Læknaneminn - 01.02.1955, Qupperneq 38
38
LÆKN ANEMINN
Guðjóu Sigurkarlsson, stud. med.*
skAk
Ekki er vitað með vissu, hvar,
eða hvenær, skákin skýtur fyrst
upp kollinum, en hægt er að rekja
slóð hennar allt aftur til um 500
e. Kr. Og talið er víst, að fæðing-
arstaður hennar sé í Asíu, og þá
að öllum líkindum á Indlandi. Á
miðöldum fluttist hún svo til Evr-
ópu og átti þar strax miklum
vinsældum að fagna. Vinsældir
hennar á þeim tíma má t. d. marka
af því, að hún var kölluð bæði
íþrótt konunganna og konungur
íþróttanna.
Þýzkur læknir, dr. Sigmund
Tarrasch, sem snemma á þessari
öld var einn af mestu skáksnilling-
um sinnar tíðar, hefur gefið skák-
íþróttinni eftirfarandi vitnisburð.
Hann segir: „Ég hef alltaf haft
dálitla meðaumkun með þeim
manni, sem engin kynni hefur haft
af skák, alveg eins og ég kenni í
brjóst um þann mann, sem aldrei
hefur kynnzt ástinni. Skákin býr
yfir afli, eins og ástin, eins og
tónlistin, til þess að gera mann
hamingjusaman.1 ‘
Auk skemmtunar þeirrar, er
skákin veitir unnendum sínum,
hefur hún ýmsa góða kosti, sem
engu síður gera hana eftirsóknar-
verða.
Á s. 1. hausti birtist í tímariti
bandaríska læknafélagsins grein,
er f jallaði um skák, og var læknum
þar sérstaklega bent á, að skákin
væri mjög hentug til þess að
dreifa þreyttum huga þeirra frá
amstri og áhyggjum starfsins.
Fáir, er séð hafa menn að tafli
*) Ritari Taflfélags Háskóla Islands.
munu efast um réttmæti þessarar
ábendingar og alls enginn þeirra,
er kynnzt hefur skákinni af eign
reynd.
Á Islandi hefur skákíþróttin not-
ið allmikilla vinsælda, einkum hin
síðari ár, og hafa íslendingar unnið
marga ágæta sigra á því sviði er-
lendis.
íslenzkir stúdentar hafa átt og
eiga marga af snjöllustu skák-
mönnum þessa lands, en almennur
áhugi meðal þeirra á skákinni er
því miður harla lítill.
I fyrravetur komu saman nokkr-
ir háskólastúdentar, sem áhuga
höfðu á skák, og stofnuðu, eða
kannski mætti segja endurreistu,
Taflfélag Háskóla Islantls, en
starfsemi þess félags hafði að
mestu leyti legið niðri seinustu
árin. Geta má þess læknanemum
til hróss, að rúmur helmingur
stofnendanna voru úr þeirra hópi,
og voru tveir þeirra kosnir í stjórn
félagsins. Þótt þessu unga félagi
hafi enn ekki tekizt að færa út
starfsemi sína sem skyldi, og feng-
ið frekar daufar undirtektir meðal
stúdenta, mun það gera það, sem í
þess valdi stendur, og heitir á
stuðning læknanema í hinu erfiða
og torsótta starfi, að fá hina villu-
ráfandi sauði inn á hinar glæstu
brautir skáklistarinnar.
Að lokum fer hér á eftir skák,
er Þórir Ólafsson, stud. med.,
tefldi við tékkneskan læknanema
á Alþjóðaskákmóti Stúdenta, sem
haldið var í Ósló í fyrra vetur.
Hvítt: Þórir. Svart: Alster.
1. d4 c5
2. d5 d6
3. c4 e6
4. dxe6 fxe6
5. Rc3 Rf6
6. e4 Rc6
7. g3 Rd4
8. Bg2 Be7