Læknaneminn - 01.02.1955, Síða 25
LÆKNANEMINN
25
því stundum verið sendir hópar til
útlanda, t. d. til Gautaborgar og
Lundar. Nokkrir hafa verið í París
(þar er víst nóg af rónum, sem
enginn vill hirða) og einu sinni
eða tvisvar fór heill skari til
Strassburg og var þar á ríkisins
kostnað í röskan hálfan mánuð
við sektionir. líeyrt hef ég haft í
flimtingum, að sumum standi ljós-
ar fyrir sjónum sviflétt pils og
freyðandi Rínarvín, en það, sem
var í líkunum að finna. Þetta var
víst síðla sumars, á tíma uppskeru-
hátíðarinnar.
1 fysiologiu er stuðzt við ýmsar
bækur, en mest kennt í fyrirlestra-
formi og æfinga. I biokemiu er not-
uð bók eftir próf. Schönheyder. Er
hún allítarleg, en nokkuð smá-
smuguleg á köflum. Það vakti
undrun mína við komu mína hing-
að, hver feikn stúdentar kunna í
þessu fagi eftir 1. hluta, og einnig
frá þeirri hlið, sem ekki veit að
læknisfræði, enda kvað Schönhey-
der vera afar kröfuharður.
Við 1. hluta próf eru gefnar 5
einkunnir. Til að standast próf,
þarf 40 stig. Fallprósentan er vart
undir 50, en oftast nær 60. — Einn
dag í vor gengu 4 upp, og féllu
allir á mínusum. Verst var, að
þetta var síðasta prófið og einn
þeirra hafði boðið til veizlu mik-
illar um kvöldið. Líklega hefur
hann verið heldur bráður á sér
og ekki vitað heilræði Hávarnála,
að mey skal að morgni lofa, en
dag að kveldi!
Eftir nýjustu reglugerðinni er
fysik að rnestu felld brott og slak-
að nokkuð á kröfum til prófs í
anatomiu. Hins vegar er verkleg
kennsla aukin að mun.
1. semester eftir 1. hluta: ,,Vo-
lontörtjeneste" 2 mán. med., 3
mán. kir., 1 mán. við obduktionir
á path. institutinu. Þessi tími svar-
ar helzt til þess, sem við heima
köllum svo ólánlega að vera í
„kúrsusum" á spítölum. Þó skrifa
vol. að jafnaði ekki journala. Sam-
hliða þessu: 1) „reservelægekli-
nik“ í med.; 2) fyrirl. í anesthesiol.
+ demonstrationir; 3) kúrsus í
bakteriologiu (Moltke: Klinisk
Bakt.) með tilheyrandi; 4) prope-
deutiskir fyrirl. í pathologíu. Auk
þess, eftir því, sem tími vinnst til,
er skotizt í fyrirl. í kir. og med„
sem ætlaðir eru öllum semestrum
eftir 1. hluta.
2. semester e. 1. hluta: 1) „over-
lægeklinik" í med.; 2) overlægekl.
í pediatri; 3) reservel.kl. í kir.; 4)
reservel.kl. í neurologi; 5) kúrsus
í arvebiologi (Tage Kemp: Gene-
tics and Disease); 6) fyrirl. um
tb„ með demonstrationum o. fl.
3. semester e. 1. hluta: 1) overl.-
kl. í kir.; 2) overl.kl. í neurol./
neurokir. (m. a. K. H. Krabbe:
Forel. over Nervesygd.); 3) klinik
+ demonstr. í húð- og kynsjúk-
dómum; próf í lokin, nokkur fall-
prósenta (Haxthausen: Kortfattet
lærebog í hud- og könsygd.); 4)
klinik + demonstr. í radiologu
(aðallega carcinom, sarcom, leu-
kemiur). Farið yfir röntgendia-
gnostik; 5) fyrirl. + demonstr. í
psychiatri (incl. neuroses); 6) de-
monstr. og examinationir í patho-
logiu 1—2 tíma á viku.
Jf. semester e. 1. hlut.a: 1) kl.
í otho-rhino-laryngol. með prófi í
lokin; 2) kl. + demonstr. í oph-
thalmologiu, próf í lokin; 3) kl. +
demonstr. + stofugangur í epide-
miologi; 4) kúrsus í orthopediu;
5) vaccinationsteknik; 6) fyrirl. í
farmakologiu; 7) demonstr. +
examinationir í pathologiu.
í lok 4. sem. hafa flestir lokið
mestu af „praktikantt.jenesten“, en
það eru 2 mán. kir. + 1 mán. kir.
ambulatorium, 2 mán. med. + 1