Læknaneminn - 01.02.1955, Page 7
LÆKNANEMINN
7
Þannig mætti að sjálfsögðu lengi
halda áfram að bera fram uppá-
stungur, en aðalatriðið virðist þó
fyrst og fremst það, að komast
í kontakt og brúa bilið; þá kæmi
fljótlega í ljós, hvað kæmi til
greina og hvað ekki.
NÁMSKOSTNAÐURINN.
Við njótum þeirra hlunninda, að
stunda nám okkar við háskóla, þar
sem við þurfum engin skólagjöld
að borga. Gerir það mörgum kleift
langt nám, sem annars mundu af
fjárhagsástæðum ekki hafa átt
þess kost. Þrátt fyrir þetta vitum
við öll, að þetta langa nám kost-
ar okkur og vandamenn okkar all-
mikið fé, þótt ekki sé með talið
það vinnutap, sem við verðum fyr-
ir, í samanburði við samstúdenta
okkar, sem byrjuðu vinnu strax
að loknu stúdentsprófi.
Er því mesta furða, að aldrei
hafi verið gerð, svo kunnugt sé,
nein athugun á því, hvað læknis-
fræðinámið kosti í beinum og ó-
beinum útgjöldum, svo og hverjar
tekjur menn hafi um námstímann.
Æskilegt væri, að slík athugun
verði gerð fyrr en síðar. Verði
jafnframt reynt að leiða í ljós út-
gjöld þau, er vandamenn hafa
beint og óbeint, og hversu mikl-
ar skuldir hvíli á kandídötum að
loknu prófi. Ekki þyrfti að vera
úr vegi, að athugað verði um leið,
hvort hægt sé að gera einhverjar
ráðstafanir af hálfu félagsins til
þess að lækka útgjöldin, þótt ekki
verði í fljótu bragði komið auga
á neinar.
Slík skýrsla gæti orðið lánasjóði
til mikils gagns, þegar hann sæk-
ir um fé til Alþingis. Einnig gætu
félög lækna fengið þar góð rök
fyrir sínu máli, þegar þau þurfa
að semja við sjúkra,samlögin um
gjaldskrárhækkanir. En fyrst og
fremst mundi hún skýra okkur frá
því, hvað við aðhefðumst
INTRAMUSCULERT
OX YTETR AC Y CLINE.
Waddington, Smart og
Kirby1) skýra frá tilraunum með
nýtt preparat af oxytetracycline
(Terramycin), sem gefið er í intra-
musculer injection. Er það í þurr-
stofampullum, efnið síðan leyst
upp í vatni, svo að 100 mg með
2% procaini verða í 2 ml af upp-
lausn.
Sjúkl., sem fengu 100—200 mg
á 8 klst. fresti, fengu serum-con-
centration af efninu, svipaða og
þeim hefði verið gefin 0,25—0,5
g per os á 6 klst. fresti. Flestir
sjúkl. þoldu vel injectionirnar, ef
skammtar voru 100 mg á 8 klst.
fresti. Þegar gefin voru 200 mg
á 8 klst. fresti, fengu tiltölulega
miklu fleiri sjúkl. verki á injec-
tionsstað, án þess að concentra-
tionin í serum ykist svo teljandi
væri.
Kliniskan árangur telja þeir full-
komlega sambærilegan við peror-
ala eða intravenösa oxytetracyc-
linegjöf á sjúkl. með bact. pneu-
moni, peritonitis og aðrar infec-
tionir.
Indicationir fyrir að gefa oxy-
tetracycline intramusculert, er
einkum á sjúklingum, þar sem per-
oral eða intravenös gjöf er óheppi-
leg eða ókleif.
1) Waddington, Smart og Kirby:
Clinical and pharmacolor/ical studies of
intramuscular oxytetracycline. Antibio-
tics and Chemotherapy, 4:1037, 1954.