Læknaneminn - 01.02.1955, Síða 15
LÆKNANEMINN
15
Guðmundur Benediktsson, cand. med.:
Þvagmyndun
Æfingarritgerð undir lokapróf í lœknisfrœ'ði, slcrifuö í jan. ’SJf.
Birtist hér nær óbreytt.
Þvagið myndast í nýrunum. Með-
an nýrun eru heilbrigð og starfa
eðlilega, sjá þau um, að vökvar
líkamans haldist innan eðlilegra
marka, bæði hvað snertir magn og
efnasamsetningu. Nýrun eiga því
ríkan þátt í að stjórna vatnsinni-
haldi, saltmagni og sýrufari lík-
amans, og hreinsa blóðið af ýms-
um skaðlegum efnum, en það eru
einkum úrgangsefni úr metabol-
ismus eggjahvítu.
Líffærafræðileg bygging nýrnanna
(anatomia).
Myndun þvagsins er svo nátengd
byggingu nýrnanna, að rétt þykir
að gera örlitla grein fyrir henni.
Nýrun eru byggð úr mörgum sams
konar einingum, sem kallast neph-
ron. Er talið, að í heilbrigðu nýra
séu um 1 milljón nephron. I hverju
nephron er 1 glomerulus, ásamt
gangakerfinu, sem honum fylgir.
Gangakerfi þessu er skipt niður
í Capsula Bowmani, tubuli contorti
proximales, Henles-lykkju, sem
skiptist í pars descendens og asc-
endens tubuli contorti distales og
tubuli recti.
Til glomerulus-háræðanna ligg-
ur aðrennslisæð (vas afferens), og
er hún talsvert víðari en frá-
rennslisæðin (vas efferens). Það
rennur því talsvert miklu meira
blóðmagn til hvers glomerulus en
frá honum. Blóðið fer frá glomer-
uli eftir peritubuleru háræðun-
um, tekur upp ýmis efni frá inni-
haldinu í tubuli (glomerulusfilt-
ratinu) og nærir tubuli, áður en
það fer út í vv. renales.
Starf nýrnanna (physiologia).
Þvagmyndunin er samband af
starfi glomeruli og tubuli. Hún er
eiginlega þríþætt, því að í glomer-
uli fer fram filtratio, en í tubuli
resorptio og secretio. Verður nú
vikið nánar að hverjum þessara
þátta.
1. Starf g'lomeruli.
Fyrsti þátturinn í myndun
þvagsins fer fram í glomeruli og
er fólginn í filtratio, þ. e. a. s. það
síast (filtrerast) vökvi í gegnum
háræðaveggina á glomeruli út í
holrúmið í Capsula Bowmani, og
er þar með kominn út í ganga-
kerfið. Þessi vökvi er eggjahvítu-
laus, en að öðru leyti eins og
plasma að samsetningu.
Margt er það, sem hefur áhrif
á filtrationina, og skal það helzta
talið. Frumskilyrði fyrir því, að
nokkur filtratio fari fram, er, að
nægilega hár blóðþrýstingur sé í
glomerulus-háræðunum. Hann er
venjulega 75 mm Hg. Colloid os-
motiski þrýstingurinn í blóðinu er
hins vegar 30 mm Hg, og þrýsting-