnar. Vænti ég þess að Ríkis-
útgáfan láti eigi hér staðar numið með út-
gáfu bókaflokksins og haldi áfram í svip-
uðum dúr með sögu- og landkynninguna.
Rétt er að benda skólunum á að þeir geta
pantað bækurnar beint frá Ríkisútgáfunni
með sérstökum vildarkjörum.
46 - HEIMILI OG SKÓLI